03 september 2025

/

Mál nr. 353/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 353/2025

Miðvikudaginn 3. september 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. júní 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. maí 2025, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 20. september 2024 og var umsóknin samþykkt 10. október 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. maí 2025, var kæranda tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu desember 2024 til mars 2025 sem innheimtar yrðu án álags samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. júní 2025. Með bréfi, dags. 11. júní 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. júlí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. júlí 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að þær greiðslur sem hann hafi þegið frá lífeyrissjóði byggi á sparnaði hans og hann hafi því í raun verið að taka út sparnað. Greiðslurnar eigi því ekki að koma til frádráttar atvinnuleysisbóta. Kærandi bendi jafnframt á að þær lífeyrissjóðsgreiðslur sem hann hafi fengið séu ekki meðal þeirra greiðslna sem taldar séu upp í 36. gr. laga nr. 54/2006.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 20. september 2024. Með erindi, dags. 10. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kærandi hafi verið afskráður af atvinnuleysisskrá þann 1. júlí 2025 þar sem hann hafi byrjað í vinnu.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með ótilkynntar lífeyrissjóðsgreiðslur samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta á tímabilinu desember 2024 til mars 2025 frá Greiðslustofu lífeyrissjóða. Þá hafi kærandi einnig verið með lífeyrissjóðsgreiðslur í desember 2024 frá Brú lífeyrissjóði. Með erindi, dags. 8. maí 2025, hafi verið óskað eftir því að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna, auk afrits af greiðsluseðlum.

Greiðsluseðlar hafi í kjölfarið borist frá kæranda. Samkvæmt greiðsluseðlum hafi verið um greiðslur vegna ellilífeyris að ræða. Með erindi, dags. 20. maí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu desember 2024 til [mars] 2025, að fjárhæð 548.459 kr. Skuld hafi verið innheimt án 15% álags.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. maí 2025, um að kærandi skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 548.459 kr.

Í kæru sinni til úrskurðarnefndar velferðarmála taki kærandi fram að hann líti svo á að þær greiðslur sem hann hafi fengið greiddar frá lífeyrissjóðum samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta sé hans sparnaður. Að hans mati eigi þær greiðslur því ekki að koma til skerðingar á þegar greiddum atvinnuleysisbótum. Hann bendi á að þær greiðslur sem kærandi fái greiddar eigi ekki að koma til skerðingar greiðslna atvinnuleysisbóta þar sem þær séu ekki taldar upp í 36. gr. laga nr. 54/2006.

Mælt sé fyrir um skerðingar á atvinnuleysisbótum vegna tekna atvinnuleitanda. Í 1. mgr. 36. gr. segi:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Ákvæðið taki af allan vafa um það hvort elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum skuli koma til frádráttar greiðslum atvinnuleysistrygginga.

Lífeyrissjóðsgreiðslur kæranda hafi í desember 2024 numið 626.714 kr. Í reglugerð nr. 1422/2023 sem sé sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi frítekjumark fyrir árið 2024 verið 86.114 kr. Lífeyrissjóðsgreiðslur sem kærandi hafi fengið greiddar hafi því verið yfir frítekjumarki fyrir árið 2024 og komi því til skerðingar á atvinnuleysisbótum. Þá hafi lífeyrissjóðsgreiðslur kæranda í janúar 2025 verið 505.728 kr., 507.721 kr. í febrúar 2025, 506.366 kr. í mars og 510.986 kr. í apríl. Í reglugerð nr. 1455/2024 sem sé sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi frítekjumark fyrir árið 2025 verið 89.817 kr. Lífeyrissjóðsgreiðslur sem kærandi hafi fengið greiddar hafi því verið yfir frítekjumarki fyrir árið 2024 og komi því til skerðingar á atvinnuleysisbótum.

Af framangreindu sé ljóst að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um lífeyrissjóðsgreiðslur á tímabilinu desember 2024 til apríl 2025 sem Vinnumálastofnun hafi borið að skrá til skerðingar á atvinnuleysisbótum samkvæmt 1. mgr. 36. gr. laganna.

Kæranda hafi því borið að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur [vegna] tímabilsins desember 2024 til mars 2025, samtals að fjárhæð 548.459 kr. í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laganna.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 sé fjallað um að Vinnumálastofnun beri að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í ljósi þess að kærandi sé með samþykkta umsókn, dags. 20. september 2024, séu ofgreiddar atvinnuleysisbætur innheimtar með skuldajöfnuði við síðar greiddar atvinnuleysisbætur í samræmi við ákvæði 3. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Heildarskuld kæranda hafi verið 548.459 kr. án álags sem hafi verið skuldajafnað við síðar tilkomnar atvinnuleysisbætur í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þegar þetta sé ritað nemi skuld kæranda 486.560 kr.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga á tímabilinu desember 2024 til mars 2025. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að upphæð 548.459 kr.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. maí 2025, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til kæranda.

Í 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna hins tryggða. Þar segir í 1. mgr.:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar er sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunna að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er þannig fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.

Fyrir liggur að kærandi þáði lífeyrissjóðsgreiðslur á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur. Þá liggur fyrir að greiðslur kæranda voru yfir frítekjumarki fyrir árin 2024 og 2025, sbr. reglugerðir nr. 1422/2023 og 1455/2024.

Að framangreindu virtu átti kærandi ekki rétt á greiðslum frá Vinnumálastofnun á því tímabili sem endurgreiðslukrafan lýtur að en ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og er því ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

 

 

 

 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. maí 2025, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir