22 september 2025

/

Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um embætti dómara við Landsrétt

{image.Description}
Hari
Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til ráðherra

Þann 13. júní 2025 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt. Þrjár umsóknir bárust um embættið.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra og er það mat nefndarinnar að Eyvindur G. Gunnarsson sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embætti dómara við Landsrétt.

Dómnefndina skipuðu: Ása Ólafsdóttir formaður, Eva Bryndís Helgadóttir, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

Umsögn dómnefndar