22 september 2025
/
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sátu sérstakan hátíðarviðburð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York í dag í tilefni af áttatíu ára afmæli samtakanna sem sett voru á laggirnar við lok seinni heimsstyrjaldar. Forsætisráðherra átti einnig fund með Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og þá sóttu ráðherrarnir sérstakan fund kenndan við sögulega kvennaráðstefnu sem haldin var í Peking í Kína fyrir þrjátíu árum.
„Andrúmsloftið á fundum hér í dag einkennist mjög af því ástandi sem ríkir í heimsmálunum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
„Ég átti hins vegar góðan fund með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið ötull talsmaður þess að aðildarríkin taki þátt í endurbótum á starfsemi samtakanna. Ýmislegt breytist á 80 árum og Sameinuðu þjóðirnar þurfa að taka mið af breyttum heimi til að geta beitt sér áfram í þágu friðar, öryggis og mannúðar. Enginn dregur í efa mikilvægi Sameinuðu þjóðanna síst af öllu á tímum sem þessum.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Mynd: Sameinuðu þjóðirnar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sat einnig fundinn með Guterres þar sem ástandið á Gaza, árásarstríð Rússa gagnvart Úkraínu og staða Sameinuðu þjóðanna voru til umræðu.
Utanríkisráðherra segir mikilvæga viku fara í hönd þar sem mörg stór mál munu koma til umræðu en hún flytur sína ræðu í allsherjarþinginu nk. laugardag.
„Því miður eru víða blikur á lofti og oft verið friðsamlegra um að litast. Ég vonast samt til þess að þær samræður sem fara fram hér, bæði á hinum formlegu fundum, en ekki síður á göngum Sameinuðu þjóðanna, geti leitt gott af sér. Við munum að minnsta kosti ekki liggja á liði okkar og við munum tala máli friðar og máli alþjóðalaga og auðvitað beita okkur fyrir hagsmunum Íslands hvar sem við komum.“
Síðar í dag sækja forsætisráðherra og utanríkisráðherra leiðtogafund um tveggja ríkja lausnina en þau tíðindi urðu í gær að Bretland, Kanada og Ástralía tilkynntu að þau viðurkenni sjálfstætt ríki Palestínu og þess er vænst að Frakkland geri hið sama í dag. Þetta markar mikil tímamót þó að ástandið á Gaza hafi verið flestum efst í huga í sölum Sameinuðu þjóðanna í dag.
Snemma í fyrramálið að bandarískum tíma sitja bæði Kristrún og Þorgerður setningarathöfn þessa allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem er hið áttugasta í röðinni. Venju samkvæmt talar forseti Brasilíu fyrstur manna í umræðum en í kjölfarið kemur röðin að forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.