08 september 2025
/
Dómsmálaráðuneytið flytur starfsemi í Skúlagötu 4
Dómsmálaráðuneytið mun flytja starfsemi sína úr Borgartúni 26 í endurnýjað húsnæði ráðuneyta við Skúlagötu 4. Frá og með fimmtudeginum 11. september tekur ráðuneytið formlega til starfa á nýjum stað.
Flutningar fara fram dagana 9. og 10. september og verður húsnæði ráðuneytisins lokað á meðan. Símsvörun verður með óbreyttum hætti í síma 545-9000.