05 september 2025
/
Þrjú söfn sameinast í eitt
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur kynnt áform um sameiningu Hljóðbókasafns Íslands, Kvikmyndasafns Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Sameiningin byggir á frumathugunum sem sýna fram á faglegan ávinning og betri nýtingu opinberra fjármuna. Samantekt á hagræðingum innan menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytisins verður kynnt síðar í dag.
Við sameininguna verða Hljóðbókasafnið og Kvikmyndasafnið að sérstökum einingum innan Landsbókasafns. Sameining mun leysa yfirvofandi húsnæðisvanda Hljóðbókasafnsins auk þess sem núverandi húsnæði Kvikmyndasafns Íslands í Hafnarfirði hentar betur til varðveislu en rannsókna og miðlunar.
Markmið sameiningarinnar eru meðal annars :
- Að gera starfsemi safnanna skilvirkari og styrkja faglega starfsemi
- Að stuðla að hagkvæmni í rekstri og betri nýtingu innviða og stoðþjónustu
- Að auka aðgengi almennings að menningararfi þjóðarinnar
- Að efla miðlunarhlutverk sameinaðrar stofnunar á fjölbreyttan og nútímalegan hátt
- Að bjóða upp á fyrsta flokks aðstöðu fyrir fræðimenn til að rannsaka menningararf þjóðarinnar á fjölbreyttu formi, allt frá handritum til tónlistar og kvikmyndaefnis
- Að Þjóðarbókhlaðan verði kraftmikið samfélagsrými þar sem nálgast megi fræðslu, upplifanir og innblástur
Frumvarp væntanlegt í haust
Þjónusta og staðsetning safnanna helst óbreytt fram að formlegri sameiningu en ráðgert er að hún gangi í gegn seinni hluta ársins 2026. Nánari upplýsingar um sameiningu verða kynntar notendum sérstaklega þegar nær dregur. Starfsmönnum safnanna hefur verið greint frá sameiningartillögunni og verður undirbúningur sameiningarinnar unninn í virku samtali við þá.
Sameining safnanna þriggja kallar á lagabreytingu og er frumvarp þar að lútandi væntanlegt í vetur. Forstöðumenn safnanna þriggja, Marín Hrafnsdóttir, Þóra Sigríður Ingólfsdóttir og Örn Hrafnkelsson, sitja í tveimur starfshópum sem nú ráðast í gerð samrunaáætlunar, skilgreina og framfylgja verk-, tíma- og kostnaðaráætlun og vinna að lausn annarra úrlausnarefna.
Efla þjónustu við notendur safnanna
Hljóðbókasafnið veitir notendum sínum bókasafnsþjónustu og verður þjónusta safnsins áfram einungis opin notendum sem eiga rétt á henni lögum samkvæmt. Leiðarstef vinnunnar hefur verið að þjónusta safnsins við sinn notendahóp minnki ekki heldur þróist og eflist samhliða tækniþróun og sterkari innviðum. Þannig verður staðinn vörður um þá mikilvægu þjónustu sem Hljóðbókasafnið veitir, með vísan til lögbundinnar þjónustu safnsins og samnings Sameinuðu þjóðanna um fatlað fólk.
Samráðshópur, skipaður fulltrúum hinna ýmsu hagaðila, mun hafa það hlutverk að halda á lofti sjónarmiðum notenda Hljóðbókasafnsins í sameiningarvinnunni sem fram undan er. Þá verða aðgengismál í fyrirrúmi, ekki aðeins í húsnæði Landsbókasafnsins heldur er jafnframt horft til þess að þjónusta Hljóðbókasafnsins verði aðgengileg á tilteknum tímum í húsnæði Blindrafélagsins við Hamrahlíð.
„Það er ósk mín að Landsbókasafn Íslands verði enn öflugri og þar skapist spennandi samfélagsrými þar sem nálgast megi fræðslu, þjónustu og innblástur. Sameinuð stofnun mun geyma sögu og menningararf þjóðarinnar í ólíkum birtingarmyndum, allt frá handritum yfir í hljóð- og myndefni,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Hann segist horfa til þess að sameining safnanna geti orðið fyrirmynd að sameiningum þar sem einingar haldi sérstöðu sinni en njóti þess styrks sem fylgir stærri rekstrareiningum.
„Ég er vongóður um að þessi sameining gangi vel. Ferlið hingað til hefur verið farsælt og fram undan er áframhaldandi vinna í tengslum við hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar, þar sem meðal annars stendur til að sameina fleiri stofnanir ráðuneytisins þar sem tækifæri eru til að bæta þjónustu og einfalda skipulag,“ segir Logi.
Aukinn kraftur í stafvæðingu
Samhliða sameiningunni verður aukinn kraftur settur í stafvæðingarátak menningararfsins, sem lengi hefur staðið fyrir dyrum. Sérhannaðar kæligeymslur Kvikmyndasafnsins verða áfram staðsettar að Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði, en vonir standa til að húsakosturinn muni m.a. nýtast fyrir sameiginlegt stafvæðingarátak menningarstofnana landsins. Metnaðarfull áform stjórnvalda um varðveislu menningararfleiðar á stafrænu formi hafa ekki komist til framkvæmda nema að litlu leyti en fyrirhugað er að kynna uppfærðar áætlanir í þeim efnum í upphafi næsta árs.
Út frá rekstrarlegu sjónarmiði er margt sem mælir með sameiningu þessara safna, en sambærileg þróun hefur átt sér stað bæði í Noregi og Danmörku. Þess utan er sameining til þess fallin að auka aðgengi jafnt almennings sem fræðimanna að safnkosti safnanna þriggja. Í sameinuðu safni verður því enn meiri sérfræðiþekking á skráningu og forvörslu efnis á fjölbreyttu formi, miðlun og sýningarstjórn. Þekkingaryfirfærsla, þvert á söfn, verður því umtalsverð auk þess sem stærri og öflugri stofnun nýtur fjölbreyttra samlegðaráhrifa svo sem í mannauðsmálum, gagnageymslu, tæknimálum og fjármálum.
Nánar um söfnin
Hljóðbókasafn Íslands
Safnið gerir efni aðgengilegt og miðlar því til fólks sem glímir við blindu, sjónskerðingu, lesblindu eða aðra prentleturshömlun. Markmið laga um safnið er að uppfylla réttindi þessara hópa fyrir hönd íslenska ríkisins. Hljóðbókasafn Íslands er til húsa að Digranesvegi 5 í Kópavogi.
Kvikmyndasafn Íslands
Meginhlutverk safnsins er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir; hafa eftirlit með skilum kvikmyndaefnis og standa fyrir sýningum á innlendri og erlendri kvikmyndalist. Jafnframt gegnir safnið því hlutverki að sjá um viðhald og endurgerðir á kvikmyndum safnsins og skapa fræðimönnum og fagmönnum aðstöðu til að stunda kvikmyndafræðilegar rannsóknir. Kvikmyndasafn Íslands er til húsa að Hvaleyrarbraut 13 í Hafnarfirði.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
Safnið er þjóðbókasafn Íslands og bókasafn Háskóla Íslands. Safnið safnar öllum íslenskum gögnum, varðveitir þau, skráir og flokkar. Safnið sinnir þjónustu við kennslu og rannsóknarstarfsemi Háskóla Íslands og heldur uppi bókasafns- og upplýsingaþjónustu í þágu atvinnuvega, stjórnsýslu og rannsókna á Íslandi. Safnið er til húsa að Arngrímsgötu 3 í Reykjavík.