21 ágúst 2025
/
Mál nr. 309/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 309/2025
Fimmtudaginn 21. ágúst 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 14. maí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. maí 2025, um að synja beiðni kæranda um styrk vegna þátttöku í námskeiði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um styrk frá Vinnumálastofnun, dags. 6. maí 2025, vegna þátttöku í námskeiði á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands í apríl 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags 14. maí 2025, var kæranda tilkynnt að beiðni hans hefði verið synjað þar sem námskeiðið hefði verið haldið fyrir ári síðan og sækja þyrfti um styrk áður en námskeið hefði hafist.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. maí 2025. Með bréfi, dags. 20. maí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. júlí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. júlí 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa sótt námskeið í verkefnastjórnun á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands vorið 2024. Kærandi hafi á því tímabili verið í virkri atvinnuleit. Samkvæmt reglum Vinnumálastofnunar veiti stofnunin atvinnuleitendum aðstoð með því að taka þátt í kostnaði vegna námskeiða séu þeir í virkri atvinnuleit. Kærandi óski eftir því að úrskurðarnefnd velferðarmála felli úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni hans um þátttöku í kostnaði vegna framangreinds námskeiðs.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta þann 12. júní 2023. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 7. júlí 2023. Í apríl 2025 hafi kærandi hafið störf á nýjum vinnustað. Kærandi hafi verið afskráður frá 16. apríl 2025.
Þann 6. maí 2025 hafi kærandi óskað eftir því að Vinnumálastofnun myndi greiða sér styrk vegna þátttöku hans í námskeiði sem kærandi hefði sótt í apríl 2024. Beiðni kæranda um styrk hafi verið synjað þann 7. maí 2025 en beiðnin hafi ekki verið talin fullnægjandi með vísan til þess að ekki hefði borist afrit af reikningi og kvittun þar sem fram kæmi að námskeiðið væri greitt. Þá hafi kæranda verið bent á að koma þyrfti fram á hvaða tíma námskeiðið væri haldið og um hvers konar námskeið væri að ræða. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að námsstyrkur væri einungis greiddur vegna náms sem atvinnuleitandi hefði sinnt á tímabili sem viðkomandi hefði verið skráður atvinnulaus hjá stofnuninni og að sækja þyrfti um styrk áður en námskeið hefði hafist.
Þann 6. maí 2025 hafi borist greiðslukvittun vegna námskeiðs sem kærandi hefði sótt í apríl 2024 í verkefnastjórnun við Endurmenntun Háskóla Íslands. Beiðni kæranda um styrk vegna þátttöku í námskeiði hafi verið synjað þann 14. maí 2025.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Þá gildi lög nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir um vinnumiðlun og skipulag úrræða til að auka vinnufærni atvinnuleitanda.
Mál þetta varði þá ákvörðun ráðgjafa Vinnumálastofnunar að hafna því að greiða kæranda styrk fyrir útlögðum kostnaði við námskeið sem hafi verið haldið af hálfu Endurmenntunar Háskóla Íslands í apríl 2024.
Í reglugerð nr. 918/2020 séu settar nánari reglur um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um greiðslu styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Reglugerð þessi sé sett samkvæmt heimild í 62. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 5. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar.
Í 12. gr. reglugerðar nr. 918/2020 sé fjallað um vinnumarkaðsúrræðið ,,starfstengt nám og námskeið“. Í úrræðinu felist að Vinnumálastofnun sé heimilt að greiða styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði til atvinnuleitenda sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins vegna þátttöku þeirra í starfstengdu námi eða námskeiði sem sé viðurkennt sem vinnumarkaðsúrræði, sbr. a. eða d. lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Meðal skilyrða fyrir greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði sé að líkur séu á að námskeið komi til með að nýtast atvinnuleitandanum við atvinnuleit þar sem það sé til þess fallið að skila honum árangri við að finna sér starf að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Í 15. gr. reglugerðarinnar sé enn fremur mælt fyrir um að atvinnuleitendur skuli sækja um gerð samninga til Vinnumálastofnunar og að umsóknin skuli vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skuli fylgja nauðsynleg fylgigögn eftir því sem við eigi hverju sinni, svo sem vottorð um þátttöku atvinnuleitanda í námi eða námskeiði.
Í tilfelli kæranda hafi beiðni hans um námsstyrk borist rúmlega ári eftir að námskeið hefði farið fram og eftir að hann hefði verið afskráður hjá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi skráð sig á umrætt námskeið án samráðs við Vinnumálastofnun og lokið því áður en stofnunin hafi verið upplýst um að hann hefði skráð sig á umrætt námskeið. Ráðgjöfum Vinnumálstofnunar hafi því verið ómögulegt að meta hvort umrætt námskeið myndi nýtast kæranda í atvinnuleit og væri til þess fallið að skila honum árangri við að finna sér starf. Mat á því hvort námskeið teldist viðurkennt sem vinnumarkaðsúrræði hafi því ekki farið fram áður en kærandi hafi hafið nám sitt.
Í ljósi framangreindra skilyrða og atvika í máli þessu sé það afstaða Vinnumálastofnunar að ekki sé heimilt að veita kæranda styrk á grundvelli 12. gr. reglugerðar nr. 918/2020. Það sé því niðurstaða Vinnumálastofnunar að hafna skuli kröfum kæranda.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um styrk vegna þátttöku í námskeiði.
Í 1. mgr. 62. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kemur fram að heimilt sé að veita styrki úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna þátttöku atvinnuleitanda í starfs- eða námstengdum vinnumarkaðsúrræðum enda teljist viðkomandi tryggður samkvæmt lögunum þegar þátttaka í úrræði hefjist. Í 2. mgr. 62. gr. segir að styrkir samkvæmt 1. mgr. skuli greiðast á grundvelli reglugerðar sem ráðherra setur að fenginni tillögu stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs þar sem koma fram nánari skilyrði fyrir greiðslu styrkjanna. Reglugerð nr. 918/2020 um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um greiðslu styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði hefur verið sett með stoð í framangreindu ákvæði.
Í 12. gr. reglugerðar nr. 918/2020 er kveðið á um starfstengt nám og námskeið. Þar segir að Vinnumálastofnun sé heimilt að greiða styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði til atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins vegna þátttöku hans í starfstengdu námi eða námskeiði sem viðurkennt er sem vinnumarkaðsúrræði, sbr. a. eða d. lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, sbr. einnig reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði, með síðari breytingum. Skilyrði fyrir veitingu styrks er að líkur séu á að hið starfstengda nám eða námskeið komi til með að nýtast atvinnuleitandanum við atvinnuleit þar sem það sé til þess fallið að skila honum árangri við að finna sér starf að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi sótti þann 6. maí 2025 um styrk frá Vinnumálastofnun vegna þátttöku í námskeiði á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands sem fram fór í apríl 2024.
Af framangreindri 12. gr. reglugerðar nr. 918/2020 er ljóst að fara þarf fram ákveðið mat á því námi eða námskeiði sem atvinnuleitandi hyggst stunda til þess að unnt sé að fá styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna þess. Í máli þessu háttar svo til að kærandi sótti um styrk vegna námskeiðs sem hann stundaði rúmlega ári áður en umsókn barst Vinnumálastofnun. Að því virtu var skilyrði til greiðslu styrks vegna þess námskeiðs ekki uppfyllt. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um styrk vegna þátttöku í námskeiði er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. maí 2025, um að synja beiðni A, um styrk vegna þátttöku í námskeiði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir