25 september 2025
/
Nr. 741/2025 Úrskurður
Hinn
úrskurður nr.
í stjórnsýslumáli nr.
Kæra
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og
Schengen-svæðisins
3 Málsástæður og rök kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hún hafi hlotið synjun á umsókn sinni um vegabréfsáritun vegna þess að hún hafi ekki skilað fullnægjandi búsetuskráningarvottorði (k. Hukou). Hún hafi í upphafi lent í erfiðleikum með að skila inn forsíðu vottorðsins og í kjölfarið sent utanríkisþjónustunni ýmis viðbótargögn þar að lútandi í þrígang.
Kærandi greinir frá því í kæru að meðfylgjandi kærunni væri að finna afrit af nýrri forsíðu búsetuvottorðsins, en skjalið var ekki meðfylgjandi. Þá var kæranda leiðbeint um að leggja gögnin fram með tölvubréfi kærunefndar, dags. 16. júní 2025, en ekkert svar barst frá henni. Kærandi lagði ekki fram ný gögn á kærustigi.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um
útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til
lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um
vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu
vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar,
einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á
hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu
vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða
atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem
öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð
um vegabréfsáritanir. Í eyðublaðinu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17
þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda
er merkt í reit
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda
jafnframt leiðbeint um að
Gögn sem sýna fram á tengsl við
heimaríki og ásetning um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna, í tilviki
kæranda búsetuskráningarvottorð, eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn
um vegabréfsáritanir , sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um
vegabréfsáritanir, og koma fram í
Að framangreindu virtu hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hefur kærandi þannig ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar sinnar og ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðarinnar, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður