04 september 2025

/

Hækkun lágmarksverðs mjólkur

{image.Description}
istock/anusorn nakdee

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.

Eftirfarandi verðbreytingar munu taka gildi þann 1. september 2025:

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 1,15% úr 139,53 kr./ltr í 141,13 kr./ltr.

Eftirfarandi verðbreytingar munu taka gildi þann 8. september 2025.

  • Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 1,33%.

Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í mars 2025. Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 1,15% frá mars til júní 2025.

Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur veginni kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Vinnslu- og dreifingarkostnaður afurðastöðva hækkar um 1,55%.

Verðbreytingar byggja á kostnaðarbreytingum frá mars til júní 2025 en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,99%.

Sjá nánar á síðu verðlagsnefndar búvara.