05 september 2025
/
Nr. 633/2025 Úrskurður
Hinn 5. september 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 633/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090100
Kæra […]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 13. september 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. ágúst 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Kólumbíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 28. mars 2024. Kvað kærandi að sér hefði verið hótað vegna kynhneigðar sinnar af fólki frá heimasvæði sínu í Kólumbíu. Hann ætti kærasta sem byggi í Kólumbíu.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 30. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera fæddur og uppalinn í Antioquia-fylki og hafa búið í Medellín í Antioquia-fylki áður en hann fór frá heimaríki þann 15. mars 2024. Kærandi kvaðst hafa rekið litla verslun. Aðspurður um hvort kærandi tilheyrði minnihlutahóp kvaðst kærandi tilheyra hinsegin samfélaginu. Kærandi kvað líkamlega heilsu sína vera góða en andlega heilsu ekki góða vegna upplifunar sinnar í heimaríki. Kærandi kvaðst ekki hafa fengið greiningu þar sem hann væri að bíða eftir tíma hjá sálfræðingi. Kærandi hafi ekki leitað til sálfræðings í heimaríki þar sem það væri svo dýrt.
Kærandi kvaðst hafa flúið frá heimaríki vegna ofsókna glæpagengis sem hafi beint spjótum sínum að honum vegna kynhneigðar hans. Kærandi kvað vandamál sín hafa byrjað í desember 2023 þegar óþekktur aðili hafi séð hann kyssa kærasta sinn þann 7. desember fyrir utan verslun kæranda en maðurinn hafi komið til þeirra og sagt að menn eins og þá ætti að drepa. Kærandi hafi svo komist að því að umræddur maður væri meðlimur glæpahópsins La Oficina. Í kjölfarið hafi meðlimir hópsins lagt leið sína í verslun kæranda til að fjárkúga hann. Kærandi hafi greitt þeim í einhver skipti en upphæðirnar hafi hækkað og þegar kærandi hafi ekki getað staðið undir greiðslum hafi hótanirnar orðið meiri. Fyrsta skiptið hafi verið 8. desember og hann hafi þá verið krafinn um eina milljón pesóa í verndargjald og honum veittur frestur til 15. desember til þess að greiða. Þann 15. desember hafi þeir komið aftur og veitt honum frest til 24. desember. Þeir hafi komið aftur 24. desember en kærandi ekki viljað borga en þeir þá heimtað allan peninginn úr kassanum. Glæpamennirnir hafi sagst ætla að koma aftur 30. desember og að þeir vildu þrjár milljónir pesóa. Kærandi og kærasti hans hafi ekki getað aflað þeirrar upphæðar og hótanirnar hafi orðið alvarlegri. Þann 12. janúar hafi kærasta kæranda verið veitt eftirför á mótorhjóli sínu þar til hann hafi fallið af hjólinu. Glæpamennirnir hafi sagt honum að þeir vildu fá peninginn fyrir 15. janúar. Þegar glæpamennirnir hafi komið að innheimta hafi kærandi og kærasti hans sagst ekki eiga svo mikinn pening og sagst ætla að fara til lögreglunnar ef þeir yrðu ekki látnir í friði. Glæpamennirnir hafi þá hótað þeim að þeir vissu allt um þá og ef þeir færu til lögreglunnar myndu þeir drepa alla í fjölskyldu þeirra. Kærandi kvaðst ekki hafa vitað nöfn glæpamannanna og því ekki getað leitað til lögreglunnar. Kærandi hafi lokað verslun sinni í nokkra daga og hann og kærasti hans hafi farið til tengdamóður kæranda. Þegar þeir hafi snúið aftur á heimili sitt hafi glæpamennirnir komið aftur og viljað pening. Kærandi hafi neitað en þeir hafi haldið áfram að hóta þeim. Kærandi kvað glæpamennina hafa verið vopnaða og ýtt við kæranda og kærasta hans þegar þeir hafi komið inn á heimili þeirra. Þann 30. janúar hafi þeir fundið veggjakrot á hurðinni á heimili þeirra og á verslun kæranda með niðrandi orðum um samkynhneigða. Kærandi og kærasti hans hafi þá flutt til tengdamóður kæranda og skipulagt flutning sinn frá Kólumbíu en þar sem þeir hafi aðeins haft efni á einum flugmiða hafi þeir ákveðið að kærasti kæranda yrði eftir fyrst um sinn þar sem hann væri í góðu starfi í banka. Þann 13. mars 2024 hafi kæranda borist hótunarskilaboð á tilgreindu samskiptaforriti þar sem fram koma myndir af honum og kærasta hans að kyssast og þeim hótað lífláti. Þann 15. mars 2024 hafi menn komið með byssur inn á heimili þeirra og hótað þeim en kærandi hafði komið upp myndbandsupptökuvél á heimili sínu. Aðspurður hvort kærasta hans hafi borist hótanir eftir að kærandi fór frá landinu svaraði kærandi játandi, móðir kæranda búi í sama íbúðahúsi og þeir hafi búið í og hafi menn komið til hennar og haft uppi hótanir í þeirra garð. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa leitað til lögreglunnar eftir aðstoð eða vernd vegna hótana glæpamannanna. Hann kvaðst óttast að eitthvað kæmi fyrir fjölskyldu hans ef hann gerði það. Þá myndi lögreglan ekki aðhafast neitt ef hann leitaði til hennar auk þess sem lögreglan væri með tengingar við glæpahópana. Kærandi kvað fjölskyldu sína vera í hættu og kvaðst telja líf sitt vera í hættu sneri hann til baka. Kærandi kvað glæpagengin vera með ítök um allt land og því væri hann hvergi óhultur.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frests sem honum hafði verið veittur yrði endurkomubann hans fellt niður. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 13. september 2024 og kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum 27. september 2024. Frekari gögn bárust kærunefnd þann 2. október 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er um málsatvik vísað til fyrirliggjandi gagna málsins.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna, m.a. um stöðu hinsegin fólks í Kólumbíu, og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Kólumbíu mótmælt.
Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna aðildar hans að þjóðfélagshópi sem samkynhneigður karlmaður. Vísað er til þess að kærandi hafi orðið fyrir margþættu ofbeldi og hótunum sem varði meðal annars líf hans, af hálfu glæpasamtakanna La oficina de Envigado. Vísað er til umfjöllunar á vefsíðu InsightCrime um samtökin og ofsóknir þeirra í garð hinsegin fólks. Þá er vísað til þess að hinsegin einstaklingar í Kólumbíu hafi vakið athygli á ofsóknum af hálfu glæpasamtakanna vegna kynhneigðar og mannréttindabaráttu þeirra. Gerð er athugasemd við að Útlendingastofnun hafi komist að þeirri niðurstöðu að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn sem styðji staðhæfingu hans að yfirvöld í Kólumbíu geti ekki og vilji ekki veita honum aðstoð. Í því sambandi er vísað til skýrslu EUAA frá desember 2022 en þar komi fram að refsileysi viðgangist vegna glæpa gegn hinsegin fólki þrátt fyrir að löggjöfin mæli fyrir um annað.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefst kærandi þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi er vísað til þess að öryggisaðstæður hinsegin einstaklinga í Kólumbíu séu slæmar, til að mynda mæli utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna gegn því að hinsegin fólk heimsæki landið yfir höfuð. Áréttað er að taka beri mið af einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda, með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. útlendingalaga.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi er vísað til þess að staða kæranda sem samkynhneigður einstaklingur sé afar viðkvæm þó að hann eigi fjölskyldumeðlimi í heimaríki. Staða hans geri hann sérstaklega útsettan fyrir að verða fyrir ofbeldi og annarskonar meðferð sem jafngildi ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, hvar sem hann yrði niðurkominn í landinu. Kærandi byggir á því að hann yrði félagslega og efnahagslega jaðarsettur í landinu. Einnig er á því byggt að ekki sé hægt að ganga út frá því að framsækin löggjöf hvað varðar réttindi hinsegin fólks feli í sér raunhæfa vernd. Því sé ekki raunhæft að ætla að kærandi geti leitað verndar til yfirvalda vegna þeirra ofsóknar sem hann óttast.
Þá byggir kærandi á því að með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Alþjóðleg vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
4.2 Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé kólumbískur ríkisborgari.
4.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
· 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
· 2023 Country Reports on Human Rights Practices - Colombia (US Department of State, 22. apríl 2024);
· 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (US Department of Sate, 12. ágúst 2025)
· ACLED Dashboard, skráð atvik í Kólumbíu frá 1. apríl 2023 – 28. október 2024;
· ACLED Explorer, skráð atvik í Kólumbíu frá 20. ágúst 2024 – 21. ágúst 2025 (https://acleddata.com/platform/explorer);
· Almost half of the human rights defenders killed last year were in Colombia (Guardian, 4. apríl 2023);
· Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
· Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
· Annual Report 2024 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2025);
· Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
· Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
· BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
· BTI 2024 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, mars 2024);
· Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
· Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
· Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
· Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
· Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
· Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
· Colombia, Cundinamarca (ACLED Dashboard, 3. mars 2023);
· Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and
· State Protection (mars, 2020);
· Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
· Colombian activist killings hit record high in 2022: Ombudsman (Al Jazeera, 23. janúar 2023);
· Columbia and ELN rebels extend ceasefire by six months, agree to set up fund (Reuters, 6. febrúar 2024);
· The Colombia Collaborative Project: Stress, health and wellbeing of LGBT people in Colombia (UCLA School of Law, apríl 2020);
· Colombia: Urgent Updates October 2024 (WOLA, Advocacy for Human Rights in the Americas, 17. október 2024);
· Colombia. Social Institutions and Gender Index 2023 (Organization for Economic Co-operation and Development, 26. ágúst 2024);
· Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
· Colombia struggles to keep social leaders safe (y News, 13. janúar 2021);
· Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 17. janúar 2025);
· Colombia Country Security Report (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 24. febrúar 2025);
· Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
· Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
· Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
· Freedom in the World 2024 – Colombia (Freedom House, 2024);
· Freedom in the World 2025 – Colombia (Freedom House, 2025);
· Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 18. apríl 2025);
· GameChangers 2023; Unintended Consequences for Colombia’s ‘Total Peace’ (Insight Crime, 29. desember 2023);
· Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
· Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
· Gender, Sexuality and Gender Based Violence (Human Rights Watch, 2021);
· International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
· ISSA Country profiles – Colombia (The International Social Security Association, 1. janúar 2023);
· Latin America and the Caribbean – September 2024 (Acled Data, 4. október 2024);
· Latin America and the Caribbean Overview: August 2024 (ACLED, 6. september 2024);
· LGBT Rights in Colombia (Equaldex, https://www.equaldex.com/region/colombia, síðast skoðað 21. ágúst 2025);
· Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
· Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
· Mental Health ATLAS 2020. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 15. apríl 2020);
· More than 60 LGBT, intersex people killed in Colombia in the first eight months of 2020 (Reuters, 11. mars. 2020);
· National Liberation Army (ELN) (InSight Crime, 18. júní 2024);
· Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
· Public Statement by Chair of Working Group on Children and Armed Conflict (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 9. september 2024);
· Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 12. júlí 2024);
· Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 14. febrúar 2024);
· Resolution 2573(2023) (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 11. janúar 2023);
· Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
· The Situation of Women Social Leaders and Human Rights Defenders after the Peace Deal in Colombia (FOKUS, 9. febrúar 2021);
· The State of the World´s Human Rights; Columbia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
· The State of the World’s Human Rights; Colombia 2024 (Amnesty International, 29. apríl 2025);
· Systemic crimes committed Against LGBT people in the Colonian Armed Conflict (Colombia Diversa, júlí 2020);
· The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 6. ágúst 2025);
· How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
· UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
· United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
· Why Are Rights Activists Being Targeted in Colombia? (The Dialogue, 8. febrúar 2023);
· World Report 2023 – Colombia Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
· World Report 2024 – Colombia Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
· World Report 2025 – Colombia Events of 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2025);
· Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
· Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
· Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, síðast sótt 26. september 2024);
· Upplýsingar af vefsíðu International Citizens Insurance (Overview of Colombia Healthcare System International Insurance, síðast sótt 26. september 2024) og
· Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).
Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar og ill meðferð af hálfu öryggissveita ríkisins og vopnahópa, víðtæk spilling innan ríkisstofnana, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu auk ofbeldis gegn minnihlutahópa s.s á grundvelli uppruna, kynhneigðar og kynvitundar. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.
Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2025 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í febrúar 2024 greindi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) frá því að um 63 þúsund manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín og um 88 þúsund manns hafi verið innilokuð sökum hótana og vopnaðra átaka sem sé svipaður fjöldi og árið 2022.
Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.
Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 31. janúar 2024 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin tilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundin. Samkvæmt fréttum á veraldarvefnum hafi vopnahléinu átt að ljúka 29. janúar 2024. Hinn 23. janúar 2024 hafi sjötta umræða friðarviðræðna hafist í Havana á Kúbu og vonast hafi verið til þess að ná samkomulagi um að framlengja vopnahléið auk annarra atriða sem stuðla eigi að friði í Kólumbíu. Í yfirlýsingu frá ELN, dags. 20. febrúar 2024, sögðu samtökin forseta Kólumbíu ekki hafa staðið við gefin loforð og því væru sjöttu viðræðurnar „frystar“ þangað til að loforðin yrðu efnd. Hafi þetta sett friðarviðræðurnar í uppnám og óvíst hafi verið með framhaldið. Í nýlegum fréttaheimildum kemur fram að í febrúar 2024 hafi kólumbísk yfirvöld og ELN tilkynnt um framlengingu vopnahlés til sex mánaða frá 6. febrúar 2024. Í skýrslu Freedom House frá árinu 2025 kemur fram að ríkisstjórn Petro hafi haldið áfram vinnu sinni við áætlun sína um algjöran frið (e. Total Peace) með ýmsum aðgerðum. Dregið hafi verulega úr skærum á milli vopnahópa og öryggissveita ríkisins árið 2024. Í skýrslu nefndar Ameríkuríkja um mannréttindi (e. Inter-American Commission on Human rights) fyrir árið 2024 kemur fram að stjórnvöld hafi ráðist í ýmsar aðgerðir til þess að styrkja lýðræðið og efla öryggi borgaranna. Liður í því hafi verið að víkka aðgerðir innan áætlunarinnar um algjöran frið og ná fleiri hópum að samningaborðinu. En ýmsar áskoranir hafi þó dregið úr árangri þessara aðgerða. Til að mynda hafi síðustu viðræðum við ELN lokið á þá leið að ekki hafi náðst nema að takmörkuðu leyti að semja um áframhaldandi vopnahlé sem hafi leitt til aukins ofbeldis á ákveðnum svæðum. Árangur hafi þó náðst í viðræðum við önnur glæpasamtök í landinu og dregið hafi úr glæpa- og morðtíðni á þeim svæðum, s.s. í Medellín, Valle de Aburrá, Quibdó og Buenaventura.
Samkvæmt upplýsingum af síðu InSight Crime um ELN hafi þau upphaflega verið stofnuð á sjöunda áratugnum sem þjóðernishreyfing undir áhrifum frá kúbversku byltingunni og séu samtökin síðasti stóri uppreisnarhópurinn í Kólumbíu. Samtökin séu með starfsemi bæði í Kólumbíu og Venesúela og hafi stundað mannrán, fjárkúganir, ólöglega námuvinnslu og fíkniefnaviðskipti. Hin síðari ár hafi hópurinn eflst og stækkað yfirráðasvæði sín m.a. inn fyrir landamæri Venesúela. Þrátt fyrir að friðarviðræður við kólumbísk stjórnvöld hafi mjakast áfram séu innri klofningur og andstaða við afvopnun innan samtakanna gríðarleg áskorun. ELN hafi aukið starfsemi sína á svæðum þar sem kólumbísk stjórnvöld séu veikari fyrir auk þess að vinna í samstarfi við venesúelsk stjórnvöld innan landamæra Venesúela. Þá hafi samtökin starfsemi víða í Kólumbíu en séu öflugust í fylkjunum Chocó, Norte de Santander og Arauca.
Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu hafi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengt umboð verkefnis til 31. október 2023 varðandi framfylgni samningsins um uppbyggingu á dreifbýlli svæðum og málefni þjóðernishópa. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 komi fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð Framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að fjöldi kólumbískra og alþjóðlegra mannréttindahópa starfi án takmarkana stjórnvalda, rannsaki og birti niðurstöður um mannréttindamál. Þá séu embættismenn yfirleitt samvinnuþýðir og reiðubúnir að hlusta á áhyggjur staðbundinna mannréttindasamtaka. Nokkur frjáls félagasamtök hafi fengið hótanir en ríkisstjórnin fordæmi hótanirnar og skori á dómsmálaráðherra að rannsaka þau. Í sumum tilvikum hafi aðgerðarsinnum þótt viðbrögð stjórnvalda hæg og lítil. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust til slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.
Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í.
Í Kólumbíu eru til staðar lög sem eiga að tryggja jafnrétti og bann við mismunun en í desember 2011 voru lög gegn mismunun á grundvelli þjóðernis, kynferðis eða kynhneigðar samþykkt. Við gerð friðarsamkomulagsins FARC var sérstaklega fjallað um ofbeldi sem beinst hafði að hinsegin einstaklingum og kveðið á um sérstakar bætur og aðgerðir til þess að koma til móts við þann hóp við framkvæmd samkomulagsins. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að tilkynnt hafi verið um ofbeldi og kynferðisofbeldi gegn hinsegin fólki. Samkvæmt frjálsu félagasamtökunum Colombia Diversa hafi 23 morð verið framin á hinsegin einstaklingum frá 1. janúar til 10. September 2023, þar af hafi verið 12 samkynhneigðir karlar, sex transkonur, þrjár samkynhneigðar konur, einn transmaður og einn kynsegin einstaklingur. Mikið refsileysi hafi viðgengist vegna glæpa gegn hinsegin fólki, sérstaklega gegn transfólki. Í skýrslu EUAA frá desember 2022 kemur fram að refsileysi viðgangist vegna glæpa gegn hinsegin fólki, þrátt fyrir að löggjöfin mæli fyrir um annað. Í skýrslunni kemur fram að hinsegin fólk sé skotmörk vegna fordóma. Árið 2022 hafi 4.971 einstaklingar, sem skilgreina sig sem hinsegin, orðið fyrir ofbeldi, einkum í fylkjunum Antioquia, Nariño, Bolívar, Valle del Cauca og Chocó. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram Kólumbísk yfirvöld hafi sett sér aðgerðaráætlun fyrir árin 2019-2022 um réttindi hinsegin fólks og unnið að því að framfylgja henni. Aðgerðaráætlunin hafi miðað að því að tryggja réttindi hinsegin fólks, m.a. borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, ásamt því að efla menntakerfið, lýðræðislega þátttöku, heilbrigðisþjónustu, atvinnu- og húsnæðismarkaðinn og styðja við íþróttaiðkun og þátttöku í menningarstarfi. Í október árið 2019 sigraði Claudia López kosningar um borgarstjórastólinn í Bógóta og varð þar með fyrsta konan og fyrsti opinberlega hinsegin einstaklingurinn til að vera kjörin í það embætti. Þá hafi stjórnlagadómstóll í landinu samþykkt í ágúst 2020 að ríkið skuli bera kostnað af kynleiðréttingaraðgerðum. Í skýrslu nefndar Ameríkuríkja um mannréttindi fyrir árið 2024 kemur fram að stjórnvöld hafi það ár hrundið af stað aðgerðum til þess að tryggja réttindi hinsegin einstaklinga. Stofnaður hafi verið sérhæfður hópur sem ætlað sé að rannsaka glæpi sem byggist á fordómum, með fókus sérstaklega á morð, kvenmorð, mismunun og áreiti. Landlæknir hafi gefið út sérstakar leiðbeiningar til þess að tryggja fullnægjandi heilbrigðisþjónustu fyrir transfólk. Þá hafi þingið samþykkt lög sem banni bælingarmeðferð (e. Conversion therapy) og lög um réttindi transfólks. Fyrri lögin hafi þó verið sett á bið og því ekki komist til framkvæmdar. Í höfuðborg landsins Bógóta hafi borgarráð samþykkt drög að samkomulagi til að tryggja réttindi hinsegin barna og ungmenna í skólastofnunum. Af upplýsingum á heimasíðunni Equalindex má ráða að viðhorf í garð hinsegin einstaklinga hafi farið batnandi á síðustu árum og séu viðhorf almennings jákvæðara í garð hópsins, s.s. hvað varðar samkynjahjónabönd, barneignir og ættleiðingar, en hafði verið árið 2022. Í framangreindum heimildum kemur fram að þrátt fyrir aðgerðir til að auka réttindi og vernd hinsegin fólks hafi verið tilkynnt um ofbeldi og mismunun auk kynferðisofbeldis. Kvartanir hafi verið lagðar fram vegna framgöngu öryggissveita í þessum málum og varðandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Í skýrslu mannréttindaráðs Ameríkuríkja kemur fram að skrifstofa umboðsmanns hafi skráð 286 mál um ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum frá janúar til maí 2024 og að samkvæmt frjálsum félagasamtökum hafi að minnsta kosti 28 trans einstaklingar verið myrtir árið 2024.
Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 9,6% árið 2024 en hafði verið 10,5% árið 2022. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) ber ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum hefur heilbrigðiskerfið í Kólumbíu verið með þeim bestu í heiminum og samkvæmt skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) frá árinu 2000 var Kólumbía þá í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu sé opinbert sjúkratryggingarkerfi (s. Entidades Promotoras de Salud (EPS)). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013 og sérstök aðgerðaráætlun um geðheilbrigðismál frá árinu 2018. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli.
4.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna ofsókna glæpamanna sem hafi beint spjótum sínum að honum vegna kynhneigðar hans.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa orðið skotmark glæpagengis eftir að meðlimur gengisins hafi séð hann og kærasta hans deila kossi. Greindi kærandi frá því að hafa í allt að 10 skipti orðið fyrir beinum hótunum og einni árás af hálfu glæpamanna í genginu La Oficina á tímabilinu desember 2023 til mars 2024. Meðlimir glæpahópsins hafi í a.m.k. fjögur skipti lagt leið sína í verslun kæranda til að fjárkúga hann. Kærandi hafi greitt þeim í einhver skipti en upphæðirnar hafi hækkað og þegar kærandi hafi ekki getað staðið undir greiðslum hafi hótanirnar orðið meiri. Hótanirnar hafi orðið alvarlegri og beinst að lífi og limum kæranda og fjölskyldu hans. Kærasta kæranda hafi verið veitt eftirför á mótorhjóli sínu þar til hann féll af hjólinu. Kærandi hafi lokað verslun sinni í nokkra daga og hann og kærasti hans farið til tengdamóður kæranda en borist hótanir á ný eftir að hafa snúið til baka. Glæpamennirnir hafi mætt tvisvar vopnaðir á heimili kæranda og einnig skilið eftir veggjakrot á hurðinni á heimili kæranda og á verslun kæranda með niðrandi orðum um samkynhneigða. Þá hafi kæranda borist hótunarskilaboð á tilgreindu samskiptaforriti þar sem fram koma myndir af honum og kærasta hans kyssast og þeim hótað lífláti.
Við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ýmis gögn. Kærandi lagði m.a. fram myndbandsupptöku þar sem sjá má kæranda, kærasta hans og óþekkta konu inn á heimili. Bankað er á hurðina og konan opnar en þá æða inn tveir vopnaðir einstaklingar með mótorhjólahjálma og hafa í hótunum við mennina. Hinir vopnuðu menn segja að kærandi og kærasti hans hafi 24 klukkustundir til að fara eftir fyrirmælum þeirra annars muni þeir koma aftur og skjóta kæranda og kærasta hans. Einnig lagði kærandi fram skjáskot af ódagsettum skilaboðum, en þar má sjá þrjár myndir af tveimur karlmönnum kyssast, sem af samhenginu má ætla að séu kærandi og kærasti hans, annar maðurinn er á mótorhjóli og hinn stendur við hlið hans. Meðfylgjandi myndunum eru skilaboð þar sem kæranda og kærasta hans er hótað lífláti. Þá lagði kærandi fram tvær myndir af veggjakroti þar sem haft er í hótunum, á annarri myndinni eru orðin „[…]“ á hurð og á hinni má sjá orðin „[…]“ á því er virðist vera gluggahlerar við verslun. Þá lagði kærandi fram tvo hlekki á fréttir um hinsegin fólk í Kólumbíu.
Á kærustigi lagði kærandi fram afrit af yfirlýsingu nafngreindrar frænku kæranda. Yfirlýsingin er undirrituð og dagsett 1. október 2024. Þar kemur m.a. fram að umrædd frænka hafi orðið vitni að hatri og ofbeldi sem hafi beinst að kæranda og ógnað líf hans og fjölskyldu hans, þar á meðal lífi hennar sjálfrar. Kærandi lagði einnig fram afrit af yfirlýsingu kærasta kæranda. Yfirlýsingin er undirrituð og dagsett 30. september 2024. Þar kemur fram að hann og kærandi hafi orðið fyrir ítrekuðum ofsóknum vegna kynhneigðar sinnar. Í yfirlýsingunni rekur hann þá atburðarrás sem kærandi greindi frá að hefði hafist í desember 2023. Fram kemur að ofsóknir í garð kæranda hafi stigmagnast, glæpamennirnir hafi hótað að drepa kæranda og sagt að búið væri að gefa „grænt ljós“ á hann, sem þýddi að búið væri að gefa út leyfi til að meiða eða myrða manneskju. Kærandi hafi því falið sig á heimili kærastans. Í mars hafi glæpamennirnir komið á heimili kæranda, þegar kærandi og kærasti hans hafi verið þar, ráðist á þá og gefið þeim afarkosti, annað hvort myndi kærandi fara eða þeir myndu drepa hann. Er frásögnin í samræmi við frásögn kæranda í viðtali. Í yfirlýsingunni kemur enn fremur fram að kærasti kæranda hafi leitað til lögreglu eftir að hafa verið eltur á mótorhjóli með þeim afleiðingum að hann hafi fallið af hjólinu. Lögreglan hafi hins vegar ekkert aðhafst heldur látið árásarmennina vita. Þann 3. febrúar 2024 hafi árásarmennirnir nálgast kæranda og barið hann og látið hann vita að það væri vegna þess að kærasti hans hafi leitað til lögreglu. Loks lagði kærandi fram afrit af yfirlýsingu kólumbískra mannréttindasamtaka í Medellín að nafni Territorio Mestizo. Yfirlýsingin er undirrituð af nafngreindum fulltrúa samtakanna og er dagsett 29. september 2024. Fram kemur að kærandi hafi leitað stuðnings hjá samtökunum í desember 2023. Í yfirlýsingunni er greint frá því að samtökin hafi skrásett atvik sem kærandi hafi orðið fyrir í desember 2023 og janúar til mars 2024. Umrædd atburðarrás er í samræmi við frásögn kæranda og yfirlýsingu kærasta kæranda.
Samkvæmt vef Insight Crime er glæpagengið Oficina de Envigado mafíusamband sem stjórni nánast allri glæpastarfsemi í Medellín en gengið hafi þróast út frá innheimtufyrirtæki fyrir Pablo Escobar. Gengið sé bandalag meðalstórra glæpasamtaka sem þjónusti alþjóðlega eiturlyfjasmyglara og aðra mafíuelítu og noti bandalög við glæpagengi til að stjórna yfirráðasvæðum og glæpastarfsemi í Medellín. Um sé að ræða flókið net þjónustuaðila og undirverktaka sem taki þátt í öllu frá peningaþvætti og alþjóðlegum kókaínviðskiptum til götusölu eiturlyfja og örfjárkúgunar. Þá kemur fram að stjórnvöld í Kólumbíu hafi ráðist í aðgerðir gegn glæpagenginu og í gegnum árin handtekið höfuðpaura þess. Yfirvöld hafi öðlast góða innsýn í starfsemi gengisins eftir að nokkrir leiðtogar þess hafi gefið sig fram hjá bandarískum yfirvöldum. Þessar upplýsingar hafi gert kólumbískum yfirvöldum kleift að handtaka leiðtoga gengisins sem hafi þó ekki haft veruleg áhrif á starfsemi samtakanna.
Af hálfu kærunefndar útlendingamála er ekki talin ástæða til annars en að leggja frásögn kæranda til grundvallar við úrlausn málsins. Þá hefur kærandi lagt fram gögn sem styðja við frásögn hans um að hann hafi mátt þola hótanir og áreiti af hálfu glæpagengja á heimasvæði hans. Skýrslur og gögn um Kólumbíu sem kærunefnd hefur yfirfarið bera það með sér að slíkt áreiti og ofbeldi tíðkist víða í landinu og að ítök glæpahópa séu á mörgum svæðum sterk. Kærandi hefur greint frá því að hann hafi ekki leitað til lögreglu eftir aðstoð því hann óttaðist að eitthvað kæmi fyrir fjölskyldu hans ef hann gerði það. Í yfirlýsingu kærasta kæranda kemur fram að kærasti kæranda hafi leitað til lögreglu vegna áreitis sem hann varð fyrir en að lögreglan hafi ekkert aðhafst í málinu heldur látið gerendurnar vita af kvörtuninni til lögreglu. Ekki hafa verið lögð fram gögn sem styðja þá frásögn. Skýrslur og önnur gögn benda til þess að ofbeldi á grundvelli kyns og kynhneigðar af hendi glæpagengja sé útbreitt vandamál í Kólumbíu. Í framangreindum skýrslum og landaupplýsingum kemur fram að samkynhneigðir verði fyrir nokkurri mismunun í heimaríki kæranda s.s. hvað varðar aðgengi að heilbrigðisþjónustu, atvinnu og húsnæði. Með vísan til kynhneigðar kæranda og fyrirliggjandi gagna sem beinast að kæranda og hótunum glæpagengja í hans garð, er það mat kærunefndar að kærandi tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi sem eigi á hættu meðferð af hálfu glæpahópa sem fallið geti undir 37. gr. laga um útlendinga.
Aftur á móti hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem sýna fram á að yfirvöld hafi ekki vilja til eða getu til að veita honum vernd. Þá verður ekki ráðið af framburði kæranda að hann hafi leitað annarra úrræða sem standi honum til boða í heimaríki, t.a.m. umboðsmanns sem hefur það hlutverk að taka við kvörtunum frá einstaklingum og ber m.a. ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum. Það er mat kærunefndar að á öruggari svæðum í Kólumbíu, þ. á m. Medellín þar sem kærandi kveðst hafa haft búsetu áður en hann yfirgaf heimaríki sitt, geti yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi íbúa. Heimildir benda ekki til þess að ítök og áhrif glæpahópa, líkt og Oficina de Envigado, séu slík í Medellín að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda. Þau gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda til þess að Medellín sé talsvert öruggara svæði en önnur í landinu og að lög í heimaríki kæranda kveði á um bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og stjórnvöld hafi almennt framfylgt þeim lögum. Þá séu jafnframt til staðar frjáls félagasamtök, m.a. Colombia Diversa, sem vinni að réttindum hinsegin einstaklinga í landinu. Er það mat kærunefndar að yfirvöld í heimaríki kæranda séu fær um að veita honum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna. Getur kærandi því leitað til lögreglu telji hann tilefni til þess.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
4.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann eigi á hættu ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í heimaríki vegna slæms öryggisástands samkynhneigðra einstaklinga í landinu.
Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að verða beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið í Medellín, hvar kærandi kvaðst síðast hafa verið búsettur, er það mat kærunefndar að hann eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til Kólumbíu. Lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu að öllu jöfnu öflug og fagleg. Þá hafi kólumbískar öryggissveitir tekið skref í þá átt að rannsaka, ákæra og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot. Jafnframt hafi stjórnvöld gripið til aðgerða til að bæta stöðu hinsegin einstaklinga, m.a. með því að lögfesta bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og með vitundarvakningarherferðum um réttindi hinsegin einstaklinga.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
4.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á hann ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
5 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
5.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
5.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki er það niðurstaða kærunefndar að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái ekki því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera við góða líkamlega heilsu. Aðspurður um andlega heilsu kvað kærandi að andleg heilsa hans væri ekki svo góð vegna vandamála hans í heimaríki.
Af framburði kæranda verður ekki ráðið að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur því ekki verið sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi byggir á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki. Kærandi hafi mátt þola ofbeldi og hótanir á grundvelli kynhneigðar m.a. af hálfu glæpahópsins La Oficina. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu telur kærunefnd að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda, geti yfirvöld almennt veitt borgurunum vernd. Í framangreindum skýrslum kemur fram að tilfelli áreitis og ofbeldis gagnvart einstaklingum vegna kynhneigðar og kynvitundar hafi verið skráð í Kólumbíu. Þá kemur fram að mismunun og fordómar séu til staðar í landinu. Hins vegar benda framangreindar skýrslur og gögn til þess að stjórnvöld verndi almennt borgara sína og til staðar sé kerfi sem veiti einstaklingum sem telja að brotið hafi verið á rétti sínum, aðstoð. Einnig eru ýmis frjáls félagasamtök starfandi í heimaríki kæranda, þau stærstu Colombia Diversa, sem berjast fyrir réttindum hinsegin fólks og veita þeim ýmis konar aðstoð í daglegu lífi. Kærandi hefur greint frá því að hafa starfað sem verslunareigandi í heimaríki. Kærandi er ungur og hraustur karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sér. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga m.a. maka, móður og systkini í heimaríki. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki lýst aðstæðum sem gefa til kynna að hann sé í slíkri stöðu að tilefni sé til að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærunefnd telur að félagslegar aðstæður kæranda við endurkomu séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli félagslegra aðstæðna.
Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því eru aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
5.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótt um alþjóðlega vernd 28. mars 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
6 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
6.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
7 Brottvísun og endurkomubann
7.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
7.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða kæranda endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa tengsl við önnur ríki innan Schengen-svæðisins en taldi brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarnar ráðstafanir.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kæranda og endurkomubann kæranda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi hann landið innan framangreinds frests.
8 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, his re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdótti