23 september 2025

/

Nýtt símanúmer sendiráðsins og lokanir 2025

{image.Description}

Sendiráðið vekur athygli á nýju símanúmeri stofnunarinnar: +49 (0)30 7001 60380 og má ná í sendiráðið á afgreiðslutíma þess alla virka daga frá kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00.

Einnig er vakin athygli á lokunardögum á næstu vikum:

  • Föstudagurinn 3. október – Sameiningardagur Þýskalands
  • Milli jóla og nýárs þann 24.-31. desember 2025 og 1. janúar 2026

Sendiráðið opnar aftur á venjulegum tíma föstudaginn 2. janúar 2026.

Í neyðartilfellum utan afgreiðslutíma geta íslenskir ríkisborgarar haft samband við neyðarsíma Utanríkisráðuneytisins, +354 545 0-112.