05 september 2025
/
Forvörn gegn RS veiru tekin í almenna notkun fyrir ungbörn í fyrsta sinn á Íslandi
Öllum ungbörnum undir sex mánaða aldri verður boðin forvörn gegn RS veirusýkingu frá og með október næstkomandi. Þetta er nýmæli. RS-veiran er algeng orsök öndunarfærasýkinga, sem leggst sérstaklega þungt á börn á fyrsta aldursári, og veldur árlega fjölda innlagna á sjúkrahús hérlendis og erlendis. Í alvarlegum tilvikum þurfa börn að leggjast inn á gjörgæslu og fá öndunarvélarstuðning. Mótefnið verður gefið á sjúkrastofnunum þar sem fara fram fæðingar eða 5 daga skoðun, sem og í ungbarnavernd á heilsugæslum. Eldri börn í áhættuhópum geta einnig fengið mótefnið á sjúkrahúsum eða heilsugæslum. Frá þessu er greint á vef embættis landlæknis.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir það mikilvæg tímamót að þessi mikilvæga forvörn verði nú í boði fyrir öll ungbörn hér á landi því þau séu viðkvæmust fyrir. „Reynsla af efninu er góð og ég hvet foreldra til að þiggja þessa mikilvægu forvörn fyrir börnin sín þegar hún býðst.“
Mótefnið hefur þegar verið notað síðastliðna tvo vetur í fjölda Evrópuríkja, auk annarra landa, og reynslan er mjög góð. Notkun þess fyrir ungbörn er studd af samtökum barnalækna í Evrópu sem og Norður- og Suður Ameríku. Rannsóknir sýna um 80% fækkun innlagna á sjúkrahús og einnig færri tilfelli bakteríusýkinga, sem oft fylgja í kjölfar RS-veirusýkingar.
Ávinningurinn á Íslandi
Ef árangurinn hérlendis verður sambærilegur og í nágrannaríkjum má búast við:
- Færri en 300 börn leiti árlega til læknis vegna RS-veirusýkingar, í stað um eða yfir 500 börn.
- Um 10–15 sjúkrahúsinnlagnir í stað um 40 innlagna.
- 30 sjúkrahúslegudagar í stað 180 daga.
Þannig er áætlað að gjöf mótefnisins muni minnka veikindi barna, draga úr álagi á heilbrigðiskerfið, vonandi minni lyfjanotkun og áhyggjum foreldra auk fjarveru þeirra frá vinnu.