15 september 2025
/
Ráðherra styrkti böndin á Grænlandi og fylgdist með varnaræfingu
Heimsókn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir utanríkisráðherra til Grænlands lauk í dag en hún var mikilvægur liður í samstarfi Íslands og Grænlands hvað varðar norrænt samráð um öryggis- og varnarmál. Þá átti utanríkisráðherra tvíhliða fund með Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, þar sem málefni norðurslóða, áskoranir sem svæðið stendur frammi fyrir og tækifæri til frekara samstarfs ríkjanna í ört breytilegum heimi var til umræðu.
Á Grænlandi fylgdist ráðherra auk þess með alþjóðlegu varnaræfingunni Arctic Light 2025 ásamt varnarmálaráðherrum Norðurlandanna, en þar taka þátt yfir 550 hermenn frá fjölda Atlantshafsbandalagsríkja, þar á meðal Frakklandi, Þýskalandi, Svíþjóð og Noregi. Æfingin stendur til 19. september og beinist að fjölbreyttum verkefnum á norðurslóðum, meðal annars björgun á sjó, viðbrögðum við mengunarslysum og vernd mikilvægra innviða. Markmið æfingarinnar er að efla sameiginlegt viðbragðshæfi bandalagsríkja í Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum.
Í tengslum við æfinguna funduðu ráðherrarnir um þróun öryggismála á norðurslóðum, mikilvægi þess að efla eftirlit og bæta viðbragðsgetu á svæðinu með skilvirkum hætti.
„Það er forgangsmál að rækta tengslin við Grænland, okkar góðu og kæru vinaþjóð til áratuga, og á góðum fundi með grænlenska utanríkisráðherranum ræddum við einmitt sóknarfærin í okkar nána samstarfi,“ segir Þorgerður Katrín. „Þá gafst sömuleiðis gott tækifæri í heimsókninni til að ná þýðingarmiklum samtölum við okkar nánustu granna þ.e. Dani, Grænlendinga og Norðmenn um þróun öryggismála á norðurslóðum og nauðsynlegan viðbúnað á svæðinu.“
Þá gaf heimsóknin Þorgerði Katrínu einnig tækifæri til að hitta Íslendinga í Nuuk á meðan hún dvaldi á Grænlandi.