03 september 2025
/
Styrkjum til tækjakaupa fyrir lífræna framleiðslu úthlutað í fyrsta sinn
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur úthlutað styrkjum til tækjakaupa fyrir lífræna framleiðslu. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkum styrkjum er úthlutað og er styrkveitingin ein aðgerða í aðgerðaáætlun til eflingar lífrænni framleiðslu sem kom út í ágúst 2024.
Í aðgerðaáætluninni eru settar fram 14 aðgerðir sem skipt er í nokkra málaflokka. Hver málaflokkur snýr að tilteknum hluta virðiskeðju lífrænna matvæla eða að innviðum sem nauðsynlegir eru til að keðjan verði sem sterkust.
Auglýsing var birt í byrjun árs og bárust ellefu umsóknir. Fagráð í lífrænni ræktun veitti umsagnir um umsóknirnar en úthlutun var á vegum atvinnuvegaráðuneytisins.
Til ráðstöfunar á árinu 2025 eru 30 milljónir kr. en úthlutað var 24,5 milljónum til eftirfarandi aðila:
Í tveimur tilvikum fengu umsækjendur styrki til kaupa á fleiri en einu tæki.
Styrkir til tækjakaupa fyrir lífrænni framleiðslu - úthlutun árið 2025
| Umsækjandi | Samþykktur styrkur kr. |
| Elínborg Erla Ásgeirsdóttir | 1.090.000 |
| Friðgeir Jónasson | 469.000 |
| Kristján Oddsson | 1.795.000 |
| Kristján Oddsson | 1.595.000 |
| Móðir Jörð ehf | 2.657.500 |
| Ólafur Ingi Sigurmundsson | 6.180.000 |
| Skrifandi ehf. | 5.000.000 |
| Smiðjugrund ehf. | 1.250.000 |
| Steinaborg Berufjarðarströnd ehf | 987.000 |
| Syðra-Holt ehf | 474.300 |
| Syðra-Holt ehf | 3.000.000 |
| Samtals | 24.497.800 |