18 september 2025

/

Guðjón Ragnar Jónasson skipaður skólameistari Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu

{image.Description}

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Guðjón Ragnar Jónasson í embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu til fimm ára frá 1. nóvember næstkomandi.

Guðjón Ragnar hefur verið framhaldsskólakennari við Menntaskólann í Reykjavík frá árinu 2009, ásamt því að vera fagstjóri og áður gæðastjóri. Hann hefur einnig starfað sem forstöðumaður við Háskólann á Bifröst ásamt því að hafa starfað m.a. sem ritstjóri og markaðs- og kynningarstjóri.

Guðjón Ragnar er með meistaragráðu í íslenskum fræðum, M.paed í kennslufræðum og B.Ed. gráðu frá Háskóla Íslands auk diplómu í menntastjórnun og matsfræðum.

Alls sóttu átta um embættið.