02 október 2025
/
Mál nr. 448/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 448/2025
Fimmtudaginn 2. október 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 22. júlí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 13. janúar 2025 og var umsóknin samþykkt 10. febrúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. júlí 2025. Með bréfi, dags. 23. júlí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 25. ágúst 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. ágúst 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðanefndar kemur fram að kærandi hafi verið fjarverandi sökum þess að það hafi þurft að ráðast í framkvæmdir á gólfi á heimili hennar með mjög litlum fyrirvara. Vegna aðstæðna hafi þurft að bregðast hratt við og því hafi hún neyðst til að dvelja uppi í sumarbústað úti á landi á meðan framkvæmdunum stóð. Kærandi greinir frá því að hún og systir hennar búi hjá ömmu þeirra og það hafi viljað þannig til að amma hennar hafi þurft að fara í vinnu þennan sama dag. Kærandi hafi því ekki haft aðgang að bíl né öðrum samgöngumáta.
Kærandi greinir frá því að systir hennar hafi nýverið lent í þriggja bíla árekstri þar sem bíll hennar hafi verið dæmdur ónýtur. Þess vegna hafi enginn bíll staðið þeim til boða og þar sem um afskekktan stað hafi verið að ræða, með takmarkaðar almenningssamgöngur, hafi kæranda einfaldlega ekki verið unnt að komast á fund með veittum fyrirvara.
Kærandi geri sér fulla grein fyrir mikilvægi þess að mæta á fundi og námskeið sem Vinnumálastofnun boði til og hún hafi ætíð mætt á það sem henni hafi verið boðið fram til þessa. Kærandi leggi mikla áherslu á að sinna öllum sínum skyldum sem skráður atvinnuleitandi og sé tilbúin til að bæta upp fyrir þessu einu fjarveru. Því biðji kærandi vinsamlegast um annað tækifæri til að mæta á fund eða viðtal og voni að þessar aðstæður verði teknar til greina við mat á málinu.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 13. janúar 2025. Með erindi, dags. 10. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 24. júní 2025 hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9 í Reykjavík þann 25. júní 2025, klukkan 12:00. Kærandi hafi verið upplýst um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta yrðu stöðvaðar. Þá var einnig tekið fram að ef kærandi væri ekki á höfuðborgarsvæðinu gæti hún mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 24. júní 2025, klukkan 11:39.
Þann 24. júní, klukkan 17:20, hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem eftirfarandi hafi komið:
„Góðan dag,
Ég fékk skilaboð um mætingu á fund frá ykkur en ég er stödd í sumarbústað þremur tímum frá Reykjavík, er hægt að fá að koma í næstu viku eða fylgjast með á netinu?
Bestu kveðjur,
A“
Kæranda hafi verið svarað og henni bent á að ef hún væri stödd utan höfuðborgarsvæðisins bæri henni að mæta á næstu mögulegu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Þá hafi kæranda jafnframt verið bent á að ekki væri unnt að mæta á annan fund og ef hún gæti ekki mætt þyrfti hún að senda inn skriflegar skýringar. Þá hafi kæranda verið bent á að fjarvera hennar án gildra ástæðna gæti leitt til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund þann 25. júní 2025.
Með erindi, dags. 9. júlí 2025, hafi stofnunin óskað eftir frekari skýringum kæranda. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Þann 10. júlí 2025 hafi frekari skýringar borist frá kæranda á ástæðum fjarveru hennar á boðaðan upplýsingafund þann 25. júní 2025. Kærandi hafi borið því við að hún hefði ekki getað mætt á boðaðan upplýsingafund sökum þess að hún hafi verið stödd út á landi í sumarbústað. Hún hafi neyðst til að dvelja í sumarbústað sökum framkvæmda á heimili hennar. Þá hafi hún ekki verið með aðgang að bifreið og því ekki getað komist til Reykjavíkur og því ekki mætt á boðaðan upplýsingafund.
Með erindi, dags. 18. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar í tvo mánuði sökum þess að hún hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þann 22. júlí 2025 hafi borist frekari skýringar frá kæranda þess efnis að hún hefði ekki getað mætt sökum óviðráðanlegra aðstæðna. Kæranda hafi með bréfi, dags. 31. júlí 2025, tilkynnt um niðurstöðu á endurskoðun á málinu og hún upplýst um að þrátt fyrir ný gögn væri mat Vinnumálastofnunar að um efnislega rétta niðurstöðu hefði verið að ræða. Ákvörðun stofnunarinnar, dags. 18. júlí 2025, hafi því verið staðfest.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 25. júní 2025, klukkan 12:00. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á umræddan upplýsingafund. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið innt eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 9. júlí 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Skýringar kæranda á fjarveru sinni á boðaðan upplýsingafund lúti einkum að því að hún hefði hafnað þátttöku sökum þess að hún hafi verið stödd í sumarbústað þegar fundurinn hafi farið fram. Kærandi hefði ekki verið með aðgang að bifreið og því ekki getað mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði.
Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda á höfnun hennar á þátttöku í vinnumarkaðsúrræði ekki gildar. Í því samhengi bendi stofnunin á að í boðun sem hafi verið send á kæranda hafi sérstaklega verið tekið fram að væri hún stödd utan höfuðborgarsvæðisins skyldi hún mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Í skýringum kæranda komi fram að hún hafi ekki getað mætt á boðaðan upplýsingafund sem hafi verið haldinn á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu þar sem hún hafi verið stödd í sumarbústað í tæplega þriggja tíma akstursfjarlægð. Kærandi beri jafnframt við að hafa ekki aðgang að bifreið. Kæranda hafi samkvæmt boðun borið að mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar væri hún stödd út á landi en þjónustuskrifstofur stofnunarinnar séu staðsettar víðs vegar um landið. Í stað þess að mæta á næstu þjónustuskrifstofu stofnunarinnar hafi kærandi ákveðið að hafna því að mæta á boðaðan upplýsingafund.
Samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á upplýsingafund hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda rúmlega 24 tímum fyrir áætlaðan fund. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess sem sérstaklega hafi verið tekið fram að væri kærandi stödd út á landi skyldi hún mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.
Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr. beri henni að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 24. júní 2025 boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 25. júní 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ef hún væri ekki á hennar þjónustusvæði gæti hún mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á boðuðum tíma. Kærandi var jafnframt upplýst um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna.
Fyrir liggur að kærandi mætti ekki á boðaðan fund. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi verið stödd í sumarbústað út á landi á fundartíma. Hún hafi ekki verið með aðgang að bifreið og því ekki getað komist til Reykjavíkur í boðað vinnumarkaðsúrræði.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir