23 september 2025

/

Ákvörðun um framlag úr varúðarsjóði lífeyrisaukasjóðs A-deildar LSR

{image.Description}

Matshópur vegna varúðarsjóðs lífeyrisaukasjóðs A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hefur tekið ákvörðun um að skilyrði séu uppfyllt fyrir ráðstöfun fjármuna úr varúðarsjóðnum. Matshópurinn ákvað að leggja skuli höfuðstól hans við eignir lífeyrisaukasjóðsins að því marki sem þarf til að staða hans verði ekki neikvæð umfram 5% mark sem miðað er við.

Starf matshópsins er hluti af breytingum sem gerðar voru á lífeyriskerfinu árið 2016 þegar samkomulag náðist um nýtt samræmt lífeyriskerfi hjá hinu opinbera og á almennum markaði. Matshópurinn starfar á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða í lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Ákvæðið er hluti af þeim breytingum sem lögfestar voru á árinu 2016. Með breytingunum var meðal annars tekin upp jöfn réttindaávinnsla í stað aldurtengdrar og lífeyristökualdur hækkaður úr 65 árum í 67 ár. Samhliða var gengið frá því að ríkissjóður legði A-deildinni til sérstakan lífeyrisaukasjóð og að auki fjármagn í sérstakan varúðarsjóð.

Matshópinn skipa fulltrúar frá BSRB, BHM, KÍ og fjármála- og efnahagsráðuneytinu og hann hefur það hlutverk að taka ákvarðanir um framlög úr varúðarsjóðnum.