04 september 2025
/
Umsókn um virknistyrk á Ísland.is
Samhliða lagabreytingum sem tóku gildi um mánaðamótin í örorku- og endurhæfingarkerfinu var útbúin stafræn umsókn um virknistyrk fyrir einstaklinga sem metnir eru með 26–50% starfsgetu samkvæmt samþættu sérfræðimati Tryggingastofnunar. Geta þeir nú sótt um virknistyrk hjá Vinnumálastofnun.
„Það er virkilega ánægjulegt að sjá hvernig stafrænar lausnir hafa gert okkur fært að skila breytingum hraðar og með einfaldari hætti til þeirra sem á þeim þurfa að halda,” segir Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra.
Nánari upplýsingar um virknistyrki ásamt umsókn er að finna á Ísland.is.
Umsóknin var samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Stafræns Íslands en þetta er önnur umsóknin sem þau stafvæða í sameiningu. Þá er þegar hafin vinna við uppfærslu á umsókn um atvinnuleysisbætur.