12 september 2025
/
Nr. 694/2025 Úrskurður
Hinn
úrskurður nr.
í
stjórnsýslumáli nr.
Kæra
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Með
umsókn, dags. 9. ágúst 2024, óskaði
kærandi eftir vegabréfsáritun sem ferðamaður til Íslands og Schengen-svæðisins
fyrir 17 daga dvöl frá 24. september til 10. október 2024. Umsókn
3 Málsástæður og rök kæranda
Í kæru kvaðst kærandi m.a. ætla að taka ljósmyndir af norðurljósum á Íslandi. Hún hygðist ferðast með vinum sínum og dvelja í Reykjavík fyrstu átta dagana. Þá myndi hún fara með lest til Akureyrar þar sem hún hygðist dvelja í þrjá daga og meðal annars fara á skíði. Að því loknu hygðist kærandi fara til Kaupmannahafnar og fljúga þaðan aftur til Kína. Kærandi kvaðst hafa staðfest flugmiða báðar leiðir.
Kærandi lagði ekki fram ný gögn á kærustigi.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga
þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema
annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir
er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af
Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri,
á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga
tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til
lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr.
1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningar reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í eyðublaðinu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 11 og 12, þ.e. að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun kæranda hafi verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að flug- og hótelbókanir hafi ekki verið unnt að staðfesta. Kærandi hafi ekki lagt fram flugáætlun eða hótelpantanir með gildu tilvísunarnúmeri. Í viðtali hafi kærandi ekki veitt upplýsingar um skipulag ferðar sinnar og ekki getað lýst því. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Gögn sem sýna
fram á flug- og hótelbókun eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um
vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og viðauka 2 við
sömu reglugerð. Kemur krafa um slík gögn auk þess fram í 5. og 7. tölul.
gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði
Íslands
Að framangreindu virtu hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar auk þess sem rökstudd ástæða er til að draga í efa sannleiksgildi fylgiskjala sem kærandi lagði fram, sbr. ii. tölul. a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Er þannig ástæða til að vefengja réttmæti þeirra upplýsinga sem kærandi veitti, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María
Sigurðardóttir, varaformaður