18 september 2025

/

Skýrsla um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2024 nú aðgengileg

{image.Description}

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, hefur lagt fram skýrslu um störf Norrænu ráðherranefndarinnar á árinu 2024. Í skýrslunni er varpað ljósi á þau mál sem voru efst á baugi í norrænu samstarfi á árinu og mál sem Ísland lagði áherslu á.  Einnig er stiklað á stóru varðandi verkefni hjá hverri ráðherranefnd fyrir sig og norrænt samstarf forsætisráðherra Norðurlanda.

Svíþjóð gegndi formennsku í samstarfinu á árinu 2024 undir yfirskriftinni: ,,Öruggari, grænni og frjálsari Norðurlönd.“ Áherslur formennskunnar voru samþætting á Norðurlöndum og aðgerðir sem auðvelda flutning yfir landamæri, auk þess að vinna áfram að framtíðarsýn norræns samstarfs um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030, með græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd að leiðarljósi (framtíðarsýn til 2030).


Áætlun um frjálsa för á Norðurlöndum


Áætlun um frjálsa för á Norðurlöndum var samþykkt á seinni hluta ársins og mun gilda fyrir tímabilið 2025-2030. Einnig var samþykkt nýtt umboð fyrir starf stjórnsýsluhindranaráðsins fyrir tímabilið 2025-2027. Afnám stjórnsýsluhindrana er mikilvægur þáttur í þeirri stefnu að gera Norðurlöndin að sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030 svo íbúar geti óhindrað ferðast, stundað nám, starfað og stundað atvinnurekstur hvar sem er á Norðurlöndum. Í þessari vinnu gegnir stjórnsýsluhindranaráðið mikilvægu hlutverki, sem skipað er einum fulltrúa frá hverju landanna, en margir aðrir innan stjórnsýslunnar þurfa einnig að koma að þessari vinnu.

,,Norræna ríkisstjórnarsamstarfið er mikilvægt og víðtækt og þar er Ísland virkur þátttakandi í að leita sameiginlegra lausna í málum sem eru til meðferðar hverju sinni. Það er samstaða og samhljómur í starfinu og það er von mín að samstarfið og afrakstur þess sem lesa má um í skýrslunni verði gagnlegt innlegg í störf okkar hérlendis,“ segir  Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda.

Löng hefð er fyrir því að skýrsla samstarfsráðherra sé unnin í samvinnu allra þeirra fagráðuneyta sem taka þátt í norrænu ríkisstjórnarsamstarfinu á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Svo var einnig að þessu sinni.  

Skýrsla Loga Einarssonar, samstarfsráðherra Norðurlanda, um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2024

Stutt samantekt skýrslunnar í þingskjali Alþingis


Um Norrænu ráðherranefndina:

Norræna ráðherranefndin er opinber samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna. Þar er unnið að sameiginlegum lausnum á þeim viðfangsefnum þar sem Norðurlöndin geta náð mestum árangri með því að vinna saman. Starf Norrænu ráðherranefndarinnar fer fram í 12 nefndum þar sem ráðherrar fagráðuneyta á Norðurlöndunum eiga með sér samstarf eftir málefnasviðum. Vinnan á sér einnig stað í nefndum embættismanna. Forsætisráðherrar Norðurlanda hafa markað framtíðarsýn fyrir norrænt samstarf til ársins 2030 um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Til að ná því markmiði er lögð áhersla á græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd.