24 september 2025

/

Nr. 724/2025 Úrskurður

Hinn 24. september 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 724/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU25040066 og KNU25040067

 

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 13. apríl 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 28. mars 2025, um að ógilda vegabréfsáritun hennar til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 28. febrúar 2025, og um frávísun frá Íslandi. Með kæranda í för var kærasti hennar og ógilti lögregla einnig vegabréfsáritun hans og frávísaði honum, sbr. úrskurð kærunefndar nr. 674/2025, dags. 25. september 2025. Leyst var úr málum þeirra saman á kærustigi.

Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 24. febrúar 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 11 daga dvöl frá 21. til 31. mars 2025 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 28. febrúar 2025 með gildistíma frá 21. mars til 4. maí 2025. Kærandi kom til Íslands 28. mars 2025, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi ásamt manni sem hún kvað vera kærasta sinn. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 28. mars 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt og kæranda vísað frá landinu.

Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda fylgdu ekki viðbótarathugasemdir.

Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi ógilt vegabréfsáritun kæranda þar sem tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem veittar voru í umsóknarferlinu auk þess sem grunur væri um að áritunarinnar hafi verið aflað á fölskum forsendum.

Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 29. mars 2025, hafi kærandi og kærasti hennar veitt óljós svör um dvöl sína á Íslandi við landamærahlið. Lögregla hafi boðið þeim til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglu á Keflavíkurflugvelli. Kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst ætla að dvelja á Íslandi í einn dag og ætti bókað flug til Lundúna degi síðar. Aðspurður hafi hún ætlað að fara í Sky Lagoon og skoða norðurljósin. Kærandi hafi upphaflega skipulagt lengri ferð en vegna vinnu kærasta hennar hafi þau þurft að stytta ferðina. Lögregla hafi flett upp umsókn kæranda um vegabréfsáritun þar sem fram kom að hún myndi dvelja á Íslandi í 11 daga en með umsókninni fylgdu upplýsingar um flug og hótelgistingu. Við frekari athugun lögreglu kom í ljós að hótelgistingin hefði verið afbókuð nokkrum dögum eftir að áritunin hafi verið samþykkt. Þá hafi ferðaáætlanir kæranda og kærasta hennar verið mismunandi, einkum hvað varðar dagsetningar heimsókna þeirra hingað til lands, en að sögn kæranda hafi kærasti hennar útbúið ferðaáætlanirnar. Kærandi hafi ekki getað veitt ítarlegar upplýsingar um ferðaáætlanirnar og misræmi þeirra á milli að undanskilinni ferð í Sky Lagoon. Í samtali lögreglu við kærasta kæranda hafði komið fram að hann myndi mæta til vinnu degi eftir komu til Íslands en aðspurð hafi kærandi greint frá því að þau myndu ferðast saman til Frakklands þann sama dag, 29. mars 2025.

Í kjölfarið tók lögregla ákvörðun um að ógilda áritun kæranda og frávísa henni á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga þar sem tilgangur ferðar væri ekki í samræmi við skipulag og ferðaáætlanir sem lágu til grundvallar í umsókn um vegabréfsáritun.

Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 13. apríl 2025. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 3. september 2025. Greinargerð kæranda barst 17. september 2025.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi sé indverskur ríkisborgari sem búi í Lundúnum. Hún hafi, ásamt kærasta sínum, fengið útgefna áritun á Schengen-svæðið frá íslenskum stjórnvöldum með gildistíma frá 21. mars til 4. maí 2025. Kærandi stundi nám á háskólastigi í Bretlandi og kærasti hennar starfi á krá í Lundúnum. Upphaflega hafi kærandi ætlað að dvelja á Íslandi frá 21. til 31. mars 2025 en vegna óviðráðanlegra aðstæðna á vinnustað kærasta kæranda hafi þau þurft að aflýsa ferð sinni og bóka nýja styttri ferð. Kærandi vísar til samskipta við lögreglu sem koma fram í skýrslu lögreglu. Kærandi byggir á því að breytingar hafi orðið á skipulagningu ferðarinnar sem kunni að gerast. Vísað er til einfaldra mistaka varðandi skýringar kærasta kæranda á misræmi ferðaáætlana á þá leið að eldri útgáfa ferðaskipulags hafi fylgt umsókn hans en nýrri útgáfa með umsókn kæranda. Þessar upplýsingar hafi reynst nýjar fyrir kæranda þegar hún var í aðstöðu lögreglu og hafi hún átt erfitt með að svara fyrir sig. Kærandi stundi nám í Bretlandi og hafi enga ástæðu til að dvelja lengur á Íslandi en henni sé heimilt.

Kærandi byggir á því að ákvörðun um frávísun hafi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins. Málsástæða lögreglu um öflun vegabréfsáritunar með sviksamlegum hætti sé með engu móti rökstudd og virðist engin rannsókn hafa leitt þann grun í ljós. Kærandi hafnar skýringu lögreglu og kveðst hafa fylgt fyrirmælum um að sækja um áritun og fengið slíka áritun útgefna með lögmætum hætti. Telur kærandi ljóst að málið hafi ekki verið fullupplýst og ákvörðunin eingöngu byggst á órökstuddum kenningum Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Kærandi telur að um verulegan annmarka á öryggisreglu sé að ræða sem leiða eigi til ógildingar á ákvörðun lögreglu. Ákvörðun lögreglu byggist m.a. á því að kærandi hafi ekki getað lagt fram gögn sem réttlætt gætu dvöl hennar hér á landi. Í ákvörðuninni séu þó ekki tilgreind þau gögn sem kærandi hafi ekki haft undir höndum þrátt fyrir þar til gerðan reit í ákvörðunareyðublaði. Kærandi mótmælir málsástæðu lögreglu og kveðst hafa átt bókað flug frá landinu degi síðar. Þá telur kærandi skýringu lögreglu um að tilgangur heimsóknar kæranda hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar á umsókn um vegabréfsáritun ekki standast skoðun. Að sögn kæranda hafi tilgangurinn verið sá sami, aðeins fyrirhugaður dvalartími hafi styst.

Kærandi byggir á því að efnislegur rökstuðningur ákvarðana lögreglu og skýrleiki forsendna þeirra sé verulega ábótavant og standist ekki áskilnað 22. gr. stjórnsýslulaga. Hvorki komi fram leiðbeiningar um að fá ákvarðanirnar rökstuddar, né séu efni og forsendur þeirra nægilega skýrar enda með engu móti greint frá því á hvaða sjónarmiðum ákvarðanirnar byggjast eða hvaða málsatvik höfðu þýðingu. Er kæranda þannig ómögulegt að meta réttarstöðu sína og hafi andmæli kæranda hvorki haft vægi né hafi henni verið leiðbeint um að leggja fram frekari gögn eða skýringar sem gætu sýnt fram á tilgang dvalar. Byggir kærandi á því að málsmeðferðin og efni ákvarðana lögreglu hafi verið háð verulegum annmörkum sem leiða eigi til ógildingar. Vísar kærandi í því samhengi til úrskurða kærunefndar nr. 708/2024, dags. 18. júlí 2024 og 362/2024, dags. 8. maí 2024, en málin varði bæði ákvarðanir lögreglu um frávísun. Telur kærandi að mál sitt hafi fengið sömu afgreiðslu og tilvitnaðir úrskurðir, þ.e. án rökstuðnings og leiðbeininga um að kærandi gæti óskað rökstuðnings og að brotið hafi verið rannsóknarreglu og andmælarétti.

Kærandi byggir á því að ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar hafi verið í andstöðu við lög. Fram kemur í lögum um landamæri að lögregla hafi heimild til afturköllunar og ógildingar ferðaheimildar, eins og ákvæðið er skilgreint í 1. tölul. 3. gr. laganna, sbr. 1. mgr. 22. gr. sömu laga, þá sé hvergi í lögunum kveðið á um heimild lögreglu til að ógilda útgefna vegabréfsáritun. Um sé að ræða verulega íþyngjandi ákvörðun sem sé í andstöðu við lög. Lögmætisreglan sé ein af grundvallarreglum íslensks stjórnsýsluréttar og stjórnskipunar sem feli í sér að ákvarðanir og athafnir stjórnvalda verði að eiga sér stoð í lögum. Samkvæmt framangreindu skorti ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar lagastoð og sé því ólögmæt. Þar sem ákvörðunin sé ólögmæt hafi forsendur lögreglu um frávísun þar sem kæranda hafi skort áritun einnig brostið.

IV.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar

Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar hinn 28. febrúar 2025, með gildistíma frá 21. mars til 4. maí 2025. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 28. mars 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar eru ekki viðbótarathugasemdir en í ákvörðun um frávísun, sem tekin var samhliða, kemur fram að áritunin hefði verið ógilt þar sem tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem veittar voru í umsóknarferlinu auk þess sem grunur væri um að áritunarinnar hafi verið aflað á fölskum forsendum.

Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a. laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir. Samkvæmt framangreindu var lögregla valdbær til þess að taka ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda og er málsástæðu kæranda um skort á lagastoð hafnað.

Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra.

Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 24. febrúar 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í 11 daga á tímabilinu 21. til 31. mars 2025. Því til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við skipulagða ferðaáætlun og bókanir fyrir flugi og gistingu. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hún fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Íslands hafi þær forsendur þó ekki staðist. Hjá lögreglu bar kærandi fyrir sig að breytingar á fyrirkomulagi vinnu kærasta hennar hafi knúið þau til að gera breytingar á ferðalögum sínum. Síðar hafi þó komið í ljós að kærandi væri á leið til Frakklands síðar sama dag og hann myndi yfirgefa Ísland. Hafi framburður um að kærasti kæranda þyrfti að mæta í vinnu 29. mars 2025 því ekki verið trúverðugur. Þá hafi gagnaöflun lögreglu leitt í ljós að kærandi hafi afbókað gistingu sína hér á landi nokkrum dögum eftir útgáfu áritunarinnar. Samkvæmt framansögðu var framburður kæranda misvísandi og byggðist framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni á röngum forsendum. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar því ekki uppfyllt þegar hún var gefin út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritun kæranda 28. mars 2025 og er sú ákvörðun staðfest.

Ákvörðun um frávísun

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Indlands og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 28. febrúar 2025.

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 28. mars 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða. Í ákvörðun lögreglu um frávísun kemur fram að upplýsingar um tilgang dvalar hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar hafi verið við umsókn um vegabréfsáritun auk þess sem grunsemdir væru um að áritunarinnar hafi verið aflað á sviksamlegan hátt. Í skýrslu lögreglu kemur einnig fram að misræmi hafi verið á ferðaáætlun kæranda samanborið við kærasta hennar. Þá hafi kærandi veitt þær skýringar að breytingar hafi orðið á ferðaáætlun þar sem kærasti hennar þyrfti að mæta til vinnu degi eftir komu til Íslands, 29. mars 2025. Síðar hafi þó komið í ljós að kærandi og kærasti hennar áttu bókaða ferð til Frakklands 29. mars 2025 og væri flugið til Lundúna því eingöngu tengiflug. Hafi framburður um breytingar á ferðaáætlun vegna vinnu kærasta kæranda því ekki staðist. Aðspurð hafi kærandi ekki getað svarað fyrirspurnum lögreglu um innihald ferðaáætlana þeirra, að undanskilinni ferð í Sky Lagoon. Samkvæmt framangreindu var framburður kæranda um tilgang og skilyrði dvalar misvísandi og dregur þekkingarleysi á ferðaáætlun úr trúverðugleika framburðar hennar. Að framangreindu virtu hefur kærandi ekki getað leitt líkur að þeim tilgangi sem hún gaf upp fyrir dvöl sinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Í málatilbúnaði kæranda eru gerðar athugasemdir við meðferð málsins, m.a. varðandi 10. og 13. gr. stjórnsýslulaga. Að virtum gögnum málsins er ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglu. Eins og atvikum málsins háttar hafa tilvitnaðir úrskurðir kæranda ekki fordæmisgildi við úrlausn málsins.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum að ógilda vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 1., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa henni á grundvelli a-, og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.

Athugasemdir við málsmeðferð lögreglu

Hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og ógildingu vegabréfsáritunar fjalla um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í hinum kærðu ákvörðunum er ekki að finna frekari rökstuðning fyrir töku þeirra annan en að hakað er við á hvaða synjunar- og afturköllunarástæðu er byggt í stöðluðum ákvarðanaeyðublöðum. Að öðru leyti kom ekki fram hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirra niðurstaðna eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvarðananna að undanskildum þeim athugasemdum um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar og að vegabréfsáritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti. Verður því að líta svo á að með hinum kærðu ákvörðunum hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinum kærðu ákvörðunum var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti voru hinar kærðu ákvarðanir ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.

Í viðbótarathugasemdum í ákvörðun um frávísun í máli kæranda kemur m.a. fram að grunur væri um að vegabréfsáritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti. Ljóst er að ákvarðanir lögreglunnar um frávísun og ógildingu vegabréfsáritunar eru aðskildar ákvarðanir sem eru hvorar um sig kæranlegar til kærunefndar. Framangreind athugasemd lýtur að ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar og hefði verið rétt að hún kæmi fram á eyðublaði um ógildingu vegabréfsáritunar. Því er beint til lögreglunnar að gæta þess að viðbótarathugasemdir sem koma fram í ákvörðun um frávísun og ógildingu vegabréfsáritunar lúti einvörðungu að efni ákvörðunarinnar.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.

The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.

 

Valgerður María Sigurðardóttir                               Vera Dögg Guðmundsdóttir