21 ágúst 2025
/
Mál nr. 307/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 307/2025
Fimmtudaginn 21. ágúst 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 14. maí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. maí 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 24. nóvember 2023 og var umsóknin samþykkt 20. desember 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. maí 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hennar til atvinnuleysisbóta.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. maí 2025. Með bréfi, dags. 15. maí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 2. júlí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. júlí 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa verið veik og skilað inn vottorði. Börn hennar hafi einnig verið veik. Kærandi hafi ekki vitað að hún þyrfti að tilkynna Vinnumálastofnun um veikindin þar sem hún sé ekki með neinn fastan tengilið þar. Hún hafi því ekki vitað hvernig eða hvern hún ætti að láta vita.
Kærandi sé einstæð, fimm barna móðir og búi í leiguhúsnæði ásamt börnum sínum. Hún sé dugleg að leita að starfi en það hafi því miður ekki gengið vel. Það sé mikið áfall að missa einu tekjur fjölskyldunnar og kærandi óski því eftir að ákvörðunin verði endurskoðuð.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 24. nóvember 2023. Með erindi, dags. 20. desember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 91%.
Með tilkynningu, dags. 25. júní 2024, hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 26. júní 2024. Kærandi hafi ekki mætt og eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum hafi kærandi verið látin sæta viðurlögum í formi tveggja mánaða greiðslustöðvunar á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með tilkynningu, dags. 18. mars 2025, hafi kærandi verið boðuð á íslenskunámskeið sem hafi verið haldið á tímabilinu 17. mars til 2. apríl 2025. Kærandi hafi sóst eftir námsstyrk fyrir námskeiðinu og hafi verið tilkynnt um að sú beiðni hefði verið samþykkt. Þá hafi kæranda verið tilkynnt um að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll hafi borið að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Tekið hafi verið fram að lágmarksþátttaka væri 80%.
Umrædd boðun hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang, X, og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 18. mars 2025, klukkan 15:13. Kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið. Þar sem kærandi hafi ekki mætt frá 20. mars til 2. apríl 2025 hafi hlutfall mætingar því aðeins verið 27%. Kærandi hafi mætt í þrjú af ellefu skiptum.
Vinnumálastofnun hafi þann 6. maí 2025 óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda. Kærandi hafi degi síðar skilað læknisvottorði þar sem komið hafi fram að hún hefði verið óvinnufær vegna veikinda á tímabilinu 19. mars til og með 2. apríl 2025.
Þar sem kærandi hefði ekki tilkynnt um veikindi sín til Vinnumálastofnunar og því ekki uppfyllt tilkynningarskyldu sína hafi henni verið gert að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga í þrjá mánuði samkvæmt 59. gr. Kæranda hafi verið tilkynnt um þá ákvörðun stofnunarinnar 13. maí 2025.
Með tilkynningu, dags. 26. maí 2025, hafi kærandi verið boðuð á námskeiðið „Changing perspectives: new paths in job search and life“ sem hafi verið haldið á tímabilinu 2. til 13. júní 2025, nánar tiltekið dagana 2., 4., 6., 10., 11. og 13. júní 2025. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll hafi borið að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Tekið hafi verið fram að lágmarksþátttaka væri 80%.
Umrædd boðun hafi verið send þann 26. maí 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang, X, og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 26. maí 2025, klukkan 13:30. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu og ekki tilkynnt um forföll. Kærandi hafi mætt í eitt skipti (2. júní 2025) af sex. Hlutfall mætingar hafi því verið 16%.
Vinnumálastofnun hafi þann 19. júní 2025 óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda. Kærandi hafi skilað skýringum og læknisvottorði sama dag. Á læknisvottorði hafi komið fram að hún hefði verið óvinnufær vegna veikinda á tímabilinu 16. maí til og með 30. júní 2025. Í skýringum aðila hafi verið skjáskot (þar sem þýðingartól kæranda hefði breytt uppgefnu netfangi til að skrá sig á annað námskeið sem henni hafi staðið til boða).
Með erindi, dags. 25. júní 2025, hafi kærandi verið upplýst um að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 59. gr. laganna þar sem hún hefði ekki tilkynnt um veikindi sín til Vinnumálastofnunar og því ekki uppfyllt tilkynningarskyldu sína. Þar sem um hafi verið að ræða þriðja sinn sem kærandi hafi verið látin sæta viðurlögum hafi greiðslur atvinnuleysistrygginga verið stöðvaðar að fullu, sbr. 1. mgr. 61. gr.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. maí 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 14. maí 2025. Skýringar kæranda samhliða kæru séu efnislega þær sömu og hafi legið fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hún hafi ekki sinnt mætingu á boðuð vinnumarkaðsúrræði.
Samkvæmt a. lið 13. gr. og [h. lið] 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 2. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi jafnframt:
„Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á viðurlagatímanum skv. 1. mgr. Hafni hann aftur að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum á þeim tíma getur komið til ítrekunaráhrifa skv. 61. gr.“
Sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar á sama tímabili samkvæmt 29. gr. laganna skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VIII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.
Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Í 2. mgr. ákvæðisins segi svo:
„Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á viðurlagatímanum skv. 1. mgr. Veiti hann Vinnumálastofnun ekki nauðsynlegar upplýsingar á þeim tíma eða tilkynni um breytingar á högum getur komið til ítrekunaráhrifa skv. 61. gr.“
Þá segi í 4. mgr. 61. gr. laganna að ef atvik endurtaki sig enn á ný skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.
Kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði um mætingu á þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun hafi boðað hana til né tilkynnt stofnuninni um forföll eða ástæður þeirra fyrr en stofnunin hafi kallað eftir skýringum.
Hin kærða ákvörðun, dags. 13. maí 2025, varði viðurlög sem kæranda hafi verið gert að sæta á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna. Námskeiðið hafi farið fram á tímabilinu 17. mars til 2. apríl 2025. Kærandi hafi mætt í þrjú af ellefu skiptum. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynningar um forföll þrátt fyrir að í erindi því sem henni hafi verið sent þann 18. mars 2025 hefði sérstaklega verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll skyldi tilkynna á uppgefið netfang. Eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á fjarveru hennar hafi borist læknisvottorð þar sem fram hafi komið að kærandi hefði verið óvinnufær á tímabilinu 19. mars til og með 2. apríl 2025.
Þann 25. júní 2025 hafi kærandi verið látin sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og því hafi verið um að ræða niðurfellingu bótaréttar í þriðja sinn. Greiðslur atvinnuleysisbóta hafi því verið stöðvaðar frá og með dagsetningu ákvörðunar, sbr. 4. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt ákvæðinu skuli sá sem þurfi að sæta biðtíma eða viðurlögum í þriðja sinn ekki eiga rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr. laganna.
Kærandi hafi verið boðuð á námskeið á tímabilinu 2. til 13. júní 2025. Kærandi hafi mætt í eitt skipti (2. júní 2025) af sex. Hlutfall mætingar hafi því verið 16%. Kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu og ekki sinnt því að tilkynna forföll, þrátt fyrir að í erindi til hennar þann 26. maí 2025 hafi sérstaklega verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll skyldi tilkynna á uppgefið netfang Vinnumálastofnunar. Eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á fjarveru hennar hafi borist læknisvottorð og skýringar. Í læknisvottorðinu hafi komið fram að hún hefði verið óvinnufær á tímabilinu 16. maí til og með 30. júní 2025. Í skýringum hennar hafi verið skjáskot af erindi þar sem Vinnumálastofnun hafi boðið henni á annað námskeið. Í því komi fram að uppgefið netfang sé rangt skrifað. Vinnumálastofnun hafi farið yfir þá boðun og netfangið hafi verið rétt í því erindi sem henni hafi verið sent.
Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með því að uppfylla hvorki skilyrði um mætingu né tilkynna um forföll hafi hún brugðist skyldum sínum samkvæmt 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Í samræmi við framangreint geti kærandi ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrr en hún hafi starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hún hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar, dags. 13. maí 2025. Vinnumálastofnun hafi borið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði frá dagsetningu þess erindis á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þá sé það jafnframt niðurstaða stofnunarinnar að rétt hafi verið að stöðva greiðslur til kæranda þann 25. júní 2025 á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnun um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi uppfyllti ekki mætingarskyldu á boðað námskeið hjá Vinnumálastofnun á tímabilinu 20. mars til 2. apríl 2025 vegna veikinda. Þá liggur fyrir að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um veikindin fyrr en 7. maí 2025, eftir að námskeiðið hafði farið fram. Kærandi skilaði læknisvottorði, dags. 7. maí 2025, þar sem fram kemur að hún hafi verið óvinnufær vegna veikinda frá 19. mars til 2. apríl 2025.
Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki strax um veikindi sín. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 23. júlí 2024 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. maí 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir