24 september 2025
/
Mál nr. 433/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 433/2025
Miðvikudaginn 24. september 2025
A
gegn
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 8. júlí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 7. maí 2025, um að innheimta ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 27. nóvember 2023, sótti kærandi um sértækan húsnæðisstuðning hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og var umsóknin samþykkt 19. desember 2023. Með bréfum stofnunarinnar, dags. 7. maí 2025, var kæranda tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning að fjárhæð 226.000 kr. fyrir nóvember og desember 2023 og 1.190.325 kr. fyrir árið 2024 sem yrði innheimtur samkvæmt lögum nr. 94/2023 um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. júlí 2025. Með bréfi, dags. 10. júlí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Með bréfi stofnunarinnar, dags. 15. júlí 2025, var úrskurðarnefndinni tilkynnt að hinar kærðu ákvarðanir hefðu verið afturkallaðar og ný ákvörðun send kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 17. júlí 2025, var óskað eftir afstöðu kæranda til framangreinds. Svar barst frá kæranda 22. júlí 2025 og í kjölfarið var óskað eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vegna ákvarðana frá 15. júlí 2025 um innheimtu ofgreidds húsnæðisstuðnings að fjárhæð 23.116 kr. fyrir nóvember og desember 2023 og 328.245 kr. fyrir árið 2024. Greinargerð stofnunarinnar barst 12. ágúst 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. ágúst 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 15. ágúst 2025.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa verið með leigusamning við son eiginkonu sinnar þar sem þau hafi verið fjögur búsett í leiguhúsnæðinu og öll greitt leigu. Sértækur húsnæðisstuðningur hafi borist seint og því hafi þau þurft að greiða leiguna sjálf inn á milli. Kærandi hafi meðal annars þurft að taka út peninga út af greiðslukortum og útskýrt það fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Þrátt fyrir það hafi stofnunin ekki tekið mark á úttektum af greiðslukortum. Að mati kæranda sé óljóst hvernig Húsnæðis- og mannvirkjastofnun geti útilokað greiðslur í reiðufé þegar önnur gögn og staðfestingar liggi fyrir. Leigusali þeirra hafi sent stofnuninni staðfestingu þess efnis að leigan hefði verið að fullu greidd, bæði með bankainnlögnum og reiðufé.
III. Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík þann 27. nóvember 2023 vegna leigu á húsnæðinu B. Á umsókninni hafi þrír heimilismenn verið skráðir. Sótt hafi verið um sértækan húsnæðisstuðning á grundvelli leigusamnings, dags. 9. desember 2023. Í leigusamningi hafi eftirfarandi meðal annars verið tilgreint:
„leigusali C (sonur kæranda)
tímabundinn leigusamningur
leigutímabil 15. nóvember 2023 - 29. febrúar 2024
leigufjárhæð 350.000 kr. á mánuði.
húsaleiga greiðist inn á reikning X í eigu leigusala“
Aðilar hafi síðan gert nýjan ótímabundinn leigusamning og upphaf leigutíma hafi verið 1. mars 2024.
Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 19. desember 2023. Greiðslur sértæks húsnæðisstuðnings til kæranda hafi numið 232.500 kr. fyrir heilan mánuð. Í bréfi til kæranda hafi athygli verið vakin á því að það væri á ábyrgð umsækjanda að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um allar þær breytingar sem yrðu á aðstæðum sem kynnu að hafa áhrif á rétt til sértæks húsnæðisstuðnings. Ef í ljós kæmi við endurreikning að umsækjandi hefði fengið ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning bæri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hefði verið ofgreidd.
Þann 21. febrúar 2024 hafi kærandi verið upplýstur um að breytingar á fjárhæðum og útreikningi sértæks húsnæðisstuðnings hefðu tekið gildi 1. febrúar 2024, sbr. 3. gr. laga nr. 5/2024. Frá þeim tíma hafi greiðslur sértæks húsnæðisstuðnings til kæranda numið 279.000 kr. fyrir heilan mánuð. Samkvæmt 13. gr. laga laga um sértækan húsnæðisstuðning ráðist fjárhæðin af fjölda heimilismanna, sbr. þó 14. gr. Hámarksfjárhæð sértæks húsnæðisstuðnings miðað við þrjá heimilismenn hafi verið 232.500 kr. fyrir heilan mánuð í byrjun greiðslutímabilsins en 279.000 kr. frá 1. febrúar 2024.
Þann 29. febrúar 2025 hafi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fjallað um rétt kæranda til sértæks húsnæðisstuðnings og frestað afgreiðslu umsóknar. Óskað hafi verið eftir greiðslukvittunum eða öðrum gögnum sem staðfestu að leigugreiðslur hefðu farið fram á tímabilinu nóvember 2023 til desember 2024. Áréttað hafi verið að koma þyrfti fram dagsetning og fjárhæð greiðslu ásamt kennitölu greiðanda og viðtakanda. Í bréfinu hafi komið fram að umbeðnar upplýsingar og gögn þyrftu að hafa borist innan 15 daga. Að öðrum kosti myndi ákvörðun stofnunarinnar byggjast á fyrirliggjandi gögnum.
Beiðni um upplýsingar hafi verið send á grundvelli 17. gr. laga um sértækan húsnæðisstuðning en þar segi að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skuli reglulega sannreyna þær upplýsingar sem ákvörðun um rétt til sértæks húsnæðisstuðnings byggist á. Einnig hafi verið litið til þess að í ljós hafi komið að kærandi og leigusali tengdust fjölskylduböndum. Auk þess hafi legið fyrir upplýsingar um að kærandi hefði keypt fasteignina að D ásamt fjölskyldu sinni í apríl 2024. Samkvæmt kaupsamningi hafi eignin verið afhent kaupendum 29. apríl 2024.
Þann 26. mars 2025 hafi stofnunin fjallað um rétt kæranda til sértæks húsnæðisstuðnings og tekið ákvörðun um að synja umsókn þar sem umbeðin gögn hefðu ekki borist. Kærandi hafi ekki orðið við beiðni Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 29. janúar um afhendingu á umbeðnum upplýsingum sem nauðsynlegar hefðu verið til að sannreyna rétt hans til sértæks húsnæðisstuðnings, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga um sértækan húsnæðisstuðning. Það hafi verið mat stofnunarinnar að óljóst væri hvort réttur til greiðslu sértæks húsnæðisstuðnings væri til staðar þar sem ekki hafi legið fyrir staðfestar upplýsingar um að leigufjárhæð hafi verið greidd fyrir leiguafnot af húsnæðinu.
Með bréfi, dags. 26. mars 2025, hafi kærandi fengið sent lokauppgjör sértæks húsnæðisstuðnings. Þar hafi komið í ljós að kærandi hefði fengið ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning, samtals 3.658.000 kr.
Greiðslutímabil Áður greitt Endurgreiðsla
Nóv - des 2023 356.500 kr. -356.500 kr.
jan - des 2024 3.301.500 kr. -3.301.500 kr.
Samtals: 3.658.000 kr. -3.658.000 kr.
Í forsendum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í framangreindu lokauppgjöri hafi verið litið svo á að engar leigugreiðslur hefðu verið greiddar fyrir leiguafnot af húsnæðinu á tímabili sértæks húsnæðisstuðnings.
Þann 2. apríl hafi kærandi haft samband við stofnunina og gert athugasemdir við lokauppgjör, dags. 26. mars 2025. Erindinu hafi verið svarað og vísað til bréfs, dags. 29. janúar 2025, þar sem óskað hafi verið eftir upplýsingum og gögnum til staðfestingar á leigugreiðslum. Kærandi hafi þann 20. apríl sent Húsnæðis- og mannvirkjastofnun gögn um bankamillifærslur og peningaúttektir af greiðslukortum sem að hans sögn hafi verið notaðar til að greiða leigusala í reiðufé þar sem erfitt væri að leggja inn peninga.
Við yfirferð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á fyrirliggjandi gögnum hafi verið fallist á staðfestar bankamillifærslur að fjárhæð 2.558.500 kr. og þær hafi verið lagðar til grundvallar í lokauppgjörinu. Ekki hafi verið fallist á greiðslur með reiðufé þar sem óvissa hafi verið um raunverulega ráðstöfun fjármunanna.
Staðfestar millifærslur
Dagsetning Fjárhæð
04.12.2023 50.000
19.12.2023 124.000
29.12.2023 232.500
01.02.2024 200.000
05.04.2024 220.000
02.05.2024 220.000
03.06.2024 220.000
01.07.2024 220.000
01.08.2024 179.000
02.09.2024 179.000
01.10.2024 179.000
04.11.2024 179.000
29.11.2024 179.000
30.12.2024 177.000
Samtals 2.558.500
Í kjölfar nýrra upplýsinga frá kæranda hafi verið tekin ákvörðun í málinu. Með bréfi, dags. 7. maí 2025, hafi kærandi fengið sent lokauppgjör sértæks húsnæðisstuðnings. Þar hafi komið í ljós að kærandi hefðu fengið ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning sem hafi samtals numið 1.416.325 kr.
Greiðslutímabil Áður greitt Endurgreiðsla
Nóv - des 2023 356.500 kr. -226.000 kr.
jan - des 2024 3.301.500 kr. -1.190.325 kr.
Samtals: 3.658.000 kr. -1.416.325 kr.
Samkvæmt leigusamningum hafi leiga átt að greiðast með bankamillifærslu til leigusala fyrsta dag hvers mánaðar. Leigufjárhæð sem fram komi í leigusamningi sé sú fjárhæð sem reiknað sé með að kærandi sé að greiða og réttur kæranda til sértæks húsnæðisstuðnings byggi á leigufjárhæð. Með húsnæðiskostnaði í skilningi laga um sértækan húsnæðisstuðning sé átt við þann hluta leigufjárhæðar sem greiddur sé fyrir leiguafnot af húsnæði en aðrar greiðslur teljist ekki til húsnæðiskostnaðar, sbr. 14. gr. laganna.
Í framangreindu bréfi hafi komið fram að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefði endurreiknað sértækan húsnæðisstuðning kæranda samkvæmt lögum um sértækan húsnæðisstuðning. Í lögunum sé húsnæðiskostnaður skilgreindur sem sá hluti leigufjárhæðar sem greiddur sé fyrir leiguafnot af húsnæði. Að mati stofnunarinnar hafi innsend gögn kæranda sýnt að leigugreiðsla hafi verið lægri en reiknað hafði verið með. Í lokauppgjörinu hafi leigugreiðslur verið skráðar samkvæmt fyrirliggjandi gögnum sem staðfestu með sannanlegum hætti að hefði verið greiddar.
Þann 27. maí 2025 hafi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun borist tölvupóstur frá kæranda ásamt undirritaðri staðfestingu frá leigusala um að húsaleiga væri að fullu greidd og að leigan hefði yfirleitt verið greidd í tvennu lagi, megin hluti með millifærslu og svo með reiðufé. Í svari stofnunarinnar hafi komið fram að það væri mat stofnunarinnar að ekki væri hægt að taka umræddu bréfi sem staðfestingu á leigugreiðslum. Jafnframt hafi verið ítrekað hvers konar gögn gætu staðreynt rétt kæranda til sértæks húsnæðisstuðnings.
Þann 12. júní 2025 hafi kærandi afhent Húsnæðis- og mannvirkjastofnun gögn er hafi sýnt úttektir af kreditkorti kæranda úr hraðbanka. Þau gögn hafi verið tekin til frekari skoðunar og metin með tilliti til þeirra gagna sem áður höfðu borist en ekki hafi verið hægt að sannreyna að viðkomandi úttektir hefðu borist sem leigugreiðslur til leigusala.
Þann 8. júlí 2025 hafi kærandi verið upplýstur um að það væri mat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar að ekki væri hægt að taka úttektum í reiðufé úr hraðbanka sem staðfestingu á leigugreiðslum og að lokauppgjör myndi haldast óbreytt. Þann 8. júlí 2025 hafi ákvörðun stofnunarinnar um ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála. Í kjölfar erindis úrskurðarnefndarinnar hafi stofnunin farið yfir mál kæranda. Í ljósi nýrra upplýsinga hafi stofnunin afturkallað ákvörðun sína frá 7. maí 2025 og tekið nýja ákvörðun í málinu sem hafi verið send kæranda. Með bréfi, dags. 15. júlí 2025, hafi kærandi fengið sent lokauppgjör sértæks húsnæðisstuðnings. Samkvæmt lokauppgjörinu hafi kærandi fengið samtals 351.361 kr. í ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning.
Samkvæmt leigusamningi hafi leigufjárhæðin verið 350.000 kr. á mánuði eða 4.736.667 kr. á tímabili sértæks húsnæðisstuðnings.
16. - 30. nóv 2023 (16 dagar) 186.667 kr.
1. des 2023 - 31. des 2024 (13 mán.) 4.550.000 kr.
Samtals leiga skv. leigusamningi 4.736.667 kr.
Við yfirferð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á fyrirliggjandi gögnum hafi verið fallist á staðfestar bankamillifærslur að fjárhæð 2.558.500 kr. og þær hafi verið lagðar til grundvallar í lokauppgjörinu. Jafnframt hafi verið lagðar til grundvallar staðfestar peningaúttektir úr hraðbanka að fjárhæð 1.420.000 kr., sem hafi verið metið að hefðu borist til leigusala sem leigugreiðslur. Samtals hafi leigugreiðslur því numið 3.978.500 kr.
Dagsetning Fjárhæð
01.12.2023 150.000 Hraðbankaúttekt
04.12.2023 50.000 Millifærsla
05.12.2023 120.000 Hraðbankaúttekt
19.12.2023 124.000 Millifærsla
29.12.2023 232.500 Millifærsla
01.02.2024 200.000 Millifærsla
1.03.2024 150.000 Hraðbankaúttekt
03.03.2024 150.000 Hraðbankaúttekt
05.04.2024 220.000 Millifærsla
02.05.2024 220.000 Millifærsla
03.06.2024 220.000 Millifærsla
03.06.2024 150.000 Hraðbankaúttekt
05.06.2024 150.000 Hraðbankaúttekt
01.07.2024 220.000 Millifærsla
01.08.2024 179.000 Millifærsla
02.09.2024 179.000 Millifærsla
03.09.2024 70.000 Hraðbankaúttekt
03.09.2024 110.000 Hraðbankaúttekt
05.09.2024 80.000 Hraðbankaúttekt
08.09.2024 30.000 Hraðbankaúttekt
01.10.2024 179.000 Millifærsla
03.11.2024 110.000 Hraðbankaúttekt
04.11.2024 179.000 Millifærsla
29.11.2024 179.000 Millifærsla
30.12.2024 177.000 Millifærsla
13.01.2025 150.000 Hraðbankaúttekt
Samtals 3.978.500
Ljóst sé að sá hluti leigufjárhæðar sem hafi í raun verið greiddur fyrir leiguafnot hafi verið lægri en leigusamningur hafi gert ráð fyrir að yrði greidd á tímabilinu.
Lokauppgjör 15. júlí 2025.
Greiðslutímabil Áður greitt Endurgreiðsla
Nóv - des 2023 356.500 kr. -23.116 kr.
Jan - des 2024 3.301.500 kr. -328.245 kr.
Samtals: 3.658.000 kr. -351.361 kr.
Lokauppgjör sértæks húsnæðistuðnings:
Mánuður Leigufjárhæð Bótafjárhæð Áður greitt Mismunur
notuð í útreikn. skv. lokauppgj.
11-2023 279.179 124.000 - 124.000 -0
12-2023 279.179 209.384 -232.500 -23.116
Samtals 2023 558.358 333.384 -356.500 -23.116
01- 2024 279.179 209.384 -232.500 -23.116
02 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
03 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
04 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
05 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
06 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
07 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
08 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
09 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
10 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
11 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
12 — 2024 279.179 251.261 -279.000 -27.739
Samtals 2024 3.350.148 2.973.255 -3.301.500 -328.245
Samtals 3.908.506 3.306.639 -3.658.000 -351.361
Þann 22. júlí 2025 hafi kærandi sent úrskurðarnefndinni athugasemd við nýtt lokauppgjör stofnunarinnar, dags. 15. júlí 2025, hafi hafi talið sig hafa sýnt fram á að leigufjárhæð á tímabilinu nóvember 2023 til desember 2024 hafi verið greidd að fullu.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi yfirfarið málið með tilliti til útreiknings sértæks húsnæðisstuðnings, sbr. 1. mgr. 13. gr. laga um sértækan húsnæðisstuðning og greiddrar leigu skv. fyrirliggjandi gögnum. Jafnframt sé tekið tillit til þess að fyrsti mánuður leigutíma sé hlutfallslegur miðað við fjölda daga í mánuðinum og þá hafi verið tekið tillit til þess að eina úttekt 3. september 2024 að fjárhæð 70.000 kr. hafi vantað í fyrri útreikning. Í ljósi alls þessa hafi komið í ljós að kærandi hafi fengið ofgreiddan húsnæðisstuðning, samtals að fjárhæð 208.861 kr. Kæranda hafi verið sent leiðrétt lokauppgjör, dags. 12.8.2025.
Í máli þessu sé deilt um lokauppgjör sértæks húsnæðisstuðnings vegna greiðslna á tímabilinu 15. nóvember 2023 til 31. desember 2024. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörs, dags. 15. júlí 2025, hafi kærandi fengið ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning á tímabilinu vegna misræmis á milli leigufjárhæðar samkvæmt leigusamningi og greiddri leigu. Að mati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafi kærandi ekki getað sýnt fram á eða lagt fram gögn sem hafi staðfest með fullnægjandi hætti að hann hefði greitt nema hluta leigufjárhæðar.
Í 2. gr. laga nr. 94/2023 um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ komi fram að markmið laganna sé að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfi að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Í 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. sé húsnæðiskostnaður skilgreindur sem sá hluti leigufjárhæðar sem greiddur sé fyrir leiguafnot af húsnæði.
Í V. kafla laga um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ sé fjallað um útreikning sértæks húsnæðisstuðnings. Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga um sértækan húsnæðisstuðning ráðist mánaðarleg fjárhæð sértæks húsnæðisstuðnings af fjölda heimilismanna samkvæmt greininni, sbr. þó 14. gr.
Í 1. mgr. 14. gr. laga nr. 94/2023 um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ komi fram að sértækur húsnæðisstuðningur geti aldrei numið hærri fjárhæð en 90% af húsnæðiskostnaði vegna viðkomandi húsnæðis. Fram til 1. febrúar 2024 hafi hlutfallið verið 75%. Í 2. mgr. 14. gr. komi svo fram að með húsnæðiskostnaði í lögunum sé átt við þann hluta leigufjárhæðar sem greiddur sé fyrir leiguafnot af húsnæði. Tekið sé fram í greininni að aðrar greiðslur og kostnaðarþættir sem leigjanda beri að greiða samkvæmt samningi eða lögum, svo sem fyrir hita, vatn, rafmagn, hússjóð, viðhald og fleira teljist ekki til húsnæðiskostnaðar í skilningi laganna.
Sú leigufjárhæð sem komi fram í leigusamningi sé sú fjárhæð sem réttur kæranda til sértæks húsnæðisstuðnings byggi á. Eins og áður segi komi fram í framangreindum leigusamningi að leigufjárhæð skuli vera 350.000 kr. á mánuði og greiðast með bankamillifærslu til leigusala fyrsta dag hvers mánaðar. Fyrir liggi að greiðslur sértæks húsnæðisstuðnings til kæranda á tímabilinu hafi verið reiknaðar út frá þeirri leigufjárhæð og numið 124.000 kr. vegna hluta af nóvember 2023, 232.500 kr. á mánuði fyrir tímabilið desember 2023 til janúar 2024 og 279.000 kr. á mánuði frá febrúar 2024.
Með frestun, dags. 29. janúar 2025, hafi afgreiðslu umsóknar kæranda verið frestað og óskað eftir að hann legði fram staðfestingu á leigugreiðslum. Innsend gögn kæranda sýni fram á að leigugreiðsla hafi verið lægri en sú sem reiknað hafi verið með og af þeim sökum hafi stofnast til ofgreiðslu á sértækum húsnæðisstuðningi. Kærandi beri hallann af því að geta ekki lagt fram fullnægjandi gögn sem staðfesti að greidd leigufjárhæð hafi verið í samræmi við leigusamning. Þar sem kærandi hafi ekki getað lagt fram gögn sem staðfesti að hann hafi verið að greiða 350.000 kr. í leigu á mánuði með bankamillifærslu til leigusala hafi niðurstaða endurreiknings Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verið að sértækur húsnæðisstuðningur hefði verið ofgreiddur.
Í 11. gr. laga um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ komi fram að umsækjandi skuli veita Húsnæðis- og mannvirkjastofnun allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað sé eftir og nauðsynlegar séu til að staðreyna rétt hans til sértæks húsnæðisstuðnings.
Í VII. kafla laga um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ sé fjallað um eftirlit og endurreikning sértæks húsnæðisstuðnings. Í 1. mgr. 17. gr. komi fram að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skuli reglulega sannreyna þær upplýsingar sem ákvörðun um rétt til sértæks húsnæðisstuðnings byggist á. Í 1. mgr. 19. gr. laganna komi fram að hafi umsækjandi fengið hærri sértækan húsnæðisstuðning en honum hafi borið á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun geri kröfu um að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að innheimta ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning til kæranda vegna tímabilsins nóvember 2023 til desember 2024 á grundvelli laga nr. 94/2023 um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Markmið laga nr. 94/2023 um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ er að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, sbr. 2. gr. laganna. Í 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. laganna kemur fram að húsnæðiskostnaður sé sá hluti leigufjárhæðar sem greiddur er fyrir leiguafnot af húsnæði, sbr. 14. gr.
Í V. kafla laga nr. 94/2023 er fjallað um útreikning sértæks húsnæðisstuðning. Þar segir í 1. mgr. 13. gr. að mánaðarleg fjárhæð sértæks húsnæðisstuðnings ráðist af fjölda heimilismanna samkvæmt greininni, sbr. þó 14. gr. Í 1. mgr. 14. gr. laganna segir að sértækur húsnæðisstuðningur geti aldrei numið hærri fjárhæð en jafngildi 90% af húsnæðiskostnaði vegna viðkomandi húsnæðis. Fram til 1. febrúar 2024 var það hlutfall 75%.
Samkvæmt fyrirliggjandi leigusamningi kæranda, dags. 9. desember 2023, var leigufjárhæð vegna B, ákveðin 350.000 kr. sem skyldi greiða með millifærslu til leigusala fyrsta dag hvers mánaðar. Fyrir liggur að greiðslur sértæks húsnæðisstuðnings til kæranda á tímabilinu nóvember 2023 til desember 2024 voru reiknaðar út frá þeirri leigufjárhæð.
Í VII. kafla laga nr. 94/2023 er kveðið á um eftirlit og endurreikning sértæks húsnæðisstuðnings. Þar segir í 1. mgr. 17. gr. að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skuli reglulega sannreyna þær upplýsingar sem ákvörðun um rétt til sértæks húsnæðisstuðnings byggist á. Í 1. mgr. 19. gr. laganna segir að hafi umsækjandi fengið hærri sértækan húsnæðisstuðning en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.
Í janúar 2025 var óskað eftir að kærandi legði fram staðfestingu á leigugreiðslum fyrir tímabilið nóvember 2023 til desember 2024. Kærandi lagði fram gögn sem sýndu fram á millifærslur til leigusala og úttektir úr hraðbanka sem lögð voru til grundvallar við endurreikning bótanna.
Líkt og að framan greinir voru greiðslur sértæks húsnæðisstuðnings frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til kæranda reiknaðar út frá því að hann væri að greiða 350.000 kr. í leigu á mánuði með millifærslu til leigusala. Þar sem kærandi gat ekki lagt fram gögn sem staðfestu að svo há fjárhæð hefði verið greidd til leigusala leiddi endurreikningur stofnunarinnar til þeirrar niðurstöðu að ofgreiddur hefði verið sértækur húsnæðisstuðningur samtals að fjárhæð 208.861 kr., sbr. leiðrétt lokauppgjör frá 12. ágúst 2025. Kæranda ber í samræmi við framangreint ákvæði 19. gr. laga nr. 94/2023 að endurgreiða þá fjárhæð.
Ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu sértæks húsnæðisstuðnings til handa kæranda eru því staðfestar.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 12. ágúst 2025, um að innheimta ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning A, samtals að fjárhæð 208.861 kr., eru staðfestar.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir