23 september 2025
/
Mælti fyrir þremur frumvörpum á Alþingi
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í gær fyrir samtals þremur frumvörpum á Alþingi.
„Við í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu förum af fullum krafti inn í þingveturinn. Við erum með fjölmörg frumvörp á þingmálaskránni og málin okkar hafa þýðingu fyrir fólk um land allt,“ segir ráðherra.
Frumvörpin þrjú sem ráðherra mælti fyrir eru frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús (dýrahald), frumvarp til laga um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá).
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús (dýrahald)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um fjöleignarhús sem varða dýrahald þannig að samþykki annarra eigenda fyrir hunda- og kattahaldi sé ekki nauðsynlegt. Frumvarpinu er ætlað að liðka fyrir hunda- og kattahaldi fólks, óháð efnahag og búsetu, en gildandi reglur fjöleignarhúsalaganna hafa leitt til þess að íbúar fjöleignarhúsa hafa átt minni möguleika á slíku dýrahaldi en fólk sem býr í sérbýli.
Frumvarp til laga um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Frumvarpið felur í sér að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur í heild sinni. Markmið samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er að efla, verja og tryggja að allt fatlað fólk njóti til fulls og til jafns við aðra allra mannréttinda og grundvallarfrelsis. Markmiðið er einnig að auka virðingu fyrir fötluðu fólki.
Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á húsaleigulögum þannig að skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði almenn í stað þess að hún taki eingöngu til þeirra sem hafa atvinnu af útleigu íbúðarhúsnæðis. Með því fást áreiðanlegri og heildstæðari upplýsingar um leigumarkaðinn og einstaka hluta hans, lengd leigusamninga, þróun húsaleigu, búsetu í óviðunandi húsnæði og fleira sem nauðsynlegt er til að undirbyggja frekari stefnumótun og ákvarðanatöku stjórnvalda í málaflokknum, sem og eftirlit með svartri leigustarfsemi.
16 mál á þingmálaskrá
Áðurnefnd þingmál eru öll endurflutt frá síðasta þingi. Alls eru 16 þingmál á þingmálaskránni frá félags- og húsnæðismálaráðherra og varða þau fjölmarga hópa fólks. Má þar nefna:
-
Ellilífeyrisþega
-
Örorkulífeyrisþega
-
Fólk á leigumarkaði
-
Fatlað fólk
-
Fólk sem tekur hlutdeildarlán
-
Einstaklinga sem hefur verið gert að sæta öryggisráðstöfunum
-
Innflytjendur
-
Atvinnuleitendur
-
Foreldra í fæðingarorlofi