18 september 2025

/

Úrskurður nr. 688/2025


Hinn 18. september 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 688/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020069

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 11. febrúar 2024 kærði einstaklingur sem kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. janúar 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Þýskalandi og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 15. janúar 2023. Kvaðst kærandi hafa farið frá Sómalíu til Eþíópíu í júlí 2022 þar sem hann hafi dvalið í sex mánuði. Að sögn kæranda hafi honum verið smyglað ólöglega til Frakklands, ferðast þaðan til Þýskalands þar sem hann hafi hitt einstakling sem hafi aðstoðað kæranda og útvegað honum fölsuð skilríki og farmiða til Íslands. Kærandi kvaðst ekki hafa vitað að ferðinni væri heitið til Íslands fyrr en hann hafi lent hér á landi. Að sögn kæranda hafi hann þurft að flýja heimaríki af ótta um líf sitt þar sem bróðir kæranda hafi myrt einstakling þar í landi og í kjölfarið hafi aðrir einstaklingar viljað myrða kæranda.

Kærandi kom til viðtals ásamt löglærðum talsmanni sínum hjá Útlendingastofnun 1. mars 2023 en þar sem ekki tókst að ljúka viðtalinu var því haldið áfram 3. apríl 2023. Kærandi kvaðst vera fæddur og uppalinn í Hargeisa í Sómalílandi og tilheyra Muse Dhariyo undirættbálki minnihlutaættbálksins Gabooye. Aðspurður um hvort hann hefði einhver skilríki með sér hér á landi til að sanna á sér deili kvaðst kærandi vera með skírteini í síma sínum en ekki vera með vegabréf. Kærandi hafi sótt rafmagnsverkfræðinám í Bangladess frá 2016 til 2021 og snúið aftur til heimaríkis að loknu námi. Hann hafi notað sitt eigið vegabréf til að ferðast til Bangladess sem hafi runnið út á meðan hann hafi dvalið þar í landi. Kærandi kvaðst því hafa fengið útgefið nýtt vegabréf árið 2021 sem hann hafi skilið eftir í Eþíópíu. Aðspurður af hverju hann hafi skilið vegabréf sitt eftir í Eþíópíu kvaðst kærandi hafa verið að reyna að flýja og ekki getað notað sómalíska vegabréfið sitt þar sem hann hafi ekki haft vegabréfsáritun. Að sögn kæranda hafi hann yfirgefið Hargeisa 4. júlí 2022 og farið til Addis Ababa í Eþíópíu þar sem hann hafi dvalið í fjóra mánuði. Þar hafi hann aflað sér falsaðs vegabréfs og ferðast með aðstoð smyglara til Parísar, þaðan til Þýskalands og að lokum til Íslands. Kærandi hafi talið að hann væri á leið til Írlands allt þar til hann kom úr vélinni á Keflavikurflugvelli.

Kærandi greindi frá aðstæðum sínum í heimaríki og kvaðst hafa verið atvinnulaus áður en hann hafi yfirgefið landið. Faðir kæranda hafi unnið byggingarvinnu áður en hann hafi látist og bróðir kæranda hafi átt verslun í borginni Wajare. Kærandi eigi fjögur barnung systkini, þrjár systur og einn bróður. Aðspurður um aðstæður meðlima Gabooye ættbálksins og hvort hann hafi orðið fyrir mismunun á grundvelli ættbálkastöðu sinnar kvað kærandi Gabooye ættbálkinn vera álitinn óæðri öðrum ættbálkum í Sómalíu. Meðlimum ættbálksins sé óheimilt að giftast einstaklingum úr öðrum ættbálkum eða gegna góðum stöðum innan samfélagsins. Kærandi hafi verið búsettur í þeim hluta Hargeisa þar sem meðlimir Gabooye dvelji. Kærandi kvaðst hafa upplifað mismunun sökum ættbálkastöðu sinnar, en fjölskylda hans hafi verið betur sett fjárhagslega en aðrir og því hafi kærandi getað gengið í skóla. Gabooye börn úr heimahverfi kæranda sæki almennt ekki skóla af fjárhagslegum ástæðum eða vegna mismununar innan skólanna. Kærandi hafi sjálfur aðallega upplifað mismunun af hálfu kennara eða foreldra samnemenda sinna vegna ættbálkastöðu sinnar. Kærandi kvaðst hafa verið virkur innan ættbálks síns, hann hafi verið menntaður og því hafi hann ráðlagt börnum um gagnsemi menntunar. Kærandi hafi ekki verið meðlimur að stjórnmálaflokki né tekið þátt í mótmælum í heimaríki. Aðspurður um heilsu sína kvað kærandi líkamlega heilsu sína vera í lagi en greindi frá því að finna fyrir þunglyndi og hafa glímt við andlega erfiðleika sem barn. Kærandi kvaðst ekki hafa verið greindur með þunglyndi þar sem skilningur á geðheilbrigðismálum sé af skornum skammti í Sómalíu.

Aðspurður um hvaða atvik í lífi hans gerðu það að verkum að hann hafi yfirgefið Sómalíu kvað kærandi fjölskyldu sína hafa átt hluta af landareign. Eignarhluti fjölskyldu kæranda hafi skipst í tvennt, annars vegar í autt landsvæði og hins vegar svæði þar sem heimili fjölskyldunnar hafi staðið. Árið 2020, eftir að faðir kæranda hafi látist, hafi komið upp vandamál vegna einstaklinga úr annarri fjölskyldu í tengslum við eignarhald á landinu. Að sögn kæranda hafi umrædd fjölskylda tilheyrt Habr Awal undirættbálki meirihlutaættbálksins Isaaq og verið áhrifamikil á svæðinu. Af frásögn kæranda má ráða að hann hafi verið í námi í Bangladess þegar vandamálin hafi fyrst byrjað og að bróðir hans hafi því tekið að sér að vera málsvari fjölskyldunnar. Bróðir kæranda hafi leitað til hæstaréttar í heimaríki til að sanna eignarhald þeirra að landinu en ekki fengið endanlega úrlausn málsins vegna áhrifa Habr Awal ættbálksins. Að sögn kæranda hafi bróðir hans upplifað talsverð vandamál af hálfu umræddrar fjölskyldu vegna ágreiningsins. Bróðir kæranda hafi leitað til lögreglunnar en þar sem lögreglustjórinn tilheyri jafnframt Habr Awal ættbálknum hafi ekki verið aðhafst í málinu. Kærandi greindi frá því að eftir að hann hafi snúið aftur til heimaríkis að loknu námi í nóvember 2021 hafi hann og bróðir hans leitað á ný til hæstaréttar með landareignarmálið. Í kjölfarið hafi umrædd fjölskylda byrjað að áreita kæranda og bróður hans með símtölum. Stundum hafi ótilgreindir einstaklingar komið upp að þeim bræðrum og sagt að ef þeir héldu máli sínu til streitu myndu þeir lenda í vandræðum eða verða drepnir. Að sögn kæranda hafi hann og bróðir hans hætt öllum aðgerðum vegna málsins eftir að það hafi verið komið til hæstaréttar. Kvöld eitt í maí 2022 hafi bróðir kæranda séð fáeina ótilgreinda einstaklinga vera að byggja á auða hluta landsvæðisins. Þegar bróðir kæranda hafi sagt framangreindum aðilum að stöðva framkvæmdirnar þar sem þeir hefðu ekki leyfi frá eigendum svæðisins hafi þeir ráðist á hann og bróðir kæranda slegist við þá. Að sögn kæranda hafi bróðir hans slegið einn mann í hnakkann með skóflu með þeim afleiðingum að umræddur maður hafi látist. Bróðir kæranda hafi þá hlaupið í burtu, flúið frá Hargeisa og ekki haft samband við fjölskyldu sína í kjölfarið. Kærandi hafi verið staddur í bænum Berbera vegna atvinnuviðtals þegar framangreint atvik hafi átt sér stað. Kærandi kvað fjölskyldu hins látna hafa komið á heimili fjölskyldu sinnar hinn næsta dag til að leita að bróður hans. Þau hafi tjáð móður kæranda að þau myndu drepa báða syni hennar þar sem þeir séu meðlimir Gabooye ættbálksins og líf mannsins sem hafi látist væri virði tveggja Gabooye lífa. Um þremur eða fjórum dögum síðar hafi móðir kæranda fengið símtal frá fólki úr bænum Wajale um að bróðir kæranda hafi verið drepinn á hótelherbergi sínu þar í bæ. Kærandi kvaðst vita að bróðir hans hafi verið drepinn af meðlimum Habr Awal ættbálksins sem hann hafi átt í erjum við. Þegar kærandi hafi snúið aftur til Hargeisa eftir dauða bróður síns hafi hann ekki þorað að fara á heimili sitt og því dvalið á heimili ættingja sinna. Að sögn kæranda hafi öldungur úr ættbálki hans rætt við fjölskyldu látna mannsins og reynt að leiða lyktir í málinu þar sem þau hafi þegar drepið bróður kæranda. Fjölskyldan hafi ekki viljað ná sáttum og ítrekað að líf mannsins sem bróðir kæranda hafi drepið hafi verið virði tveggja Gabooye lífa. Kærandi kvaðst hafa fengið símtöl á hverjum degi þar sem honum hafi verið hótað lífláti. Hann hafi verið hræddur og ekki vitað hvert hann gæti farið til að flýja meðlimi Habr Awal ættbálkinn þar sem meðlimir ættbálksins búi á öllum svæðum í Sómalílandi. Aðspurður kvað kærandi lögregluna ekki hafa aðstoðað sig né fjölskyldu sína þegar þau hafi leitað til þeirra að öðru leyti en að taka af þeim skýrslu. Þegar kærandi og fjölskylda hans hafi farið aftur til lögreglunnar og spurt eftir aðstoð hafi lögreglan ekki fundið framangreinda skýrslu. Kærandi kvaðst hafa ákveðið að flýja til Eþíópíu 4. júlí 2022 eftir að móðir hans hafi haft samband við ættingja erlendis sem hafi sent henni peninga svo kærandi gæti yfirgefið heimaríki. Af frásögn kæranda má ráða að eftir að hann hafi yfirgefið Sómalíland hafi meðlimir Harb Awal ættbálksins byrjað að spyrja móður hans um staðsetningu kæranda. Þrátt fyrir að umræddir einstaklingar myndu ekki drepa yngri systkini kæranda vegna ungs aldurs þeirra hafi móðir kæranda óttast um öryggi þeirra og flutt með þau til Aw-Barre í Eþíópíu. Kærandi kvað móðursystur sína vera búsetta í ótilgreindu þorpi í Sómalílandi og jafnframt eiga frænda úr föðurætt þar í landi.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frests sem honum hefði verið veittur yrði endurkomubann hans fellt niður. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 11. febrúar 2024. Greinargerð barst kærunefnd 27. febrúar 2024 ásamt fylgiskjölum.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst með sambærilegum hætti og í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Þar kemur að auki fram að heimildir beri með sér að meðlimir Muse Dhariyo undirættbálks minnihlutaættbálksins Gabooye, líkt og kærandi, verði fyrir mismunun og útskúfun af hálfu ráðandi afla innan samfélagsins og annarra ættbálka. Frásögn kæranda fái stoð í opinberum heimildum um aðstæður meðlima minnihlutahópa og ættbálka sem verði fyrir útskúfun, mismunun, ofbeldi og ofsóknum í sómölsku samfélagi.

Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Sómalíu mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Kærandi gerir athugasemdir við efni trúverðugleikamats stofnunarinnar og telur ályktanir Útlendingastofnunar efnislega rangar og byggðar á ófullnægjandi upplýsingum. Kærandi telur hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli hans vera háða verulegum annmörkum. Að mati kæranda hafi Útlendingastofnun ekki rannsakað mál hans með fullnægjandi hætti. Ekki hafi fram viðhlítandi mat á aðstæðum kæranda í andstöðu við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi telur rökstuðning hinnar kærðu ákvörðunar og trúverðugleikamat frásagnar sinnar byggja á efnislega röngum grunni og ekki í samræmi við 22. gr. stjórnsýslulaga.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við að sæta ofsóknum í heimaríki af hálfu meðlima Habr Awar undirættbálks meirihlutaættbálksins Isaaq og stjórnvöld geti ekki tryggt grundvallarmannréttindi né öryggi kæranda. Kærandi hafi þurft að flýja ofsóknir framangreinds ættbálks sökum deilna á milli fjölskyldu hans og meðlima ættbálksins. Vísar kærandi til þess að Habr Awal sé ráðandi ættbálkur á heimasvæði hans, fari þar með raunveruleg yfirráð og því sé ógnin sem kæranda stafi af framangreindum ættbálki á því alvarleikastigi að teljast til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. Þar sem kærandi tilheyri minnihlutaættbálki sé honum ófært að leita verndar og öryggis yfirvalda gegn ofsóknum meðlima meirihlutaættbálks, enda tilheyri meðlimir yfirvalda sama meirihlutaættbálki og séu líklegri til þess að viðhalda ofsóknum í garð kæranda en að veita honum öryggi eða vernd. Ljóst sé að kærandi eigi ekki kost á að flytja á annað landsvæði í heimaríki þar sem hann geti verið öruggur, enda tilheyri kærandi minnihlutaættbálki og sé því ómögulegt fyrir hann að verða hluti samfélagsins á öðrum stað í Sómalíu.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að raunhæf ástæða sé til að ætla að hann verði fyrir alvarlegum skaða eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða lífláti í Sómalíu verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis vegna stöðu sinnar þar í landi af hálfu meðlima ráðandi meirihlutaættbálks sem séu eiginleg yfirvöld á heimasvæði kæranda.

Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd í skilningi ákvæðisins vegna erfiðra félagslegra aðstæðna þar sem hann tilheyri minnihlutaættbálki. Meðlimir minnihlutaættbálka þurfi að sæta mismunun á grundvelli ættbálkastöðu sinnar, mannréttindabrot viðgangist gagnvart meðlimum minnihlutahópa í Sómalíu og kærandi eigi engan kost á að leita réttar síns, öryggis eða verndar sökum stöðu sinnar.

Að lokum krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar. Kærandi vísar til 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga, sem og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, og telur að málsmeðferð, rannsókn á máli hans, efnislegar forsendur og rökstuðningur hinnar kærðu ákvörðunar sé háður slíkum annmörkum að fella beri ákvörðunina úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn grundvallarreglum stjórnsýsluréttarins, m.a. rannsóknarreglunni.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn til að sanna á sér deili og að það væri mat stofnunarinnar að kærandi hefði ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Með vísan til þess var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari en auðkenni hans sé að öðru leyti óupplýst.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 23. apríl 2024);
  • 2023 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 1. júlí 2024);
  • 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2023 – The State of the World’s Human Rights Somalia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
  • BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
  • Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
  • Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
  • Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, ágúst 2023);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, mars 2024);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, febrúar 2025);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
  • Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
  • Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
  • DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
  • EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
  • EUAA, COI Report – Somalia: Country Focus (EUAA, maí 2025);
  • EUAA, COI Report – Somalia: Security Situation (EUAA, maí 2025);
  • Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Somalia (Freedom House, 2024);
  • Genelogical Table of Somali Clans (UNHCR Somalia);
  • Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, 6. september 2022);
  • Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
  • Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
  • Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
  • Query response on Somalia: Low status groups (Landinfo, 12. desember 2016);
  • Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mógadisjú, Somalia (UNHCR, 25. 6. september 2013);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 3. júní 2024);
  • Somalia country profile (BBC, 2. janúar 2024);
  • Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
  • Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
  • Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, 9. september 2023);
  • Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
  • Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
  • Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
  • Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
  • Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
  • Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
  • Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
  • Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
  • Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
  • Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
  • Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
  • Vefsíða Minority Rights Group – Occupational groups in Somalia (https://minorityrights.org/communities/occupational-groups/, síðast uppfært í nóvember 2024);
  • Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í nóvember 2024) og
  • Vefsíða Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna – How one Commission is rewriting justice in Somaliland (https://www.undp.org/somalia/news/how-one-commission-rewriting-justice-somaliland, 23. apríl 2025).

Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.

Í framangreindum heimildum, m.a. skýrslu búsetunefndar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2006 og skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að í kjölfar borgarastyrjaldarinnar árið 1991 hafi ættbálkar í norður-Sómalíu ákveðið að lýsa yfir sjálfstæði og stofnað lýðveldið Sómalíland. Frá árinu 1991 hafi Sómalíland átt í erfiðleikum með að koma á fót starfhæfu lýðræðisríki en Sómalíland sé ekki viðurkennt af alþjóðasamfélaginu sem sjálfstætt ríki. Þá hafi héruðin Bari, Nugaal og norðurhluti Mudug sett á fót sjálfstjórnarríkið Puntland í norðausturhluta Sómalíu árið 1998 og hafi ríkið haft sjálfstjórn síðan. Í Puntlandi ríki mesti stöðugleiki í Sómalíu og það sé þróaðasta ríki landsins. Átta héruð tilheyri Puntlandi. Ólíkt Sómalílandi hafi Puntland ekki leitast eftir sjálfstæði frá Sómalíu. Frá árinu 1998 hafi Puntland átt í deilum við Sómalíland um umdæmin Sool, þar sem höfðuborgin Laas Canood er, og Sanaag. Þá séu einnig deilur milli Puntland og Sómalílands um svæðið Cayn (í Togdheer umdæmi).

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 segir að starfandi dómstólar séu í Sómalílandi en í ljósi skorts á reynslumiklum dómurum og fullnægjandi skjalavörslu sé ekki hægt að líta til fordæma og sækja fólk til saka fyrir víðtæka spillingu. Þá sé mikil spilling í dómskerfinu. Löggjöfin í Sómalílandi sé þrískipt; lög íslam (Sharia), venjuréttur (xeer) og formleg lög, en lögin séu ekki vel samþætt. Vegna annmarka í dómskerfinu sem og í opinberum stofnunum hafi xeer lögin, sem séu aðallega notuð í samskiptum ættbálka, mikið vægi í sómalísku samfélagi. Samkvæmt lögum séu ákærðir almennt taldir saklausir uns sekt þeirra sé sönnuð jafnframt sem þeir eigi rétt á að njóta aðstoðar lögmanns. Þá séu réttarhöld í Sómalílandi opin almenningi. Réttindi sakborninga hafi þó ekki alltaf verið virt af yfirvöldum. Í Sómalílandi sé starfandi lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi og heyri stofnanirnar undir svæðisstjórn Sómalílands en ekki ríkisstjórn Sómalíu. Fyrir utan hefðbundna lögreglu (e. Somaliland Police Force) sé Sómalíland einnig með her (e. Somaliland Army) og fari þessar sveitir aðallega með löggæsluvaldið á svæðinu. Heimildir bera með sér að mikil framþróun hafi átt sér stað árið 2024 á sviði mannréttinda og réttaröryggis í Sómalílandi. Samstarfsverkefni mannréttindanefndar Sómalílands (e. Somaliland National Human Rights Commission (SLNHRC)) og Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna hafi leitt til áþreifanlegra umbóta fyrir viðkvæma hópa yfir allt Sómalíland. Aðgangur að réttarkerfinu hafi verið aukinn, löggæsla byggð á einstaklingsbundnum réttindum verið efld og réttaröryggi fyrir jaðarsetta hópa verið tryggt. Hátt í 1.500 einstaklingar hafi hlotið endurgjaldslausa lögfræðilega aðstoð á árinu 2024 með innleiðingu verkefnisins, aðgerðir hafi leitt til kerfisbundinna umbóta á gæsluvarðhaldsfangelsum og nýstárlegar þjálfunaraðferðir hafi brúað bilið milli löggæslu og samfélaga. Samkvæmt skýrslu ACCORD sé Sómalíland öruggasta svæðið í Sómalíu og árið 2017 hafi einungis níu einstaklingar látið lífið í Sómalílandi vegna átaka á svæðinu. Í skýrslu EUAA um öryggisástand í Sómalíu frá 2025 kemur fram að yfirvöld í Sómalílandi séu með fulla stjórn á yfirráðasvæði sínu og er ekki að finna neinar skráðar árásir af hálfu Al-Shabaab á svæðinu í nýjustu heimildum um svæðið. Al-Shabaab sé ekki með stjórn á neinu svæði í Sómalílandi. Þá beri heimildir frá ACLED með sér að á tímabilinu 1. apríl 2023 til 21. mars 2025 hafi alls 14 öryggisatvik verið skrásett á Wogoyi Galbeed svæðinu sem hafi leitt til 22 dauðsfalla. Sjö einstaklingar hafi flúið frá svæðinu á sama tímabili á meðan 507 einstaklingar hafi flúið til svæðisins.

Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti margvíslegri skattheimtu við eftirlitsstöðvar og á ýmsar afurðir, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög.

Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (e. The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og öðrum bæjum suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og koma á stöðugleika og öryggi í landinu. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman t.d. til þess að gera árásir. Slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti hafi lögreglan takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í suður- og mið-Sómalíu. Í skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá október 2024 kemur fram að sprengjuárásir séu ógn við almenning í Sómalíu og óbreyttir borgarar um þriðjungur skráðra mannfalla á tímabilinu frá ágúst 2023 til júlí 2024. Fram kemur að óbreyttir borgarar hafi ekki verið bein skotmörk sprengjuárásanna. Slíkum sprengjum hafi verið komið fyrir m.a. á Baraka-markaðnum í febrúar 2024, nokkrum tebúðum í júní 2024 og í Daynile hverfinu í Mógadisjú í ágúst 2024.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í skýrslunni kemur fram að í Sómalíu séu fjórir stærstu ættbálkarnir Darod, Hawiye, Isaaq og Dir. Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gabooye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Þá bendi gögn til þess að í norðurhluta Sómalíu, m.a. í Sómalílandi, fari ástandið batnandi og að ættbálkar sem séu í meirihluta þar séu umburðarlyndari heldur en á öðrum svæðum í Sómalíu. Minnihlutahópar tilheyri lægstu stétt sómalska samfélagsins, og hafi gert það allt frá því um 1900, og þeir sem tilheyri minnihlutahópi séu oft kallaðir ,,stéttleysingar“ (e. outcaste groups) eða Sab. Til minnihlutahópa teljist m.a. þeir sem tilheyri Midgan, Tumal og Yibro. Midgan séu í dag einnig kallaðir Gabooye, Madhibaan og Musse Deriyo.

Samkvæmt upplýsingasíðu Minority Rights Group heyrir ættbálkurinn Gabooye til minnihluta í Sómalíu. Ættbálkurinn teljist til viðkvæmra hópa í landinu og flestir meðlimir hans séu verkafólk, t.d. smiðir, sútarar og hárskerar. Áætlað sé að einungis á milli 30 til 40 af u.þ.b. 10 þúsund Gabooye meðlimum í Hargeisa stundi eða hafa stundað háskólanám. Minnihlutaættbálkar í Sómalíu, m.a. Gabooye, falli almennt utan verndarsviðs valdamestu ættbálkanna í landinu. Þá hafi ættbálkurinn lítið stjórnmálalegt vald og sé sérstaklega berskjaldaður fyrir árásum og eignaupptöku, einkum á átakatímum. Í Sómalíu, þar sem allir íbúar standi frammi fyrir einhvers konar ógn, séu minnihlutahópar í sérstakri hættu. Meðlimur Gabooye ættbálksins hafi þó verið kosinn á þing með afgerandi meirihluta atkvæða í þingkosningum í Sómalílandi árið 2023. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 skorti meðlimi Gabooye aðgang að formlegri menntun, efnahagslegum auðlindum og séu að mestu útilokaðir frá stjórnmálum í Sómalíu. Fram kemur í skýrslunni að ættbálkurinn hafi ýmsar neikvæðar staðalímyndir, t.a.m. að konurnar séu vændiskonur og að meðlimir hans séu ekki alvöru múslímar. Einnig séu meðlimir hans álitnir óhreinir og óæðri í sómalísku samfélagi og samkvæmt þjóðsögum megi rekja það til þess að forfeður ættbálskins hafi borðað kjöt af látinni skepnu en samkvæmt íslamskri og sómalískri menningu sé það óhreint kjöt. Meðlimir Gabooye njóti takmarkaðrar verndar um alla Sómalíu. Þeir geti sætt áreitni og kúgun í skjóli refsileysis, einkum í Sómalílandi og suður-Sómalíu. Meðlimir ættbálksins séu dreifðir um landið en ættbálkurinn sé fjölmennasti minnihlutahópurinn í Sómalílandi. Þó séu þeir einnig búsettir, en í minna mæli, í Eþíópíu, Puntlandi og suður-Sómalíu. Einstaklingum í Midgan sé mismunað í skólakerfinu sem verði til þess að fá börn úr ættbálkinum útskrifist úr skólakerfinu. Þetta hafi orðið til þess að skortur sé á menntuðum einstaklingum í framangreindum ættbálkum sem ýti enn frekar undir fordóma gagnvart ættbálkum á borð við Midgan sem og félagslega undirokun ættbálksins. Þá séu ekki meiri líkur á að einstaklingur sem tilheyri ættbálkum í minnihluta verði fyrir almennu ofbeldi frekar en aðrir Sómalar af meirihlutaættbálkum.

Í svari Landinfo frá 2016 við fyrirspurn um lágstéttarhópa (e. low status groups) kemur fram að meðlimir Gabooye/Midgan, Yibir, Tumal eða annarra svokallaðra verkahópa (e. occupational groups) séu ekki frábrugðnir öðrum Sómölum í útliti. Ekki sé vitað hversu hátt hlutfall íbúa Sómalíu tilheyri slíkum hópum. Midgan/Gabooye sé bæði notað sem nafn yfir einn sérstakan hóp og sem almennt niðrandi hugtak yfir alla verkahópa. Nafnið Gabooye sé notað í norðvestur-Sómalíu og sé ekki nafn á ættbálki eða hópi né tilvísun til ætternis. Sérstök staða meðlima verkahópa sé að miklu leyti komin til vegna þess að þeir njóti ekki viðurkenningar sem fullgildir meðlimir sómalísks ættbálks sem hafi þekktan uppruna. Meðlimir Muse Dhariye hafi almennt verið tengdir við Isaaq, Gadabursi og Dir meirihlutaættbálkana í norðvestur-Sómalíu. Um gagnkvæmt samband sé að ræða þar sem meðlimir minnihlutahópsins njóti verndar meðlima framangreindra meirihlutaættbálka sem að sama skapi njóta góðs af færni og hæfileikum minnihlutahópsins. Slík gagnkvæm sambönd séu ekki hluti af daglegu lífi framangreindra aðila. Það sé einungis í tilvikum þar sem meðlimir Midgan/Gabooye þarfnist verndar sem hið gagnkvæma samband virkjist. Landinfo ræddi við fulltrúa tveggja hagsmunasamtaka verkahópa í Hargeisa. Aðspurðir um hvað myndi gerast ef meðlimur Gabooye myndi drepa eða slasa meðlim Isaaq meirihlutaættbálksins svöruðu fulltrúarnir því að slík mál yrðu leyst með hefðbundnum hætti. Fulltrúar annarra samtakanna tjáðu Landinfo að í samningsviðræðum við meirihlutaættbálka myndu meðlimir Gabooye vera álitnir jafningjar meðlimum meirihlutaættbálks. Fulltrúar hinna samtakanna greindu frá því að minnihlutahópum séu gefin fyrirmæli um tiltekna lausn innan hins hefðbundna kerfisins.

Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2025, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu EUAA frá 2025 kemur fram að í Hargeisa, höfuðborg Sómalílands, séu starfrækt opinber sjúkrahús og heilsugæslustöðvar auk einkarekinna sjúkrahúsa og læknastofur. Ekki þurfi að greiða fyrir þjónustu á opinberum sjúkrahúsum, aðeins fyrir viss lyf og sáraumbúðir. Þjónusta og meðferð á einkareknum stofnunum sé talsvert betri en aðeins á færi þeirra efnameiri.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki af hálfu meðlima meirihlutaættbálks sem hafi eiginlega stöðu yfirvalda í Sómalílandi. Þá tilheyri kærandi minnihlutaættbálknum Gabooye og hafi sætt mismunun sökum þess í heimaríki.

Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera fæddur og uppalinn í borginni Hargeisa í Sómalílandi. Í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að stofnunin hafi ekki talið ástæðu til að láta kæranda þreyta tungumála- og staðháttapróf. Í því sambandi vísaði stofnunin til tölvubréfs frá tungumálaþjónustunni Verified sem framkvæmir prófin, dags. 2. ágúst 2023, þar sem fram hafi komið að ókleift væri að gera greinarmun á mállýsku sem fyrirfinnist á mismunandi svæðum innan Sómalíu. Taldi Útlendingastofnun því tungumála- og staðháttapróf að verulega takmörkuðu leyti geta veitt vísbendingar um það hvert umsækjandi kynni að eiga uppruna sinn að rekja. Útlendingastofnun taldi ekkert við úrlausn málsins benda sérstaklega til annars en að kærandi kunni hugsanlega að hafa dvalist að einhverju leyti í Hargeisa eða að líta beri á kæranda sem ríkisborgara Sómalíu og var því gengið út frá því við úrlausn máls kæranda. Verður jafnframt séð af ákvörðuninni að tekið hafi verið mið af Hargeisa þegar fjallað var um heimasvæði kæranda.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja niðurstöðu Útlendingastofnunar að þessu leyti og verður því gengið út frá því að kærandi hafi a.m.k. dvalið hluta ævi sinnar í Hargeisa á Wogoyi Galbeed svæðinu í Sómalílandi og verður það því talið heimasvæði kæranda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa flúið heimaríki í byrjun júlí 2022 vegna líflátshótana meðlima Habr Awal undirættbálks meirihlutaættbálksins Isaaq. Kærandi og fjölskylda hans tilheyri Muse Dhiriye undirættbálki Gabooye minnihlutaættbálksins. Í maí 2022 hafi bróðir kæranda banað einstaklingi úr Habr Awal ættbálknum og nokkrum dögum síðar hafi bróðir kæranda verið myrtur. Kærandi kvað meðlimi Habr Awal ættbálksins hafa myrt bróður hans og tjáð fjölskyldu kæranda að kærandi yrði einnig drepinn vegna glæps bróður hans þar sem líf meðlims meirihlutaættbálks sé virði tveggja lífa meðlima minnihlutaættbálks. Í kjölfarið hafi kærandi fengið ítrekaðar líflátshótanir símleiðis. Kærandi hafi ekki getað leitað aðstoðar lögreglu né yfirvalda þar sem meðlimir Habr Awal ættbálksins séu í ráðandi stöðu þar í landi. Að sögn kæranda hafi öldungur úr ættbálki kæranda reynt að ná sáttum við fjölskyldu þess sem bróðir kæranda hafi banað en án árangurs. Þá kvað kærandi móður sína hafa flutt með yngri systkini sín til Eþíópíu eftir að meðlimir Habr Awal ættbálksins hafi spurt um staðsetningu kæranda. Af frásögn kæranda má ráða að deilur milli fjölskyldu hans og Habr Awal ættbálksins hafi upphaflega varðað tiltekna landareign fjölskyldu kæranda. Bróðir kæranda hafi leitað til hæstaréttar á meðan kærandi hafi verið erlendis í námi til að sanna eignarhald fjölskyldunnar á landinu en ekki tekist að fá áheyrn réttarins. Eftir að kærandi hafi snúið aftur til heimaríkis að námi loknu í nóvember 2021 hafi hann og bróðir hans leitað að nýju til hæstaréttar með málið og af frásögn kæranda má ráða að það hafi verið í einhvers konar meðferð hjá réttinum þegar framangreindir atburðir hafi átt sér stað í maí 2022.

Með hliðsjón af framburði kæranda og landaupplýsingum er ekki hægt að útiloka að bróðir kæranda hafi verið myrtur eftir að hafa sjálfur orðið öðrum einstaklingi að bana. Þá er ekki unnt að útiloka að fjölskylda þess einstaklings sem bróðir kæranda hafi banað hafi staðið að baki dauða bróður kæranda og að ótilgreindir meðlimir Habr Awal ættbálksins hafi hótað kæranda lífláti vegna gjörða bróður hans. Af frásögn kæranda má ráða að um tveir mánuðir hafi liðið frá dauða bróður hans og þar til kærandi hafi yfirgefið Hargeisa í Sómalílandi. Kærandi hefur ekki greint frá frekari eftirmálum dauða bróður síns öðrum en að hann hafi fengið líflátshótanir símleiðis frá ótilgreindum einstaklingum. Þá hefur kærandi ekki lagt fram nein gögn máli sínu til stuðnings. Með vísan til framangreindra heimilda um aðstæður í Sómalílandi og umbætur hvað varðar réttindi viðkvæmra hópa, frásagnar kæranda um að hann hafi leitað réttar síns í heimaríki og að mál fjölskyldu hans hafi verið til meðferðar hjá dómstólum þar í landi verður talið að kærandi geti leitað aðstoðar lögreglu og yfirvalda telji hann þess þörf.

Þá hefur kærandi greint frá því að tilheyra minnihlutaættbálkinum Gabooye. Frásögn kæranda um mismunun og áreiti gagnvart meðlimum Gabooye minnihlutaættbálksins í Sómalíu fær stoð í heimildum og er ekki ástæða til að draga þennan þátt frásagnar kæranda í efa. Frásögn kæranda af aðstæðum hans og fjölskyldu hans í heimaríki ber með sér að kærandi og fjölskylda hans hafi verið betur sett en aðrir meðlimir Gabooye ættbálksins. Kærandi hafi lokið háskólanámi, fjölskylda hans hafi átt landareign, hæstiréttur hafi tekið eignarmál fjölskyldunnar fyrir og bróðir hans hafi verið eigandi verslunar. Kærandi greindi þó frá því að hafa sætt mismunun vegna aðildar sinnar að ættbálkinum, m.a. sem barn og ungmenni af hálfu kennara og foreldra samnemenda sinna sem ekki hafi viljað leyfa börnum sínum að eiga vinskap við kæranda. Verður sú meðferð sem kærandi kveðst hafa sætt í heimaríki þó ekki talin ná því alvarleikastigi að teljast til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður meðlima Gabooye ættbálksins er það niðurstaða kærunefndar að aðstæður hans séu ekki slíkar að þær geti talist til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er það því niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann eigi á hættu ofsóknir vegna aðildar sinnar að minnihlutaættbálkinum Gabooye í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að vegna aðildar hans að minnihlutaættbálki eigi hann á hættu að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.

Þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að kærandi sé ekki í hættu í heimaríki vegna hættu á ofsóknum af hálfu meðlima tiltekins meirihlutaættbálks eða vegna aðildar sinnar að minnihlutaættbálki. Lagt hefur verið til grundvallar við úrlausn máls kæranda að kærandi hafi verið búsettur í Hargeisa þegar hann hafi yfirgefið heimaríki sitt og hafi búið þar hluta ævi sinnar. Verður því horft til aðstæðna í Hargeisa við mat á því hvort aðstæður kæranda geti fallið undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað fara stjórnvöld Sómalílands með stjórn og full yfirráð á öllu Wogoyi Galbeed svæðinu þar sem heimaumdæmi kæranda er staðsett. Í skýrslu EUAA frá 2025 kemur fram að á tímabilinu 1. apríl 2023 til 21. mars 2025 hafi ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project) skrásett alls 14 öryggisatburði, sem hafi leitt til 22 dauðatilfella, á öllu Wogoyi Galbeed svæðinu, þar af 12 í Hargeisa umdæmi. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið við meðferð málsins benda ekki til þess að aðstæður í Hargeisa séu slíkar að kærandi muni eiga á hættu meðferð sem brjóti gegn 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Verður því ekki talið að ástæða sé til að ætla að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki af þeim sökum. Þá er það jafnframt mat kærunefndar, af virtum gögnum málsins og upplýsingum um aðstæður í Sómalíu, að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til almennra aðstæðna og erfiðra félagslegra aðstæðna í heimaríki.

Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki í Sómalíu þá teljist svæðið þar sem kærandi hafði búsetu í Sómalílandi til öruggari svæða. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað kærandi líkamlega heilsu sína vera í lagi. Aðspurður um andlega heilsu sína kvaðst kærandi finna fyrir þunglyndi vegna stöðunnar í heimaríki sínu og hafa glímt við þunglyndi í æsku, en þó ekki fengið formlega greiningu né leitað til læknis vegna andlegrar heilsu sinnar. Hann hafi rætt við prófessor á meðan hann hafi verið í háskólanámi í Bangladess sem hafi verið sálfræðingur. Hann hafi veitt kæranda ráð og bent honum á bækur sem myndu gagnast kæranda að lesa.

Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki séð að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa aflað sér háskólamenntunar í Bangladess og snúið aftur til heimaríkis eftir námslok í nóvember 2021. Kærandi hafi verið búsettur á heimili fjölskyldu sinnar ásamt móður sinni og systkinum. Kærandi hafi ekki verið í launuðu starfi þegar hann hafi yfirgefið heimaríki en af frásögn hans má ráða að hann hafi verið í atvinnuleit og mætt í starfsviðtöl.

Af gögnum málsins verður talið kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærandi er ungur að árum og almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 15. janúar 2023.

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn sem eru til þess fallin að sanna á honum deili. Vert er að nefna að kærandi hefur lagt fram ljósmynd sem hann kveður vera af útrunnu sómölsku vegabréfi sínu. Slíkt gagn getur ekki talist fullnægjandi staðfesting á auðkenni svo skilyrði b. liðar 2. mgr. 74. gr. um staðfestingu auðkennis teljist uppfyllt.

Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, eru því ekki uppfyllt.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa tengsl við Ísland né önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærandi telji brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarna ráðstöfun þar sem hann hafi flúið heimaríki sitt í leit að alþjóðlegri vernd.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir