29 ágúst 2025

/

Framleiðslutengdur stuðningur við kornrækt

{image.Description}
istock/Lydur

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um framleiðslutengdan stuðning í kornrækt vegna uppskeru ársins 2025. Stuðningurinn byggir á aðgerðaáætluninni „Bleikir Akrar“ og er hluti af fimm ára átaksverkefni til eflingar innlendrar framleiðslu á korni til fóðurs og manneldis.

Greiddur verður stuðningur pr. kg. þurrkaðs korns með þurrefnisinnihald að lágmarki 85% sem stenst eftirfarandi skilyrði:

  • Bygg með rúmþyngd 600g pr. lítra eða meira

  • Bygg með rúmþyngd á bilinu 550-599 g pr. lítra

  • Hveiti með rúmþyngd 700g pr. lítra eða meira

  • Hafrar með rúmþyngd 500g pr. lítra eða meira

Umsókn skal fylgja vottorð frá fagaðila sem staðfestir gæði sbr. ofangreinda flokka.

Nánari leiðbeiningar er að finna í reglugerð 350/2024 um stuðning við kornrækt og á afurð.is
Umsóknum skal skila á Afurð í síðasta lagi þann 10. nóvember