02 október 2025
/
Ársfundur Jöfnunarsjóðs: Breytingar marka nýjan kafla í sögu sjóðsins
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var haldinn í gær og samhliða kom út ársskýrsla sjóðsins fyrir rekstrarárið 2024. Heildarframlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga námu 90,2 milljörðum króna 2024. Framlög vegna málefna fatlaðra námu um 40,5 milljörðum kr. en næst á eftir komu framlög vegna reksturs grunnskóla sem námu tæpum 19 milljörðum kr.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagði í ávarpi sínu að mikilvægum áfanga hafi verið náð þegar ný heildarlög um Jöfnunarsjóð voru samþykkt á Alþingi í sumar. „Breytingarnar tryggja að gæði jöfnunar verða meiri og komið er í veg fyrir yfirjöfnun sem verið hefur í núverandi kerfi. Breytingarnar stuðla að sanngjarnari skiptingu sameiginlegra tekna til að standa undir nauðsynlegri þjónustu sveitarfélaganna við íbúa. Sambærileg sveitarfélög munu nú fá sambærileg framlög úr sjóðnum.“„Mitt mat er að samþykkt nýju laganna marki upphaf að nýjum kafla í sögu sjóðsins. Ég mun í framhaldinu leggja áherslu á að næstu skref felist í heildarendurskoðun á grunnskólaframlagi sjóðsins. Ég tel þannig fullt tilefni sé til að skoða hvort ekki sé tímabært að lækka hlutdeild sjóðsins í útsvari vegna grunnskóla,“ segir Eyjólfur.
Ný lög um Jöfnunarsjóð taka gildi 1. janúar nk. og fela það m.a. í sér að helstu jöfnunarframlög sjóðsins eru sameinuð í eitt framlag. Breytingar verði innleiddar í skrefum og gert er ráð fyrir því að nýja kerfið taki ekki að fullu gildi fyrr en á árinu 2030.
Aukin framlög til þjónustu við fatlað folk
Eyjólfur fagnaði því í ávarpi sínu að niðurstöður úr ársreikningum sveitarfélaga gefi til kynna viðsnúning í rekstri sveitarfélaga. Rekstrarafkoma hafi almennt batnað umtalsvert frá fyrra ári og í fyrsta sinn frá því fyrir heimsfaraldur skili rekstur A-hluta sveitarfélaga afgangi.„Betri fjárhagsstaða sveitarfélaga er að stórum hluta tilkominn vegna hækkunar framlaga Jöfnunarsjóðs til þjónustu við fatlað fólk, auk þess sem hægt hefur á hækkun lífeyrisskuldbindinga sveitarfélaga milli ára. Einnig má rekja bata til þess að sveitarfélög hafa sýnt aðhald í rekstri og dregið úr fjárfestingum og lántökum. Þótt verkefnin séu áfram krefjandi gefur þessi þróun okkur tilefni til bjartsýni og sýnir að grunnurinn að rekstri sveitarfélaganna er víðast hvar traustur,“ sagði ráðherra.
Sterk fjárhagsstaða sjóðsins
Guðni Geir Einarsson, forstöðumaður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, fór síðan yfir ársreikning sjóðsins fyrir árið 2024.
Guðni Geir sagði sjóðinn standa sterkt þótt halli hafi orðið á rekstri síðasta árs sem nemi 267 milljónum kr. Eigið fé hafi numið 327 milljónum kr. í lok árs 2024. Hann sagði stöðu Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs mjög sterka en framlög úr sjóðnum hafa m.a. nýst til að styðja vel við landsátakið Römpum upp Ísland og átak í aðgengismálum fatlaðs fólks í samvinnu við ÖBÍ. Römpum upp Ísland lauk í mars sl. og fór fram úr öllum áætlunum. Talsvert fleiri rampar hafi verið settir upp en áætlað var í upphafi og voru byggðir á mun skemmri tíma og vel innan kostnaðaráætlana.
Framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða
Guðni Geir sagði að framlög til sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða hafi verið greidd í fyrsta sinn í desember sl. Verkefnið hafi gengið vel en markmið þess væri að leggja grundvöll að bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks. Jöfnunarsjóður fái árlegt framlag úr ríkissjóði til ársins 2027 vegna verkefnisins en gert er ráð fyrir að framlög fyrir heilt skólaár nemi 3.750 m.kr. Framlög skiptast hlutfallslega eftir heildarnemendafjölda í grunnskólum 1. janúar skólaárið á undan.