26 september 2025

/

Mál nr. 412/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 412/2025

Föstudaginn 26. september 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. júní 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. september 2023 og var umsóknin samþykkt 10. október 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Í kjölfarið lagði kærandi fram ný gögn og var mál hennar því tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. apríl 2025, var fyrri ákvörðun stofnunarinnar staðfest með vísan til þess að hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. júní 2025. Með bréfi, dags. 22. júlí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 20. ágúst 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að að hún hafi misst starf sitt í desember 2024 vegna þess að rekstri á stofunni sem hún hafi starfað hjá hafi verið hætt. Kærandi hafi komist að því að hún væri ófrísk og gengin 10 vikur í desember. Hún hafi farið á 100% atvinnuleysisbætur í janúar og febrúar en svo fengið vinnu í byrjun mars. Kærandi hafi látið Greiðslustofu vita af því og hafi fengið tölvupóst um að hún væri þá skráð í 50% hlutastarf á móti bótum frá og með 3. mars 2025. Vinnan sé tæplega 50% og hún hafi þá ætlað að vera á 50% bótum á móti. Kærandi hafi verið í vinnunni þegar viðtalið og námskeiðið hafi verið haldið. Kærandi hafi látið vita klukkustund eftir námskeiðið að hún væri í vinnu og þá fengið viðurlög og ekki bætur í apríl og maí. Kærandi hafi talið að hún hefði verið búin að skrá hlutastarfið þar sem hún hafi fengið tölvupóst frá Greiðslustofu um að hún væri skráð frá 3. mars 2025 í hlutastarfið. Kærandi geri sér grein fyrir því að hún hafi gert mistök með að láta ekki vita fyrir fram að hún kæmist ekki á námskeiðið þann 12. mars en hún hafi látið vita fyrir námskeiðið að hún væri í vinnu. Kærandi hafi talið að hún væri að gera gott með því að taka þessu hlutastarfi og vera þá á 50% bótum á móti í staðin fyrir að vera á 100% bótum og vinna ekkert. Það séu ekki margir sem ráði inn konu sem sé gengin meira en hálfa meðgöngu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 18. september 2023. Með erindi, dags. 10. október 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðað viðtal þann 12. mars 2025, klukkan 10:00. Umrædd boðun hafi verið send þann 10. mars 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 10. mars 2025, klukkan 10:44. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll hafi borið að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki mætt í boðað viðtal né boðað forföll.

Þann 10. mars 2025 hafi kæranda einnig verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma sinn frá stofnuninni, klukkan 10:48, þar sem hún hafi verið boðuð á námskeið sem hafi verið haldið á vegum Vinnumálastofnunar dagana 13., 14., 18., 19., og 20. mars 2025, klukkan 13:00 til 16:30 á Bókasafni Kópavogs í Hamraborg. Umrædd boðun hafi verið send þann 10. mars 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 10. mars 2025, klukkan 10:48. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll hafi borið að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðað námskeið.

Þann 12. mars 2025 hafi borist tölvupóstur frá kærandi á netfangið [email protected]. Í tölvupósti kæranda hafi eftirfarandi komið fram:

„Góðan dag, ég er í vinnu á þessum tímum sem námskeiðin eru sem ég er boðuð á. Ég starfa 40-50% starf á móti bótum. Kveðja A.“

Erindi kæranda hafi verið svarað af hálfu ráðgjafa Vinnumálastofnunar samdægurs með eftirfarandi hætti:

„Sæl A, þú ert ekki búin að skrá þig í hlutastarf á mínar síður. Samkvæmt upplýsingum sem við erum með lauk hlutastarfi þínu þann 27.12.24. Í febrúar talaðir þú um að þú værir að hefja störf í lok feb eða mars og myndir í kjölfar afskrá þig af bótum, því var námskeiði og viðtölum frestað. Þú áttir einnig að mæta í viðtal í morgun sem þú gerðir ekki. Þú þarft því að skrá hlutastarfið inn og greiðslustofa mun óska eftir upplýsingum varðandi vinnu og skýringu á fjarveru í viðtal í morgun.“

Með erindi, dags. 12. mars 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs viðtals þann 12. mars 2025, klukkan 10:00 og af hverju hún hafi ekki boðað forföll fyrr en eftir á. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.

Þann 14. mars 2025 hafi borist skriflegar skýringar frá kæranda þar sem hún hafi beðist afsökunar á að hafa ekki boðað forföll í boðað viðtal þann 10. mars 2025, klukkan 10:00. Hún hafi borið því við að hún væri ólétt og gengið 10 vikur á leið. Hún hafi orðið atvinnulaus í desember 2024 sökum þess að rekstri hárgreiðslustofu sem hún hafi starfað hjá hafi verið hætt. Kærandi hafi sagst vera komin í 50% hlutastarf frá byrjun mars 2025 á hárgreiðslustofu samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Hún hygðist vera á 50% atvinnuleysisbótum á móti 50% vinnu. Hún hafi verið upptekin í vinnunni á þeim tíma sem viðtalið og námskeiðið hafi farið fram og því ekki getað mætt.

Með erindi, dags. 27. mars 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar í tvo mánuði sökum þess að hún hafi hvorki mætt í boðað viðtal við ráðgjafa Vinnumálastofnunar þann 12. mars 2025 né sinnt boðun á námskeið. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 1. apríl 2025 hafi borist frekari skýringar frá kæranda. Í skýringum sínum hafi hún ítrekað fyrri skýringar þess efnis að hún hefði ekki getað mætt í boðað viðtal né námskeið sökum anna í nýju starfi. Kærandi væri nú búin að tilkynna um hlutastarf sitt samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta.

Með erindi, dags. 29. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að ákvörðun stofnunarinnar frá 27. mars 2025 væri staðfest þar sem ekki hafi neitt í gögnum frá kæranda breytt forsendum þeirrar ákvörðunar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal þann 12. mars 2025, klukkan 10 né á boðað námskeið á tímabilinu 13. til 20. mars 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreindar hafi verið tímasetningar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa.

Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni í umrætt viðtal og námskeið. Hún hafi verið upptekin í hlutastarfi. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki skráð hlutastarf sitt þegar hún hafi verið boðuð í viðtal og námskeið í mars 2025. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að stofnuinni hafi ekki borist tilkynning frá kæranda um að hún væri í 50% hlutastarfi samhliða því að vera í 100% virkri atvinnuleit. Fregnir af stöðu kæranda hafi fyrst borist eftir að hún hafi verið boðuð á viðtal og námskeið. Ekki sé fallist á það teljist til gildrar skýringar á fjarveru á námskeið hjá stofnuninni að viðkomandi atvinnuleitandi hafi verið við störf á sama tíma og námskeið hafi farið fram í þeim tilvikum sem Vinnumálastofnun sé ókunnugt um hlutastarf atvinnuleitanda.

Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.

Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði beri henni að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 10. mars 2025 boðuð í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldið var þann 12. mars 2025. Kærandi var einnig sama dag boðuð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem haldið var dagana 13., 14., 18., 19. og 20. mars 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun í viðtal en ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar. Kærandi var jafnframt upplýst um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga.

Fyrir liggur að kærandi hvorki mætt í boðað viðtal né boðaði forföll. Þá mætti kærandi ekki á námskeiðið þar sem hún kvaðst vera í hlutastarfi samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að henni bæri að mæta bæði í boðað viðtal og á boðað námskeið. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru hennar í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun og boðað vinnumarkaðsúrræði.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir