24 september 2025
/
Nr. 726/2025 Úrskurður
Hinn
úrskurður nr. 726/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU25050088 og KNU25050089
Kærur [...] og [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn
Kærendur krefjast þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Ákvarðanirnar voru birtar kærendum 16. maí 2025. Ákvarðanirnar voru kærðar til kærunefndar útlendingamála 27. maí 2025 og lögðu kærendur fram greinargerð 5. júní 2025.
III. Málsástæður og rök kærenda
Í greinargerð kærenda er vísað til fyrirliggjandi ákvarðana Útlendingastofnunar. Fram kemur að sonur kærenda sé barn að aldri og hafi fengið dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum. Hann hafi komið einsamall til landsins og búi hjá bróður sínum sem hafi takmarkaða getu til þess að sinna honum sökum mikillar vinnu. Kærendur byggja á því að umönnunarsjónarmið og sanngirnisrök mæli með því að þau fái dvalarleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Kærendur hafi notið aðstoðar Rauða krossins í umsóknarferlinu. Mótmæli kærendur þeirri niðurstöðu Útlendingastofnunar að lagaskilyrðum sé ekki fullnægt í málinu. Byggja kærendur á því að Útlendingastofnun hafi í framkvæmd bent aðilum á að þeir geti sótt um dvalarleyfi af mannúðarástæðum og vísa til ákvörðunar Útlendingastofnunar, dags. 13. desember 2024, sem nú sé til meðferðar hjá kærunefnd, því til stuðnings.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í 69. gr. laga um útlendinga er fjallað um skilyrði fyrir dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar eins og ákvæðinu var breytt með 7. gr. laga nr. 68/2024. Í 1. mgr. ákvæðisins segir að nánasti aðstandandi íslensks eða annars norræns ríkisborgara sem sé með fasta búsetu hér á landi eða útlendings sem dvelst hér á landi á grundvelli dvalarleyfis skv. 61.-65., 70., 2. mgr. 73., og 78. gr. eða ótímabundins dvalarleyfis skv. 58. gr. geti með umsókn fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar að fullnægðum skilyrðum 55. gr. og VIII. kafla laganna. Í 3. málsl. sama ákvæðis segir að til nánustu aðstandenda teljist maki, sambúðarmaki, börn viðkomandi yngri en 18 ára í forsjá hans og á framfæri og foreldrar 67 ára eða eldri.
Í 2. mgr. 69. gr. laga um útlendinga, eins og ákvæðinu var breytt með lögum nr. 68/2024, kemur fram að nánasti aðstandandi útlendings sem dvelst hér á landi á grundvelli dvalarleyfis skv. 3. mgr. 73. gr. geti með umsókn fengið dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar að fullnægðum skilyrðum 55. gr. og VIII. kafla hafi sá sem umsóknin er byggð á fengið dvalarleyfi sitt endurnýjað fyrir framlagningu umsóknar. Heimilt sé að veita undanþágu frá kröfu um endurnýjun ef ríkar sanngirnisástæður mæli með því vegna aðkallandi mannúðarsjónarmiða. Sama gildi um nánustu aðstandendur útlendings sem dvelst hér á landi á grundvelli dvalarleyfis skv. 74. gr. hafi dvalarleyfið verið endurnýjað tvívegis.
Framangreind ákvæði tóku nokkrum breytingum með gildistöku laga nr. 68/2024, sbr. einkum 7. gr. breytingalaganna. Fyrir gildistöku laganna var einstaklingum sem höfðu gilt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga, heimil fjölskyldusameining án frekari skilyrða um dvalartíma og endurnýjun dvalarleyfa. Lög nr. 68/2024 voru birt í Stjórnartíðindum 3. júlí 2024 og öðluðust almennt gildi degi síðar, sbr. 2. mgr. 8. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað nr. 15/2005. Mælt var fyrir um gildistöku og lagaskil í 14. gr. breytingalaganna en samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 14. gr. laganna gildir 5. gr. laganna, sbr. 3. og 4. gr., og 6. og 7. gr. ekki um meðferð umsókna sem bárust fyrir gildistöku laganna. Um það vísast einnig til breytinga í meðförum Alþingis, sbr. nefndarálit og breytingatillögu meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar. Líkt og rakið var í málsatvikalýsingu sóttu kærendur um dvalarleyfi 13. mars 2024, eða nokkrum mánuðum fyrir samþykkt breytingalaganna á Alþingi og birtingu í Stjórnartíðindum. Með hliðsjón af framangreindu gildir 7. gr. breytingalaganna ekki um umsókn þeirra og hefði átt að beita 69. gr. laga um útlendinga, eins og hún hljóðaði fyrir gildistöku breytingalaganna.
Samkvæmt 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga, eins og ákvæðið hljóðaði þegar umsóknir kærenda voru lagðar fram, var fjölskyldusameining heimil einstaklingum sem dvöldu á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu kemur 69. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að kærendum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Í hinum kærðu ákvörðunum var ekki tekin afstaða til annarra skilyrða 72. gr. laga um útlendinga. Verða hinar kærðu ákvarðanir því felldar úr gildi og lagt fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda til nýrrar meðferðar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kærenda til meðferðar á ný.
The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellants cases.