23 september 2025

/

Samkomulag undirritað við Króatíu vegna Uppbyggingarsjóðs EES

{image.Description}
Arne Sannes Bjørnstad, sendiherra Noregs i Króatíu, Nataša Mikuš Žigman, ráðherra byggðaþróunar og Evrópusambandssjóða, og Helga Hauksdóttir sendiherra Íslands gagnvart Króatíu, að undirrituninni lokinni..

Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Króatíu, undirritaði í dag samkomulag varðandi nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liectenstein og Noregs annars vegar og Króatíu hins vegar. Nú hefst undirbúningur úthlutana úr sjóðnum í Króatíu á nýju sjóðstímabili 2021-2028. 

Markmið Uppbyggingarsjóðsins er að stuðla að félagslegri og efnahagslegri samheldni innan Evrópu, og efla tvíhliða tengsl milli gjafríkjanna, þ.e. Íslands, Liechtenstein og Noregs, og þeirra fimmtán ríkja Evrópusambandsins sem njóta stuðningsins.

Rannís gegnir hlutverki sérstaks samstarfsaðila í áætlun sjóðsins á sviði grænna umskipta (e. Green Transition) í Króatíu á tímabilinu. 

Samstarf Íslands og Króatíu á grundvelli Uppbyggingarsjóðsins byggir á traustum grunni samstarfs á fyrri sjóðstímabilum, s.s á sviðum jarðvarma, menntunar, menningar og jafnréttismála.