29 september 2025
/
Nýsköpunarráðstefna: Ráðherrar kynna ný verkefni n.k. miðvikudag
Heilbrigðisráðuneytið og menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið standa fyrir nýsköpunarráðstefnu í Grósku n.k miðvikudag. Áhugi á ráðstefnunni er mikill en örfá sæti eru enn laus – skráning á nýsköpunarráðstefnuna.
Ráðstefnunni verður einnig streymt á vef stjórnarráðsins auk þess sem upptaka frá streyminu verður aðgengileg að ráðstefnunni lokinni.
Dagskráin er yfirgripsmikil og kemur meðal annars inn á áskoranir, tækifæri og mögulegar lausnir við þróun heilbrigðiskerfis framtíðarinnar. Auk erinda verða tvennar pallborðsumræður þar sem gestir geta spurt þátttakendur spurningar. Gestum gefst einnig færi á að kynna sér starfsemi og verkefni ýmissa nýsköpunarfyrirtækja og stofnanna á þar til gerðu kynningarsvæði sem staðsett verður við hlið fundarasalsins. Nánar um dagskrána.
Hannað fyrir heilbrigðiskerfið
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni er Dr. Markus Lingman, yfirlæknir og prófessor í Halland í Svíþjóð. Hann hefur unnið öflugt frumkvöðlastarf á sviði gervigreindar í heilbrigðisþjónustu og er einn af helstu hvatamönnum gagnadrifinnar heilbrigðisþjónustu þar í landi. Dr. Lingman er fulltrúi í Vísindaráði um læknisfræði og heilbrigði á vegum sænskra stjórnvalda og mun deila reynslu sinni af umbótum sem byggja á samþættingu gagna og innleiðingu gervigreindarlausna í sænskt heilbrigðiskerfi.
Einnig flytja erindi Barry Katz og Schirin Lucie Richter, sem eru meðhöfundar bókarinnar Healthcare by Design. Katz er prófessor í hönnunar- og nýsköpunarsögu við California College of the Arts og Stanford háskóla. Schirin Lucie Richter er mannfræðingur með áratuga reynslu af nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Richter er meðstofnandi fyrirtækisins Future Medical Systems og sérhæfir sig m.a. í að tryggja upplifun sjúklinga við þróun nýrra lausna. Erindi þeirra fjallar um hvernig hanna eigi lausnir til að mæta raunverulegum áskorunum í heilbrigðisþjónustu frá notendamiðuðu sjónarhorni.
Ráðherrar kynna ný verkefni
Meðal innlendra fyrirlesara eru Borghildur Erlingsdóttir forstjóri Hugverkastofu, Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar, Sveinbjörn Ingi Grímsson, sérfræðingur í opinberri nýsköpun og stefnumótandi innkaupum hjá Fjársýslu ríkisins, Sigríður Haralds Elínardóttir og Ingi Steinar Ingason hjá embætti landlæknis. Erindi þeirra snúa að því að skýra og leiðbeina nýsköpunarfyrirtækjum um frumskóg þeirra ferla sem snúa að innleiðingu lausna og hvernig gera megi ferlið frá hugmynd að heilbrigðislausn skilvirkara.
Á þeim nótum munu heilbrigðisráðherra og menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra loka ráðstefnunni með því að kynna ný verkefni sem miða að því að greiða leið nýsköpunarfyrirtækja að innleiðingu heilbrigðislausna á ábyrgan og skilvirkan hátt. Verkefnin eru unnin út frá ábendingum frá hagaðilum í nýsköpunar- og heilbrigðisgeiranum og í takt við stefnu málaflokka ráðuneytanna sem og hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar.