02 október 2025

/

Mál nr. 424/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 424/2025

Fimmtudaginn 2. október 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. júlí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. júní 2025, um að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. apríl 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. júní 2025, var umsókn kæranda synjað með vísan til þess að umbeðin gögn hefðu ekki borist.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. júlí 2025. Með bréfi, dags. 8. júlí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 7. ágúst 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. ágúst 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi sagt upp störfum hjá fyrirtækinu B þann 1. maí 2025, aðallega vegna óánægju með launakjör. Kærandi tekur fram að hann sé að fullu vinnufær þar sem endurhæfing hans hafi gengið mjög vel. Hann geti unnið við öll störf og sé að leita að starfi en þurfi aðstoð Vinnumálastofnunar til að lifa af þar til hann fái starf.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 18. apríl 2025. Í umsókn um atvinnuleysisbætur hafi kærandi tilgreint að vinnufærni hans væri „örorkumat“. Kærandi hafi tilgreint að óskastörf hans væru „stjórnandi við gröfu“ og „verslunarstjórnun í málningar- og járnvöruverslun“.

Samkvæmt umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur hafi hann sjálfur sagt upp störfum hjá B. Þann 21. maí 2025 hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á starfslokum hjá B. Í kjölfarið hafi borist staðfesting á starfstímabili kæranda hjá fyrirtækinu. Samkvæmt vottorðinu hafi kærandi unnið hjá fyrirtækinu sem aðstoðarmaður málara á tímabilinu 1. maí 2023 til 31. maí 2023 í 45% starfshlutfalli og á tímabilinu 1. júní 2023 til 29. apríl 2025 í 100% starfshlutfalli. Þá hafi jafnframt komið fram að kærandi hefði sjálfur sagt upp störfum. Í skriflegum skýringum hafi kærandi borið því við að starfsgeta hans væri takmörkuð sökum meiðsla sem hann hafi orðið fyrir á hendi. Kærandi hafi ítrekað í skýringum sínum að hann væri nú að leita að starfi í málingavöruverslun eða sem stjórnandi á gröfu. Jafnframt hafi borist afrit af álitsgerð um læknisfræðilega örorku kæranda vegna vinnuslyss sem kærandi hafi orðið fyrir þann 16. maí 2024. Umrædd álitsgerð hafi verið unnin af sérfræðingi í endurhæfingarlækningum og mati á líkamstjónum í kjölfar matsbeiðni lögmanns, dags. 19. febrúar 2025. Í umræddri álitsgerð komi jafnframt fram að kærandi hafi lent í vinnuslysi í starfi hjá B þann 16. maí 2024. Hafi hann aldrei að fullu jafnað sig líkamlega eftir vinnuslysið og varanleg örorka kæranda hafi verið metin 7%. Kærandi hafi sagt upp störfum þann 1. maí 2025 þar sem hann hafi ekki getað unnið lengur hjá B sökum líkamlegra óþæginda.

Með erindi, dags. 3. júní 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir starfshæfnisvottorði til að staðfesta vinnufærni kæranda, þ.e. vottorði um hvaða störf hann gæti ekki sinnt vegna skertrar vinnufærni. Ekkert starfshæfnisvottorð hafi borist frá kæranda. Með erindi, dags. 26. júní 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið hafnað sökum þess að umbeðið starfshæfnisvottorð hefði ekki borist.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur. Þar segi orðrétt:

„Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja … staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.“

Til þess að Vinnumálastofnun geti tekið afstöðu til umsókna um atvinnuleysisbætur þurfi að berast gögn sem stofnunin telji nauðsynleg hverju sinni. Í tilviki kæranda hafi stofnunin talið nauðsynlegt að kærandi skilaði inn starfshæfnisvottorði sem staðfesti hver starfsgeta hans sé, auk skriflegra skýringa á starfslokum hans hjá B.

Í umsókn kæranda hafi komið fram að hann hefði sagt upp starfi sínu. Í skýringum sínum hafi kærandi greint frá að hann hafi sagt upp störfum sökum þess að hann væri ekki lengur líkamlega fær um að sinna því.

Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit m.a. í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Af þeim gögnum sem liggi fyrir í máli þessu sé óljóst hvort kærandi sé að fullu vinnufær. Í því samhengi vísist til fyrirliggjandi álitsgerðar um læknisfræðilega örorku kæranda, auk skriflegra skýringa kæranda þar sem fram komi að hann hafi sagt starfi sínu lausu sökum verkja í handlegg.

Í a.-i. liðum 1. mgr. 14. gr. séu talin upp þau skilyrði sem atvinnuleitendur þurfi að uppfylla til að teljast vera í virkri atvinnuleit. Skilyrðin séu eftirfarandi:

„a. fær til flestra almennra starfa,

b. hefur heilsu til að taka starfi eða taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum,

c. hefur frumkvæði að starfsleit og er reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, og uppfyllir skilyrði annarra laga,

d. hefur vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara,

e. er reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi,

f. er reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu,

g. á ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann telst vera í virkri atvinnuleit nema ákvæði 17. eða 22. gr. eigi við,

h. hefur vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, og

i. er reiðubúinn að gefa Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur hans á að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum.“

Að mati Vinnumálastofnunar sé óljóst hvort kærandi sé í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem umbeðið starfshæfnisvottorð hafi ekki borist sé óljóst hvaða störfum kærandi geti sinnt. Vinnumálastofnun sé því ómögulegt að miðla kæranda í störf.

Kærandi haldi því fram í kæru að hann sé að fullu vinnufær. Þá hafi hann sagt starfi sínu lausu hjá B einkum vegna óánægju með launakjör. Skýringar kæranda þess efnis að hann hafi sagt starfi sínu lausu vegna óánægju um launakjör hafi fyrst komið fram í kæru til nefndarinnar. Kærandi hafi haldið því fram við afgreiðslu umsóknar um atvinnuleysisbætur að hann hafi sagt starfi sínu lausu hjá B sökum þess að hann hafi ekki getað sinnt því vegna verkja sem rekja megi til vinnuslyss. Þessar skýringar séu studdar álitsgerð um læknisfræðilega örorku kæranda. Það sé á færi kæranda að leggja fram starfshæfnisvottorð sem staðfesti starfsgetu hans og við hvaða störf hann geti unnið. Það hafi kærandi ekki gert þrátt fyrir beiðni Vinnumálastofnunar þess efnis. Af þeim sökum hafi borið að hafna umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, enda óljóst hvort kærandi sé í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls þess sem að framan hafi verið rakið sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að hafna beri umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur þar sem kærandi hafi ekki lagt fram umbeðið starfshæfnisvottorð og því sé óljóst hvort kærandi uppfylli skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysisbóta, sbr. 1. mgr. 13. gr. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Berist umbeðið starfshæfnisvottorð frá kæranda muni mál hans vera tekið fyrir að nýju.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. júní 2025, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur með vísan til þess að nauðsynleg gögn hefðu ekki borist og því væri ekki ljóst hvort hann uppfyllti skilyrði 13. og 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur. Þar segir í 1. mgr.:

„Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.“

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr. Í 1. mgr. 14. gr. segir að sá teljist vera í virkri atvinnuleit sem uppfylli eftirtalin skilyrði:

  1. er fær til flestra almennra starfa,
  2. hefur heilsu til að taka starfi eða taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. þó 5. mgr.,
  3. hefur frumkvæði að starfsleit og er reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, og uppfyllir skilyrði annarra laga,
  4. hefur vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara,
  5. er reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi,
  6. er reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu,
  7. á ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann telst vera í virkri atvinnuleit nema ákvæði 17. eða 22. gr. eigi við,
  8. hefur vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, og
  9. er reiðubúinn að gefa Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur hans á að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum.

Samkvæmt gögnum málsins óskaði Vinnumálastofnun eftir að kærandi legði fram vottorð um vinnufærni frá þeim lækni sem hafði annast hann vegna veikinda til þess að hægt væri að meta rétt kæranda til atvinnuleysistrygginga. Á vottorðinu þyrfti að koma fram hvaða störf kærandi gæti ekki sinnt vegna skertrar vinnufærni. Einnig þyrfti að koma fram, ef við ætti, það tímabil sem sem veikindi/óvinnufærni hafi staðið yfir. Kærandi varð ekki við þeirri beiðni Vinnumálastofnunar og var umsókn hans því synjað.

Þar sem kærandi skilaði ekki umbeðnu vottorði bar Vinnumálastofnun að synja umsókn hans, enda lá þá ekki fyrir hvort hann uppfyllti skilyrði 14. gr. laga nr. 54/2006 um virka atvinnuleit. Líkt og fram kemur í greinargerð Vinnumálastofnunar mun mál kæranda verða tekið fyrir að nýju berist umbeðið starfshæfnisvottorð.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. júní 2025, um að synja umsókn A, um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir