03 september 2025
/
Samráð um drög að fyrstu aðlögunaráætlun Íslands vegna loftslagsbreytinga
Vinna við fyrstu aðlögunaráætlun Íslands vegna áhrifa loftslagsbreytinga er í fullum gangi og hafa fyrstu drög að slíkri áætlun verið sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða safn aðgerða sem lagt er til að verði í aðlögunaráætluninni fyrir tímabilið 2026-2030. Verkefnisstjórn loftslagsaðgerða mun forgangsraða aðgerðunum frekar til innleiðingar á næstu árum, að teknu tilliti til umsagna í samráðsgátt.
Þá er gert ráð fyrir að kynna fyrstu, fullunnu aðlögunaráætlunina og innleiðingu hennar í samræmi við forgangsröðun fyrir lok árs 2025. Áætlunin verður birt á vefnum https://www.co2.is/ og munu þá báðar lögbundnar loftslagsáætlanir stjórnvalda eiga heimilisfesti á þeirri síðu. Liður í ferlinu við mótun aðlögunaráætlunar er að leggja þetta fyrsta safn aðgerða í samráðsgátt. Því fylgir samantekt á fyrstu útgáfu áhættu- og viðkvæmnimats unnu af Veðurstofu Íslands sem skapar ramma utan um mótun og forgangsröðun aðgerða auk mælingu á árangri þeirra.
Íslenskt samfélag þarf að aðlagast að þeim áhrifum loftslagsbreytinga sem þegar eru komin fram, og sem munu verða. Sumar aðgerðir á listanum eru þegar í framkvæmd og þegar fjármagnaðar innan ramma fjárlaga. Aðrar kalla á frekari fjármögnun þegar útfærslu þeirra lýkur. Enn aðrar fela í sér ný verkefni sem þarf að tryggja fjármögnun fyrir á næstu árum. Forgangsröðun verkefnistjórnar, að samráði loknu, felur í sér að mat á kostnaði fyrir hverja aðgerð.
„Góð loftslagsstefna felur bæði í sér aðlögun að loftslagsbreytingum og aðgerðir til þess að vinna gegn loftslagsbreytingum. Fyrsta aðlögunaráætlun Íslands mun efla skilning okkar á þeim breytingum sem fram undan eru og mismunandi sviðsmyndum til lengri tíma, þ.m.t. mögulegum breytingum á hafstraumum í kringum landið. Jafnframt eru þar aðgerðir sem snúa að því að byrja að bregðast við þeim breytingum sem við vitum að eru yfirvofandi, líkt og ákafari úrkomu og hækkun sjávarborðs.” segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Drög að aðgerðalista aðlögunaráætlunar vegna áhrifa loftslagsbreytinga á Íslandi