Nýr sendiherra Íslands í Frakklandi
María Mjöll Jónsdóttir sem tók við stöðu sendiherra Íslands í París byrjun ágúst, afhenti í gær Emmanuel Macron, forseta Frakklands trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Frakklandi. Við bjóðum Maríu Mjöll velkomna til Parísar og hlökkum til að starfa með henni næstu árin!