27 ágúst 2025

/

Úrskurður nr. 626/2025


Hinn 27. ágúst 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 626/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU24040040 og KNU24040041

Kæra [...] þeirra

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 3. apríl 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 27. mars 2024, um að synja þeim og barni þeirra, [...], fd. [...] (hér eftir A), ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og barn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 25. febrúar 2023. Með kærendum í för voru hálfbróðir M, [...] (hér eftir B) og stjúpfaðir, [...]. Eru mál þeirra til meðferðar hjá kærunefnd. Í skýrslunni kemur fram að þau sæki um vernd vegna efnahagsástandsins í Venesúela. Þau séu öll við góða heilsu.

Móðir M, hálfsystir hans, maki hennar og bróðir kæranda (hér eftir C), komu hingað til lands og sóttu um alþjóðlega vernd í janúar 2024. Málsmeðferð umsókna þeirra var lokið á stjórnsýslustigi með úrskurðum kærunefndar nr. 587/2025, 588/2025, 589/2025, 590/2025, dags. 25. júlí 2025.

M kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. ágúst 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. K kom til viðtals hjá stofnuninni ásamt löglærðum talsmanni sínum 9. ágúst 2023 og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Valencia borg í Carabobo fylki áður en þau flúðu heimaríki sitt. Þar hefðu þau verið búsett í íbúð í þeirra eigu á nafni K sem nú væri til sölu. Í Venesúela búi foreldrar M og tvö systkini hans og móðir og bróðir K. Líkamlega og andlega heilsu sína kváðu kærendur góða og heilsufar A væri gott. Aðspurð um hvort þau hafi þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í Venesúela kvað M svo vera. K kvaðst einungis hafa þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í Venesúela við fæðingu A. Aðspurð um það hvort þau hafi þurft að greiða fyrir heilbrigðisþjónustuna og hvort þau hafi getað það kváðust kærendur hafa getað greitt fyrir þjónustuna.

Aðspurður um ástæðu flóttans frá heimaríki vísaði M til síðustu mánaða sem kærendur hafi dvalið í Venesúela. Í september 2022 hafi ótilgreindir aðilar reynt að ræna mótorhjóli af hálfbróður hans B, sem hafi þá verið við keyrslu og með farþega á hjólinu. Farþeginn hafi verið laminn með byssu af ótilgreindum manni, fallið á jörðina og sagt B að flýja. Kvað M þá bræður strax hafa grunað að atvikið hafi beinst persónulega gagnvart B vegna þess að þótt umræddur farþegi hafi verið með mikinn pening meðferðis hafi hann ekki verið rændur.

Eftir framangreint atvik hafi lögregluþjónar á vegum fylkislögreglunnar (e. state police) mætt, reynt að handtaka bróður M og endað á því að taka bróður M, stjúpföður, móður og systur M upp á lögreglustöð án þess að greina frá ástæðu handtökunnar. Þar hafi þeim verið haldið í um það bil 12 klukkustundir, frá miðnætti fram að hádegi daginn eftir. M hafi sjálfur farið til þeirrar lögregludeildar sem hann hafi verið að vinna fyrir, CICPC, að leita upplýsinga.M hafi beðið samstarfsfólk sitt og yfirmenn um að komast að því hvað hefði komið fyrir og þeir hafi farið á staðinn þar sem fjölskyldu M var haldið og kynnt sér málið. Í ljós hafi komið að fylkislögreglan hefði enga ástæður haft fyrir handtökunni. Þegar M hafi farið að sækja fjölskyldu sína hafi nafngreindur lögreglumaður hótað M og fjölskyldu hans. M kvaðst ekki hafa verið á svæðinu þegar fjölskylda hans hafi verið handtekin heldur hafi nágrannar þeirra hringt í M og látið hann vita. Móður sína kvað M á endanum hafa ákveðið að kæra ekki handtökuna og hún væri hjartveik.

  1. september 2022 hafi M verið að skutla vini sínum á lítilli sendibifreið í eigu M er lögreglan hafi stöðvað bifreiðina. Lögreglumennirnir hafi verið þeir sömu og handtekið hefðu fjölskyldu M. Þegar þeir hafi séð að um væri að ræða M hafi þeir viljað handtaka M og færa upp á lögreglustöð. Kvað M það algengt að lögreglan komi hlutum fyrir til þess að koma sök á einstaklinga og M hafi stigið út úr bifreið sinni og fylgst með lögreglumönnunum skoða bifreiðina til þess að tryggja að það yrði ekki gert. Honum hafi þá verið hótað af sama nafngreinda lögreglumanni og áður. Kvaðst M hafa boðist til þess að fara á lögreglustöðina ef farþegar hans kæmu einnig eða að lögreglan tæki bifreiðina en skildi M og farþega hans eftir. M hafi vitað að ef hann færi einn með þeim myndi hann finnast einhvers staðar látinn. Lögreglumennirnir hafi ekki samþykkt uppástungur M. Þegar einn farþega M hafi upplýst um að hún starfi fyrir ríkið og geti hringt í einhvern þar hafi lögreglumennirnir hörfað. Daginn eftir hafi M farið á lögreglustöð, til rannsóknarstöðvar lögreglunnar (e. internal investigations), og lagt fram kæru. Þar hafi M tekið eftir því að starfsfólkið hafi litið hann hornauga áður en það hafi skráð kæruna og M hafi gert sér grein fyrir því að kæran færi ekki lengra eftir þau viðbrögð. Hann hafi því einnig kært atvikið til innanríkisráðuneytisins (sp. Ministero publico). Kærendum hafi ekki liðið öruggum eftir þetta.

Hinn 23. desember 2022 hafi hálfsystur M, borist símtal frá föður hennar þess efnis að bróður hans (hér eftir X) hafi verið sleppt úr fangelsi. Greindi M frá því að X hafi áður verið í fangelsi en annar föðurbróðir hennar (hér eftir Y) hafi greitt mútur til þess að sleppa, tekið upp nýtt auðkenni og ekki hafi sést til hans síðan. Kvað M að bæði X og Y hafi mikil völd og áhrif (e. influence) innan stjórnvalda og þegar M hafi frétt af því að X væri laus úr fangelsi hafi hann lagt saman tvo og tvo og tengt alla atburði tengda framangreindum lögreglumanni við X. Taldi hann X vera að reyna að valda fjölskyldunni skaða. M kvað móður sína jafnframt hafa spurst fyrir um stöðu X og fengið þau svör að hann væri enn í fangelsi. Faðir hálfsystkina hans hafi þó sagt þeim að trúa því ekki því móðir hans hafi hitt og séð X úti á götu. Daginn eftir framangreint símtal hafi ótilgreindir menn ráðist að föður M, lamið hann og keyrt á vin föður hans en mennirnir hafi að sögn M ætlað að keyra á bæði föður M og vin hans. Framangreint atvik kvað M hafa gerst 25. desember 2022.

Lýsti M því einnig að 15. janúar 2023 hafi verið eitrað fyrir dýrum í hverfi móður hans og allir hundarnir drepnir. Nágranni móður hans ætti alveg eins bifreið og M og sömu nótt og eitrað hafi verið fyrir dýrunum hafi fimm til sex vopnaðir menn með hulin andlit brotist inn til umrædds nágranna. Þeir hafi hringt símtöl og beðið um auðkenni nágrannans en síðan farið án þess að taka neitt eða ræna neinu þegar nágranninn hafi staðfest hver hann væri. Mennina taldi M hafa farið húsavillt. Nágranninn hafi lýst því m.a. að umræddir menn hafi verið ógnandi og sagst vera hjá „manninum með hvíta sendibílinn“. Að sögn nágrannans hafi hinir grímuklæddu menn borið skotvopn sem líktust þeim sem lögreglan bæri vanalega. Þetta kvað M hafa verið dropann sem hafi fyllt mælinn og móðir hans hafi í kjölfar þess farið ásamt hálfsystur M til frænku hans í annarri borg.

Aðspurður um hvort eitthvað fleira hafi skeð eftir að móðir hans og hálfsystir hafi flutt greindi M frá því að nokkrum dögum fyrir viðtalið hjá Útlendingastofnun hafi verið hringt í hálfbróður hans B og faðir B sagt honum að bróðir sinn væri laus úr fangelsi. Kvað M að þótt X væri enn í fangelsi samkvæmt lögreglukerfum í Venesúela gengi hann laus og það þyrfti að hafa mikil tengsl til þess að geta það.

Kvað M til viðbótar að í eitt sinn hafi lögregluskírteini verið rænt af honum og í annað skipti hafi mótorhjól hans verið tekið í sundur og varahlutum rænt. M hafi kært framangreind atvik. Hinn 22. desember 2018 hafi kærendur verið að keyra heim eftir verslunarferð þegar einhverju hafi verið hent fyrir framan bílinn og við það hafi M velt bifreiðinni. Um væri að ræða mjög þekkta aðferð til að ræna fólk en M kvað kærendur hafi sloppið við að vera rænd því lögreglan hafi átt leið hjá og stöðvað til þess að aðstoða kærendur. Aðspurður um það hvort einhver hafi verið kærður vegna atviksins og hvert framhaldið hafi verið kvað M að hefði hann kært hefði bifreið hans verið tekin í rannsóknarskyni og M hefði líklega aldrei fengið bifreiðina aftur. Hann hafi því ekki lagt fram neina kæru.

Aðspurð um ástæðu flóttans frá heimaríki kvaðst K hafa flúið frá heimaríki vegna óöryggis og greindi frá því að í september 2022 hafi nokkrir atburðir gerst. Lýsti hún fyrsta atburðinum þannig að lögreglumenn hafi mætt þangað sem tengdafjölskylda hennar hafi verið að borða, handtekið tengdafjölskyldu hennar án ástæðu og haldið þeim föngnum í um það bil 12 klukkustundir. Nokkrum dögum síðar, 17. september 2022, hafi M verið að keyra vini sína heim þegar sömu lögreglumenn og tekið hafi fjölskylduna til fanga hafi stöðvað bifreið M og viljað handtaka hann. Þeir hafi ógnað M en vinir hans hafi komið í veg fyrir að M færi einn með lögreglumönnunum. M hafi kært lögreglumennina degi síðar, 18. september 2022, en ekki hafi verið hlustað á hann vegna spillingar. Vegna þess hafi hann 19. september 2022 kært lögreglumennina til stofnunar sem rannsaki lögregluna (sp. fiscalia). Kvað K M hafa hringt í sig og tjáð sér að verið væri að hóta honum. K hafi þá verið ólétt, með háan blóðþrýsting og meðgöngusykursýki og eftir símtalið hafi blóðþrýstingur hennar hækkað og henni byrjað að líða illa. Þeim M hafi ekki liðið vel eftir þetta og í Venesúela væri mikið um óöryggi, glæpi og mannrán. Kærendur hafi tekið ákvörðun um að fara eftir þessa atburði. Í janúar 2023 hafi kærendur farið til móður M og vopnaðir menn hafi farið inn í hús nágranna hennar. Nágranninn ætti lítinn sendibíl eins og kærendur og taldi K mennina hafa ruglast og farið í rangt hús vegna þess að nágranninn hafi ekki verið rændur heldur hafi aðilarnir tekið upp símann og sagst vera í röngu húsi. Þjófarnir hafi síðan farið en þeir hafi verið vopnaðir. Þjófana kvað K einnig hafa eitrað fyrir hundum. Aðspurð kvaðst K telja sömu einstaklinga og brotið hafi á mági hennar mörgum árum áður standa að baki því að lögreglan hafi farið að áreita kærendur vegna þess að kærendur hafi engin vandamál haft við aðra. Þeir væru valdamiklir og ríkir. Um væri að ræða frænda mágs hennar sem hafi hlotið fangelsisdóm en gæti hafa verið látinn laus.

K kvaðst hafa átt litla verslun í Venesúela og þénað um 100 dollara á mánuði. M kvaðst hafa starfað sjálfstætt við kaup og sölu bifreiða og þénað um 300 dollara á mánuði. Kærendur hafi átt nóg fyrir mat og annarri nauðsynjavöru og ekki sóst eftir aðstoð frá stjórnvöldum. K kvaðst ekki tilheyra minnihlutahópi í heimaríki. Kærendur kváðust ekki tilheyra sérstöku þjóðarbroti í heimaríki, þau hafi ekki verið aðilar að stjórnmálaflokki eða verið virk í þágu tiltekins málstaðar þar í landi

M kvaðst einnig hafa starfað sem lögreglumaður í heimaríki, haft starfstitilinn yfirrannsóknarlögreglumaður (sp. detective jefe) og gegnt stöðu aðstoðaryfirmanns. Staðan væri skrefi yfir almennum lögreglumönnum og fyrir ofan M hafi verið yfirmaður. Hann hafi starfað sem lögreglumaður frá október 2015 og sagt upp störfum í janúar 2022 og unnið uppsagnarfrest. Kvaðst hann hafa sagt upp störfum vegna spillingar innan lögreglunnar en reynt hafi verið að láta M gera hluti sem brotið hafi gegn hans siðferðiskennd. Nefndi hann sem dæmi m.a. að þegar hann hafi náð innbrotsþjófum hafi hærra settur starfsmaður sleppt þeim. M hafi rætt við viðkomandi sem hafi engu svarað heldur reynt að múta M með 100 dollara seðli. M hafi ekki tekið við peningnum. Vísaði M einnig til þess að hafa handsamað glæpamenn sem hafi þá sagt honum og samstarfsfólki hans að þeir vinni með með háttsettum og nafngreindum manni innan lögreglunnar (e. comissioner general). M og samstarfsfólk hans hafi í kjölfarið fengið símtal frá umræddum háttsettum manni sem hafi sagt þeim að sleppa glæpamönnunum. Þeir hafi hins allir verið sammála um að fylgja ekki þeirri skipun og tekið ákvörðun um að gera það ekki. Afleiðingar þess hafi verið þær að kærandi og samstarfsmenn hans hafi verið færðir yfir á aðra lögreglustöð. Kvaðst M hafa eignast óvini innan lögreglunnar með því að vinna sitt starf. Aðspurður um hvort M telji sig tilheyra minnihlutahópi í Venesúela greindi hann frá því að hvað stjórnmálaskoðanir varði sé það ekki beint minnihlutahópur heldur séu langflestir þar í landi ekki sammála forsetanum. Ekki megi tala um það og stjórnvöld misnoti völd sín. Sem dæmi neiti stjórnvöld einstaklingum sem neiti að yfirgefa mótmæli um mataraðstoð. Aðspurður um það hvort M hafi einhvern tíman verið í þeirri stöðu kvað hann svo ekki vera nema í tengslum við kosningar í heimaríki þegar hann hafi starfað sem lögreglumaður. Þá hafi hann og aðrir lögreglumenn verið neyddir til þess að kjósa stjórnarmenn ella yrðu þeir fyrir tilteknum viðurlögum. Til dæmis því að vera færðir á skrifstofu langt frá heimili viðkomandi eða komið væri í veg fyrir þróun í starfi.

Aðspurð um það hvort kærendur telji sig ekki getað búið annars staðar í Venesúela og verið örugg kváðust þau ekki geta það vegna mikilla áhrifa fólksins. K hafi farið frá Venesúela til þess að vera örugg. Snúi hún aftur til Venesúela telji hún að þau verði drepin eða þeim rænt. Aðspurður um það hvað M telji að muni gerast snúi hann aftur til Venesúela kvað hann það ekkert þýða að þau fari aftur til Venesúela á meðan mennirnir gangi lausir. Aðspurð töldu kærendur yfirvöld hvorki geta veitt fjölskyldunni aðstoð né vernd. Vísaði K til þess að það væri ómögulegt vegna mikillar spillingar í Venesúela

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kærenda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við barnið með vísan til ungs aldurs þess og framburðar foreldra þess.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum og barni þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Barni kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 3. apríl 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 17. apríl 2024. Viðbótargreinargerð barst frá nýjum talsmanni kærenda ásamt viðbótargögnum 3. júní 2024. Kærunefnd sendi kærendum og fjölskyldumeðlimum þeirra tölvubréf 3. júní 2025. Svör bárust 10. júní 2025.

Voru mál B og stjúpföður M unnin samhliða málum kærenda og um umsóknir þeirra er fjallað í úrskurðum kærunefndar nr. 624/2025 og 625/2025.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerðum er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærendur greint frá kynferðislegu ofbeldi sem hálfsystkin M hafi orðið fyrir af hálfu fjölskyldumeðlima þeirra og ofsóknum af hálfu eins þeirra eftir að hann hafi losnað úr fangelsi. Sem lögreglumaður hafi M verið neyddur til þess að kjósa gegn vilja sínum og hann hafi séð háttsetta lögreglumenn þiggja mútur. M hafi sjálfur neitað að taka þátt í slíkum verknaði. Vísa kærendur um nánari málsatvik til fyrirliggjandi gagna máls.

Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Kærendur byggja á því að hin kærða ákvörðun sé haldin verulegum annmarka, einkum m.t.t. rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga sem leiði til þess að fella verði ákvörðunina úr gildi. Vísar kærandi í fyrsta lagi til þess að í hinum kærðu ákvörðunum sé lítil sem engin umfjöllun um stöðu lögreglumanna í Venesúela en ein grundvallarástæða kærenda fyrir flótta þeirra hafi verið ofsóknir af hálfu lögreglu ásamt því að M hafi verið lögreglumaður í heimaríki. Enga heimfærslu sé að finna í niðurstöðu Útlendingastofnunar um umfjöllum stofnunarinnar um aðstæður lögreglunnar í Venesúela. Byggir kærandi á því að um sé að ræða brot á rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Í öðru lagi sé umfjöllun um aðstæður barnsins í hinum kærðu ákvörðunum ófullnægjandi og vísa kærendur til rannsóknarreglunnar í því samhengi. Vísar kærandi til þess að Útlendingastofnun leggi fram almenna umfjöllun um stöðu barna í Venesúela sem miði að börnum eldri en tveggja ára en A hafi ekki verið orðinn tveggja ára. Umfjöllunin sé því málinu óviðkomandi og vöntun sé á umfjöllun um A sem og aðstæður hans verði hann sendur til Venesúela. Kærendur vísa í þriðja lagi til viðtals K hjá Útlendingastofnunar og rannsóknarreglu og trúverðugleikamats í því samhengi. Benda kærendur m.a. á að í viðtali hennar megi finna bókun um að túlkur hafi verið afar óörugg og hafi það truflað flæði á frásögn kæranda. Það brjóti gegn reglum bæði stjórnsýslu- og útlendingaréttar.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og barni þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi ástæðuríkan ótta á ofsóknum af hálfu aðila sem nefndir séu í a- til c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli aðilar að þjóðfélagshópum. Að auki telja kærendur að líta verði á málið með hliðsjón af almennu ástandi í landinu. Kærendur byggja á ástæðuríkum ótta á grundvelli aðildar að þjóðfélagshóp samkvæmt d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga í ljósi reynslu sinnar af hótunum og ofbeldi af hálfu glæpamanna og gengja. Þær ofsóknir sem kærendur hafi reynslu af falli undir a-lið 2. mgr. 38. gr. laganna, enda hafi kærendur m.a. lýst líkamlegu ofbeldi sem og aðgerðum stjórnvalda lögreglu og dómstóla vegna huglægs ótta um athafnaleysi gagnvart þeim brotum sem þau standa frammi fyrir. Auk þess óttist kærendur synjun um notkun réttarúrræða sem leiði til óhóflegrar og mismunandi refsingar, sbr. d-lið 2. mgr. 38. gr. laganna. Um sé að ræða ástæðuríkan, huglægan ótta kærenda á ofsóknum á grundvelli d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga sem í eðli sínu varði við b- og c-lið 2. mgr. 38. gr. laganna. Þá byggja kærendur á því að þau hafi ekki og geti ekki hlotið vernd yfirvalda í Venesúela og yfirvöld sjálf séu valdur af ofsóknum með ýmsum hætti, sbr. a-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og barni þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur til röksemda í aðalkröfu sinni til stuðnings varakröfu. Vísa kærendur til þess að úrlausn á varakröfu þeirra í hinum kærðu ákvörðunum hafi ekki tekið mið af landaupplýsingum frá heimasvæði þeirra eða stöðu þeirra sem þolendur hótana og ofbeldis. Kærendur hafi lýst ótryggu öryggisástandi vegna einstaklingsbundinna þátta og hafi fulla ástæðu til að óttast refsingar og ómannúðlega og vanvirðandi meðferð, sérstaklega vegna fyrrum stöðu M sem rannsóknarlögreglumanns. Árétta kærendur að vanræksla á að taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum kærenda varði við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur til röksemda í aðal- og varakröfur þeirra í ljósi stöðu þeirra sem þolenda hótana og ofbeldis. Vísa kærendur einnig til þess að kærendur séu þolendur ofbeldis og hótana. Þau hafi barn á framfæri sínu og telja verði félagslegar aðstæður þeirra einstaklega erfiðar í því ljósi. Með hliðsjón af frásögnum um alvarlegt ofbeldi og hótanir sem og landaupplýsingum verði að telja að félagslegu öryggi kærenda sé alvarlega ógnað. Framangreint hafi sérstaklega áhrif á hagsmunamat barnsins og erfiðar félagslegar aðstæður þess í Venesúela.

Í greinargerð kærenda kalla kærendur eftir því að leyst verði úr máli þeirra með hliðsjón af óvissu sem ríkir um hagi útlendinga sem voru endursendir til Venesúela þann 15. nóvember 2023 og með hliðsjón af því að ekki hafi fengist lendingarleyfi fyrir áætlað leiguflug í lok febrúar 2024. Samhliða greinargerð kærenda 17. apríl 2024 lögðu kærendur fram erindi Félags talsmanna um alþjóðlega vernd, sem félagið hafi þegar sent kærunefnd útlendingamála, vegna þeirrar endursendingar. Vísa kærendur til þess að í því samhengi sé mikilvægt að fyrirgera ekki hagsmunum barnsins, að því leyti að A dvelji hérlendis með skert aðgengi að opinberri þjónustu til lengri tíma.

Með endursendingu kærenda og barns þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og barn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og barn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
  • ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 13. ágúst 2025);
  • UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 18. ágúst 2025);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 18. júlí 2025);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs og hafi samningurinn gert ráð fyrir alþjóðlegu eftirliti með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar. Yfirvöld í Venesúela hafa enn ekki birt þær tölur.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og einstaklingar enn í haldi að ósekju, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni þess árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem geri þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verði í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, fór í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Íávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í

Í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem hafi verið aflétt hafi verið komið á á ný eða nýjar settar á í kjölfar forsetakosninganna í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið sem geti haft áhrif á efnahag landsins.

Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 kemur fram að þrátt fyrir viðvarandi stjórnarkreppu í landinu og vaxandi efnahagslegar áskoranir, sem hafi aukist vegna yfirvofandi viðskiptaþvingana, þá hafi straumur yfir landamærin verið stöðugur, bæði inn í Venesúela sem og út úr landinu. Þá hafi á landamærastöðvum við Kólumbíu fleiri snúið til baka inn í landið en hafi flúið en á landamærastöðvum við Brasilíu væru enn fleiri sem leituðu til Brasilíu með von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria, auk þess sem einstaklingar hafi verið fluttir frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata sem Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) áætli að nemi um 6,5 % af landsframleiðslu árið 2024, hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins haft áhrif á kaupmátt og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna. Það hafi leitt til félagslegrar óánægju, sérstaklega á meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli og stuðlað að flótta einstaklinga innan lands sem leiti bættra lífskjara. Flóttamannastofnun leitist við að aðstoða þá sem séu verst settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærni endurkomu fólks til Venesúela. Vinni stofnunin ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna og öðrum samtökum að sérstökum verkefnum til þess að aðstoða einstaklinga sem snúi aftur til Venesúela, s.s. með kennslu, heilbrigðisþjónusta, sálrænni og félagslegri aðstoð og skjóli. Séu þessi verkefni starfrækt í höfuðborg landsins Karakas, Tachira, Zulia og Bólívar fylkjum. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Í kjölfarið settu íslensk stjórnvöld sig í samband þá einstaklinga sem hægt var og óskað upplýsinga um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að þau eigi á hættu ofsóknir í Venesúela fyrir tilstuðlan föðurbræðra hálfsystkina M. Kærendur geti ekki treyst á vernd yfirvalda.

Mat á trúverðugleika frásagna kærenda er byggt á viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins, upplýsingum um heimaríki og frásögnum fjölskyldumeðlima þeirra í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun þar sem þau byggja á samskonar málsástæðum og kærendur og hafa lagt fram að mestu leyti sömu gögn til stuðnings málatilbúnaði sínum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að þegar hann hafi starfað sem rannsóknarlögreglumaður í Venesúela hafi hann og aðrir lögreglumenn verið neyddir til þess að kjósa ríkjandi stjórnvöld þegar kosningar hafi staðið yfir. Framburður M ber með sér að hann hafi verið á móti því fyrirkomulagi og ósammála forseta Venesúela.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram ýmis gögn til staðfestingar á því að M hafi starfað sem rannsóknarlögreglumaður hjá CICPC lögreglunni í Venesúela, m.a. fram myndir af fram- og bakhlið lögregluskírteinis M. Á framhlið skírteinisins má sjá nafn M, mynd af honum og starfstitil ásamt merki CICPC lögreglunnar. Viðbótarupplýsingar eru sýnilegar á bakhlið skírteinisins, þar á meðal upplýsingar um að sá sem skírteinið tilheyri sé virkur starfsmaður. Lagði M einnig fram myndir sér í starfi sínu sem lögreglumaður og af útskrift hans. Einnig afrit af útskriftarskírteini, dags. 26. nóvember 2019, til staðfestingar á lögreglunámi hans og afriti af starfsleyfi M sem lögreglumaður, dags. 16. júlí 2023. Með tölvubréfi dags. 3. júní 2025 óskaði kærunefnd m.a. útskýringa á þýðingu síðarnefnds skjals dags. 16. júlí 2023 fyrir mál kærenda þar sem M hefði í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá því að hann hefði lokið störfum fyrir lögregluna í janúar 2022 og fyrir liggi að hann hafi komið til Íslands í febrúar 2023, nokkrum mánuðum fyrir útgáfu skjalsins. Í svari kærenda, dags. 10. júní 2025, við framangreindu tölvubréfi veittu þau ekki umbeðnar upplýsingar um þýðingu skjalsins fyrir mál kærenda en M staðfesti að hann hefði hlotið inngöngu í háskólanám í janúar 2020 og lokið þeirri gráðu í desember 2021. Kærendur lögðu einnig fram afrit af uppsagnarbréfi M, dags. 19. janúar 2022, og skjöl varðandi staðfestingu á uppsögn hans. Ber framangreint uppsagnarbréf M með sér að hann hafi sagt upp störfum af persónulegum ástæðum.

Með hliðsjón af framlögðum gögnum og framburði kærenda er ekki ástæða til að draga í efa að M hafi starfað sem rannsóknarlögreglumaður hjá CICPC lögreglunni í heimaríki í rúmlega sex ár frá því í október 2015 og sagt upp störfum í janúar 2022.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Ekki verður af frásögn M ráðið að hann óttist yfirvöld í Venesúela vegna þess að hann hafi verið á móti fyrirkomulagi því sem hann hafi lýst í kringum kosningar, starfað þar sem lögreglumaður eða sagt upp starfi sínu sem slíkur. Þá ber M ekki fyrir sig að það hafi haft einhverjar afleiðingar fyrir hann að hann hafi sagt upp starfi sínu. Með tilliti til frásagna kærenda og heimilda um aðstæður í heimaríki þeirra er ekki hægt að útiloka að þrýst hafi verið á M og aðra lögreglumenn í tengslum við kosningar í heimaríki kærenda og ekki er ástæða til að draga í efa að M hafi verið á móti því eða ósammála forseta landsins. Heimildir um aðstæður í Venesúela bera með sér að áberandi aðilar í stjórnarandstöðuflokkum, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Hvorki frásagnir kærenda né gögn málsins benda til þess þau hafi komið að starfsemi stjórnmálaflokka eða verið áberandi fyrir hönd slíkra flokka í heimaríki. Þvert á móti kváðust þau hvorugt hafa verið aðilar að stjórnmálaflokki eða virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Af frásögn M verður jafnframt ekki ráðið að stjórnvöldum hafi verið kunnugt um andstöðu M eða að hann eða K hafi sætt áreiti eða ofsóknum af hálfu stjórnvalda eða verið undir sérstöku eftirliti þeirra vegna stjórnmálaskoðana þeirra. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærendur eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila vegna stjórnmálaskoðana þeirra, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, með vísan til e-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram afrit af ákærum gegn umræddum föðurbræðrum hálfsystkina M, n.tt. X og Y, dags. 20. júlí 2012 og afrit af dómi sakamáladómstóls Carabobo fylkis í Valencia, dags. 8. janúar 2014. Í dómnum kemur fram að nafngreindur maður, X, hafi verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn frændsystkinum sínum. Verður af nöfnum brotaþola og vitna í dómnum ráðið að um sé að ræða móður M, hálfsystkini hans og aðra fjölskyldumeðlimi. Meðal annars kemur fram að móðir M hafi hinn 12. júlí 2011 komið til saksóknaraembættis Carabobo fylkis og lýst því að börn hennar hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu föðurbræðra sinna, X og Y, í tæpa sex mánuði. Þá kemur fram að mál X og Y hafi verið aðskilin. Sjá má að niðurstaða dómsins var sú að X hefði gerst sekur um kynferðisbrot gegn frændsystkinum og hann dæmdur í fangelsi í 23 ár og fjóra mánuði. Með vísan til framangreinds er ekki ástæða til að draga í efa að X hafi verið sakfelldur fyrir að hafa beitt hálfsystkin M kynferðisofbeldi og hlotið fangelsisdóm fyrir það. Hvorki kærendur né fjölskyldumeðlimir þeirra lögðu fram gögn um sakamál Y eða í hvaða farveg það hafi farið hjá yfirvöldum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá nokkrum atvikum sem gerst höfðu á seinustu mánuðum þeirra í heimaríki og þau telji að megi rekja til umrædds X en að sögn M vilji X valda fjölskyldunni skaða. Fylkislögreglan hafi handtekið einn bræðra M, móður hans, hálfsystur og stjúpföður og haldið þeim á lögreglustöð í um 12 klukkustundir án ástæðu. M hafi leitað til lögregludeildar sem hann hafi starfað fyrir og aðstoðað fjölskyldu sína við að komast heim til sín. Nafngreindur lögreglumaður hafi hótað M og fjölskyldunni þegar M hafi sótt fjölskylduna. Nokkrum dögum síðar, 17. september 2022, hafi M verið stöðvaður af lögreglu og þegar lögreglan hafi séð að um væri að ræða M hafi lögreglan viljað handtaka hann en farþegar M hafi náð að koma í veg fyrir það. Kvað M að þetta hafi verið sömu lögreglumenn og handtekið hafi fjölskyldu hans nokkrum dögum fyrr. Framangreint atvik hafi M kært til lögreglunnar daginn eftir og til innanríkisráðuneytisins 19. september 2022 vegna dræmra viðbragða lögreglunnar við kæru hans daginn áður. Þá töldu kærendur ótilgreinda aðila sem brotist hafi inn hjá nágranna móður M hinn 15. janúar 2023 hafa farið húsavillt vegna þess að nágranninn hafi átt eins sendibíl og M. K vísaði einnig til þess að hafa flúið frá heimaríki vegna óöryggis. Við frásögn kærenda vísuðu þau gjarnan til atvika sem hent hafi fjölskyldumeðlimi þeirra.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur m.a. fram tvö myndbönd af handtöku og skjáskot úr þeim. Kvað stjúpfaðir M í viðtali hans hjá Útlendingastofnun að á myndbandinu sjáist í móður M og bróður hans C. Framlögð myndbönd og skjáskot hafa takmarkað sönnunargildi í málinu en ekki verður af þeim staðfest hverjir sjáist á myndefninu eða um tildrög og ástæður atviksins. Kærendur lögðu einnig fram fjögur ódagsett skjáskot af samskiptum þar sem M hafi verið að reyna að fá aðgengi að þeim kærum sem hann hafi lagt fram í kjölfar atviksins 17. september 2022. Á einu skjáskotanna er dagsetningin 19. september 2022 tilgreind. Framlögð skjáskot hafa takmarkað sönnunargildi í málinu en ekki er hægt að staðfesta hverjir sendandi þeirra og viðtakandi séu, hvenær þau hafi verið send og í hvaða samhengi. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur fram afrit af kæru M til lögreglunnar dags. 19. september 2022. Ber skjalið með sér að stafa frá innanríkisráðuneyti Venesúela.

Upplýsingar í framlögðum gögnum styðja við þá frásögn kærenda að M hafi lagt fram kæru hjá lögreglunni 18. september 2022 og hjá stofnun sem fari með eftirlit með lögreglu 19. september 2022.

Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur einnig fram mynd og myndband af hótunarbréfi sem kærendur höfðu sjálf ekki greint frá í viðtölum sínum hjá Útlendingastofnun en samkvæmt framburði fjölskyldumeðlima kærenda í viðtölum þeirra hjá stofnuninni hafi hótunarbréfið borist móður M hinn 25. janúar 2024. Má á hótunarbréfinu sjá mynd af þremur skammbyssum og nöfnum M, móður hans og systkina. Framangreint myndband og mynd af skammbyssum og bréfi með nöfnum M, móður hans og systkina, hafa takmarkað sönnunargildi í málinu enda verður ekki staðfest hver hafi sent myndefnið og bréfið eða af hvaða tilefni.

Á milli frásagna kærenda og annarra fjölskyldumeðlima var að finna ákveðið misræmi, meðal annars um hótanir í garð fjölskyldunnar, hvenær X hafi losnað úr fangelsi og mögulegan þátt glæpahópsins Los Piloneros í atvikum sem hafi hent fjölskylduna. Í viðtölum kærenda höfðu þau hvorki greint frá að fjölskyldunni hafi borist hótanir né mögulegum tengslum föðurbræðra hálfsystkina M við glæpahópinn Los Piloneros.

Með tölvubréfi dags. 3. júní 2025 óskaði kærunefnd eftir nánari upplýsingum frá kærendum og fjölskyldu þeirra í þeim tilgangi að fá skýrari mynd af aðstæðum þeirra í heimaríki, ástæðum flótta þeirra frá heimaríki, sem og vegna misræmis í frásögnum fjölskyldunnar í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun. Með framangreindu tölvubréfi var m.a. kannað hvort fjölskyldan gæti gefið skýringar á því hvers vegna þau hafi ekki öll minnst á meint tengsl umræddra föðurbræðra við glæpahópinn Los Pilaneros, þekkta valdamikla og nafngreinda fjölskyldu og varaforseta Falcon fylkis í Venesúela. Skýringa var einnig óskað m.a. um hvaða áhrif þau tengsl hafi á stöðu þeirra í heimaríki.

Frekari upplýsingar og svör frá kærendum og fjölskyldu þeirra bárust kærunefnd með tölvubréfi 10. júní 2025. Fram kemur m.a. að fjölskyldan hafi ekki öll verið upplýst um tengsl föðurbræðranna við Los Piloneros glæpahópinn vegna þess að þau hafi sum fengið betri upplýsingar um tengslin þegar búið hafi verið að taka viðtöl við þá fjölskyldumeðlimi sem hafi ekki greint frá tengslunum. Eftir að B hafi komið til Íslands hafi honum borist símtal frá föður sínum sem hafi tjáð honum að X hafi þegar verið sleppt úr fangelsi og að X væri tengdur glæpahópnum Los Piloneros. Þá væri frændsystkin X skyldmenni eins leiðtoga glæpahópsins.

Með framangreindu tölvubréfi kærunefndar var einnig óskað upplýsinga varðandi dvöl hluta fjölskyldunnar í Ekvador, m.a. um það hvers vegna hluti fjölskyldunnar hafi flust til Ekvador. Í svari fjölskyldunnar kemur fram að móðir M og stjúpfaðir hafi tekið ákvörðun um að flytja þangað með hálfsystkini M. vegna alvarlegs og viðvarandi áreitis, ógnana og hótana sem fjölskyldan hafi orðið fyrir eftir að hafa tilkynnt um kynferðislegt ofbeldi gegn hálfsystkinum hans. Áreitinu lýstu þau á þann hátt að ókunnugir aðilar hafi haldið til við húsnæði fjölskyldunnar og fylgst með því. Áreitið hafi verið stöðugt og átt sér stað nokkrum sinnum yfir marga mánuði.

Athygli fjölskyldunnar var með framangreindu tölvubréfi jafnframt vakin á því að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi þau ekki greint frá neinum sérstökum atvikum fyrr en í september 2022 en í viðtali hjá Útlendingastofnun hefði hálfsystir kæranda greint frá því að þegar hluti fjölskyldunnar hafi komið aftur til Venesúela eftir dvöl þeirra í Ekvador hafi þau orðið fyrir hótunum á nýjan leik og gert sér grein fyrir því að ástandið hefði ekki batnað. Óskaði kærunefnd eftir betri upplýsingum frá fjölskyldunni um hvernig áreitið og hótanirnar hafi birst og hvað hafi falist í þeim. Greindi fjölskyldan frá því að þau hafi ekki tilkynnt um nein fyrri atvik og að endurteknar hótanir og áreiti hafi hafist árið 2022 ári eftir að þau hafi snúið til Venesúela, því að gerendurnir hafi komist að því að þau hafi snúið aftur.

Af framangreindu er ljóst að misræmi er á milli frásagna kærenda og fjölskyldumeðlima þeirra um atburðarásina og tímalínu atburða. Hefur verið á reiki þáttur Y í meintum hótunum. Hefur ýmist komið fram að hann hafi látið sig hverfa árið 2012 og ekki sést meira eða að hann hafi breytt um auðkenni og flutt 400 kílómetra í burt. Þá er á reiki í framburði fjölskyldumeðlima kærenda hvort að einungis X hafi átt þátt í hótunum eða bæði X og Y. Þá er verulega á reiki hvenær meintar hótanir hafi byrjað. Í viðtali hjá Útlendingastofnun í nóvember 2024 greindi móðir M frá því að þær hafi staðið í 12 ár, þ.e. frá árinu 2012 en í svörum til kærunefndar greindi hún frá því að þær hafi sennilega hafist árið 2015 en aukist 2020 og væri hún aðeins með sönnunargögn um hótanir frá 2021. Þá greindi bróðir M, C, frá því að engar hótanir hafi borist fjölskyldunni fyrir 25. janúar 2024. Kærendur og aðrir fjölskyldumeðlimir þeirra greindu ekki frá atvikum eða áreiti öðru en framangreindum hótunum fyrir september 2022 Af viðtölum við kærendur og fjölskyldu þeirra má ráða að kærendur hafi ekki verið búsett í sama húsnæði og fjölskylda M. Líkt og fram hefur komið höfðu kærendur í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun hvorki greint frá að fjölskyldunni hafi borist hótanir né mögulegum tengslum föðurbræðra hálfsystkina M við glæpahópinn Los Piloneros en þau kváðu X og Y hafa mikil áhrif innan stjórnvalda. Í greinargerðum kærenda, stjúpföður M og hálfbróður hans sem lagðar voru fram í júní og ágúst 2024 var ekki byggt á meintum tengslum X við glæpahópinn Los Piloneros þrátt fyrir að mágur kæranda hafi í viðtali sínu í febrúar 2024 fullyrt að þau hafi sennilega flúið Venesúela vegna spilltra lögreglumanna í samvinnu við framangreindan glæpahóp. Í úrskurðum kærunefndar í málum móður M, hálfsystur hans og C sem kveðnir voru upp 25. júlí 2025 var tekin afstaða til málsástæðna þeirra um þátt glæpahópsins Los Piloneros í meintum ofsóknum. Var það niðurstaða kærunefndar eftir trúverðugleikamat að ekki hafi verið sýnt fram á að glæpahópurinn stæði að baki þeim atvikum sem þau hafi lýst.Kærunefnd telur skýringar kærenda og fjölskyldu þeirra þess efnis að þegar viðtöl voru tekin við móður M, bróður hans C, hálfsystur og mág M hafi þau verið komin með betri upplýsingar um þátt glæpahópsins í atvikum sem hafi hent þau vera ótrúverðugar, einkum í ljósi þess að skv. gögnum málsins lágu þær upplýsingar fyrir áður en kærendur og aðrir fjölskyldumeðlimir sem lögðu fram umsóknir á sama tíma og þau, mættu til viðtals hjá Útlendingastofnun.

Við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur einnig fram afrit úrskurðar fullnustudómstóls í Valencia (sp. Tribunal Único de Primera Instancia en Funciones de Ejecucion Valencia), dags. 5. maí 2022. Í úrskurðinum kemur fram að X hafi verið handtekinn 14. september 2012 vegna áðurnefnds kynferðisbrots og hafi 29. júlí 2016 verið dæmdur í 15 ára fangelsi. Fram að dagsetningu úrskurðarins hafi X setið í fangelsi í níu ár, sjö mánuði og 14 daga. Af úrskurðinum má ráða að uppfyllt hafi verið lagaleg skilyrði til að heimila X að ljúka afplánun sinni utan veggja fangelsisins en hann þurft að lúta ákveðnum skilyrðum, svo sem að halda sig á heimili sínu í Falcon fylki og gefa sig fram við yfirvöld á 30 daga fresti. Samkvæmt framangreindu er ljóst að X sat í fangelsi til að minnsta kosti 5. maí 2022. Með tilliti til framangreindser ekki hægt að útiloka að umræddur X hafi verið látinn laus úr fangelsi áður en hann hafi lokið fullri afplánun. Hins vegar er ekki óeðlilegt í sakamálaréttarfari að fangar hljóti lækkun refsingar eða geti lokið afplánun á annan hátt en fangelsisvist á síðari stigum refsingar, svo sem með reynslulausn. Slík úrræði eru almennt bundin tilteknum skilyrðum.

Með tilliti til frásagna kærenda og framlagðra gagna er ekki ástæða til að draga í efa að lögreglan hafi 17. september 2022 stöðvað bifreið M og ekki er hægt að útiloka að lögreglan hafi ætlað að handtaka M en farþegar hans komið í veg fyrir það. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að X hafi staðið að baki framangreindu atviki eða að hann hafi áhrif innan lögreglunnar í Valencia borg. M greindi sjálfur frá því í viðtali að það væri þekkt aðferð hjá lögreglunni að koma einhverju fyrir í bifreiðum einstaklinga til þess að koma sök á viðkomandi og hann hafi því fylgst vel með lögreglunni á meðan lögreglan hafi skoðað bifreið hans. Hvorki kærendur né aðrir fjölskyldumeðlimir þeirra hafa rennt stoðum undir það að handtaka fjölskyldunnar nokkrum dögum fyrr hafi verið ólögmæt eða framkvæmd eftir skipun frá X eða glæpahóps á hans vegum eða að ótilgreindir aðilar hafi brotist inn hjá nágranna móður M fyrir tilstuðlan X eða að þeir hafi ruglast á húsum vegna þess að nágranninn ætti eins bifreið og M. Frásögn kærenda ber ekki með sér að þau atvik sem kærendur hafa lýst hafi beinst persónulega að M eða kærendum. Þá hafa kærendur ekki sýnt fram á að tengsl séu á milli þeirra atvika sem þau hafi greint frá eða að X hafi staðið að baki þeim atvikum sem þau hafi lýst.

Í framangreindum dómsúrskurði frá 5. maí 2022 kemur fram að X hafi verið handtekinn árið 2012 og setið í fangelsi frá þeim tíma. Af frásögn kærenda verður ekki annað ráðið en að þau hafi búið í Valencia borg þangað til þau yfirgáfu heimaríki í febrúar 2023 að mestu leyti óáreitt. Fyrir utan framangreind atvik sem kærendur kveða tengjast hálfsystkinum M greindi M í viðtali hjá Útlendingastofnun frá nokkrum atvikum sem hann vísaði til að hefðu verið tilviljanakenndir glæpir og lagði fram, við meðferð málsins hjá stofnuninni, yfirlit yfir fyrri kærur vegna glæpa sem M hafi orðið fyrir dags. 1. júní 2023, Langt er um liðið frá þeim atvikum og af framburði kærenda og framlögðum gögnum verður ekki séð að þau hafi beinst hafi að kærendum persónulega heldur tengst almennu óöryggi í heimaríki þeirra. Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að þau atvik sem kærendur hafa lýst nái ekki því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærendur byggja á því að þau geti ekki treyst á vernd yfirvalda í heimaríki vegna spillingar og M kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun hafa sagt upp störfum sem lögreglumaður vegna spillingar. Nefndi hann að m.a. hafi verið reynt að fá M til þess að taka við mútum og hann verið færður til í starfi ásamt samstarfsmönnum sínum í kjölfar þess að hafa neitað að fylgja skipun háttsettari lögreglumanns sem að sögn M hafi grundvallast á spilltri háttsemi. Líkt og fram hefur komið lögðu kærendur fram ýmis gögn varðandi störf M fyrir lögregluna í heimaríki og uppsögn hans.

Með tilliti til frásagna kærenda og upplýsinga um heimaríki verður ekki útilokað að M hafi verið færður til í starfi og reynt hafi verið að fá M til þess að taka þátt í spilltri háttsemi annarra lögreglumanna. Kærendur hafa ekki sýnt fram á með haldbærum gögnum að M hafi sagt upp störfum vegna spillingar innan lögreglunnar, að hann hafi orðið fyrir afleiðingum þess að hafa neitað að taka þátt í spilltri háttsemi eða að hann hafi óttast afleiðingar þess að neita því. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela hafa stjórnvöld þar í landi brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna. Þeir einstaklingar sem lendi í brotum af hendi lögreglu, svo sem fjárkúgunum, meðal annars leitað til ríkislögreglunnar (sp. Policía Nacional Bolivariana) eða þolendaaðstoðar hjá innanríkisráðuneytinu (sp. Ministerio Público). Í málinu liggur fyrir að M hefur sjálfur fengið aðstoð samstarfsmanna sinna og yfirmanna til þess að koma fjölskyldu sinni til aðstoðar í september 2022 og lagt fram kæru á hendur lögreglumanna hjá bæði lögreglunni og stofnun sem fari með eftirlitshlutverk gagnvart lögreglunni. Fjölskyldumeðlimir kærenda hafi einnig leitað til lögreglunnar og í málinu liggja m.a. fyrir afrit ákæra í málum X og Y, dóms í máli X frá venesúelskum yfirvöldum og yfirlit yfir fyrri kærur M hjá lögreglunni. Framangreind gögn gefa til kynna að kærendur hafi getað leitað til lögreglunnar í heimaríki og verður ekki ráðið af þeim að yfirvöld í Venesúela hafi ekki vilja eða getu til að bregðast við m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna Geta kærendur því leitað til lögreglu telji þau tilefni til þess.

Til viðbótar kvað M stjórnvöld misnota völd sín og synja sem dæmi einstaklingum sem neiti að yfirgefa mótmæli um mataraðstoð. M hafi sjálfur ekki verið í þeirri stöðu. Samkvæmt upplýsingum um heimaríki kærenda er öll aðstoð veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið gagnrýnt þar sem það hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Með vísan til framangreindra heimilda, er það mat kærunefndar að framangreind háttsemi yfirvalda nái ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Af framburði kærenda verður jafnframt ekki ráðið að þau hafi sætt þrýstingi við að skrá sig í föðurlandskerfið eða verið synjað um mataraðstoð eða aðra aðstoð stjórnvalda.

Í greinargerð kærenda er gerð krafa um að leyst verði úr máli þeirra með hliðsjón af þeirri óvissu sem ríkt hafi um venesúelska ríkisborgara sem hafi verið endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023. Af framangreindum heimildum um þá framkvæmd og endursendingar almennt til Venesúela verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til baka eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að barnið fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Barn það sem um ræðir er í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur barni kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það barninu fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barns þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að þau og barn þeirra eigi rétt á viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að úrlausn á varakröfu þeirra í hinum kærðu ákvörðunum hafi ekki tekið mið af landaupplýsingum frá heimasvæði þeirra eða stöðu þeirra sem þolendur hótana og ofbeldis. Kærendur hafi lýst ótryggu öryggisástandi vegna einstaklingsbundinna þátta og hafi fulla ástæðu til að óttast refsingar og ómannúðlega og vanvirðandi meðferð, sérstaklega vegna fyrrum stöðu M sem rannsóknarlögreglumanns. Vísa kærendur jafnframt til röksemda í aðalkröfu varakröfu sinni til stuðnings.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu og starfi nú ýmis innlend og erlend frjálsfélagasamtök og alþjóðastofnanir í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Þá er ljóst að þrátt fyrir áframhaldandi viðskiptaþvinganir og takmörkum á olíuviðskipti í landinu sé áframhaldandi hægur hagvöxtur í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barns þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Valencia borg í Carabobo fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Carabobo fylki í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kærenda eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og barn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og barn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Ef um er að ræða barn skal miðað við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 25. febrúar 2023 Kærendur og barn þeirra hafa því ekki fengið niðurstöðu í málum sínum innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga Er því heimilt að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.

Að mati kærunefndar uppfylla kærendur og barn þeirra skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram vegabréf fyrir sig og barn sitt. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hverjir kærendur og barn þeirra séu, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kærenda og barns þeirra skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar hvað varðar umsóknir kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og barni þeirra dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar hvað varðar umsóknir kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

The decisions of the Directorate of Immigration regarding the appellants and their child’s applications for international protection are affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellants and their child residence permits based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Vera Dögg Guðmundsdóttir