26 september 2025
/
Mál nr. 179/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 179/2025
Föstudaginn 26. september 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 19. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. febrúar 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. febrúar 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 19. mars 2025. Með bréfi, dags. 20. mars 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 10. apríl 2025 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Því bæri að fallast á kröfu kæranda um að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. apríl 2025, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð 5. júní og 10. júlí 2025. Svar barst ekki.
II. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. febrúar 2025, um að fella niður rétt kæranda til greiðslu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því bæri að fallast á kröfu hans um að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.
Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur afturkallað hina kærðu ákvörðun verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar vegna þeirrar ákvörðunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir