19 september 2025
/
Ísland tekur þátt í að „rampa upp Úkraínu“
Samningur um 60 milljóna króna stuðning íslenskra stjórnvalda við verkefnið „Römpum upp Úkraínu,“ næstu fjögur árin var undirritaður í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í gær. Forvígismaður verkefnisins, Haraldur Þorleifsson, réðst sem kunnugt er í sambærilegt verkefni hér á landi fyrir nokkrum árum, sem leiddi til þess að tæplega tvö þúsund aðgengisrampar voru byggðir víðsvegar um land.
„Þetta verkefni fór fram úr öllum væntingum á Íslandi þannig að ég fór að skoða hvort við gætum fært módelið út. Það er oft erfitt að horfa á fréttir af þessum stóru atburðum sem eru að gerast í heiminum og finna enga leið til að hjálpa til,“ segir Haraldur. „Þarna koma saman þörf og lausn, og núna fjármagn og við getum gert eitthvað til að létta á þessum þjáningum. Ísland er friðsælt land og þetta er friðsöm gjöf.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fagnar verkefninu og segir Íslandi bæði ljúft og skylt að taka þátt í því.
„Það kom hreinlega ekki annað til greina en að styðja dyggilega við þetta góða og mikilvæga framtak hans Halla í Úkraínu. Nú stefnum við á að byggja að lágmarki hundrað rampa á ári í Úkraínu, þar sem þörfin er svo sannarlega brýn eftir ríflega þriggja ára varnarbaráttu úkraínsku þjóðarinnar gegn blóðugu landvinningastríði Rússa,“ segir Þorgerður Katrín. „Ofbeldið hefur auðvitað skilið mörg eftir sár og slösuð, ekki síst hermenn sem hafa meiðst á vígvellinum við að verja þjóð sína frá yfirgangi Rússa.“
Tímarammi verkefnisins er frá september 2025 til og með september 2029, en áætlaður kostnaður þess nemur um 120 milljónum króna.