03 september 2025

/

Mál nr. 393/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 393/2025

Miðvikudaginn 3. september 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 24. júní 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. júní 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 12. mars 2024 og var umsóknin samþykkt 9. apríl 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. júní 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 24. júní 2025. Með bréfi, dags. 25. júní 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 1. ágúst 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. ágúst 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar eftir að ákvörðun Vinnumálastofnunar um þriggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum verði endurskoðuð. Kærandi greinir frá því að hann hafi því miður ekki getað mætt á boðaðan fund og uppfyllt skyldur sínar vegna tæknilegs vandamáls í síma sínum. Það hafi komið í veg fyrir að kærandi fengi mikilvægar tilkynningar og hafi getað skráð sig inn til að staðfesta atvinnuleit. Hann hafi nú leyst vandamálið og tryggt að allt sé aðgengilegt og tiltækt í framtíðinni.

Sem faðir með ungt barn, mánaðarlega leigu og framfærslu til að standa straum af valdi stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta miklum fjárhagserfiðleikum. Kærandi sé reiðubúinn að taka þátt í hvers kyns vinnumarkaðsúrræðum og mæta á frekari fundi eða í viðtöl. Kærandi biðjist innilegrar afsökunar á óþægindunum og biðji um skilning og stuðning við að endurheimta atvinnuleysisbætur sínar eða lækka refsingu, sé það mögulegt.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 12. mars 2024. Með erindi, dags. 9. apríl 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 27. maí 2025 hafi kærandi verið boðaður í viðtal við ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 28. maí 2025, klukkan 9:00. Kærandi hafi verið upplýstur um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 27. maí 2025, klukkan 7:43. Kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal.

Þann 30. maí 2025 hafi þær skýringar borist frá kæranda að hann hafi misst af viðtali sökum þess að síminn hans hefði verið bilaður. Hann hafi tekið fram að hingað til hefði hann mætt á alla boðaða fundi hjá Vinnumálastofnun. Þann 2. júní 2025 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og sagst hafa misst af viðtali. Hann hafi tjáð starfsmanni Vinnumálastofnunar að hann hefði boðað forföll sín í tölvupósti.

Með erindi, dags. 5. júní 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hefði ekki mætt í boðað viðtal á þjónustuskrifstofu þann 28. maí 2025. Áréttað hafi verið að hefði hann hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 5. júní 2025 hafi Vinnumálastofnun borist skriflegar skýringar frá kæranda þar sem komið hafi fram að kærandi hefði misst af skilaboðum varðandi fundinn sökum þess hann hefði ekki séð boð Vinnumálastofnunar fyrr en eftir að viðtal hefði farið fram. Í því samhengi hafi kærandi bent á að sími hans hafi verið bilaður þegar boð hafi verið sent til hans. Af þeim sökum hafi hann ekki getað lesið boð af síma sínum. Með erindi, dags. 24. júní 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um þriggja mánaða stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta til hans vegna fjarveru í boðað viðtal þann 28. maí 2025. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 28. maí 2025, klukkan 9:00. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 5. júní 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar kæranda á fjarveru sinni á boðaðan upplýsingafund lúti einkum að því að sími hans hafi verið bilaður og hann hafi því ekki getað kynnt sér boðun Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði.

Kærandi hafi valið að vera í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi honum verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hans með tölvupósti, skilaboðum inn á „Mínum síðum“ og með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Fyrir liggi að kæranda hafi verið send tilkynning í farsíma og tölvupósti þar sem honum hafi verið tjáð að honum biðu skilaboð á „Mínum síðum“. Í samskiptasögu kæranda komi fram að honum hafi sannarlega verið sendur tölvupóstur á uppgefið tölvupóstfang, X, og með smáskilaboðum í skráð farsímanúmer, X, þann 27. maí 2025, klukkan 7:43. Boðun til umrædds viðtals hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Atvinnuleitendur þurfi samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á upplýsingafund hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda ríflega 25 tímum fyrir áætlað viðtal. Kærandi hafi í upphafi umsóknar verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.

Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr. beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis. Þar sem um önnur viðurlög sé að ræða á sama bótatímabili komi til beitingar 1. mgr. 61. gr. laganna og kæranda beri að sæta þriggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 27. maí 2025 boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem fara átti fram þann 28. maí 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga. Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti í boðað viðtal né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að tæknilegt vandamál í síma hans hafi komið í veg fyrir að hann fengi tilkynningar.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 24. júní 2024 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. júní 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir