02 október 2025
/
Nr. 772/2025 Úrskurður
Hinn
úrskurður nr.
í stjórnsýslumáli nr.
Kæra
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og
Schengen-svæðisins
3 Málsástæður og rök kæranda
Í kæru vísar kærandi til ástæðu fyrir synjun umsóknar hans, nánar tiltekið að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð hafi verið fram, þ.e. hvort þau hafi verið ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Kærandi vilji bæta úr því og lagði fram viðbótarupplýsingar og gögn samhliða kæru, sem voru þó þau sömu og hann lagði fram með umsókn sinni, að undanskildu uppfærðu bréfi frá atvinnuveitanda.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt
1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun
til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra
setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og
skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða
fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins
í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild
Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á
grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningar reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun skulu framvísa skjölum sem gera kleift að meta ásetning umsækjanda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út, sbr. d-lið 1. mgr. 14. gr. og 2. viðauka reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Í 8. mgr. 20. gr. kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem
öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð
um vegabréfsáritanir. Í eyðublaðinu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17
þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda
er merkt í reit
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda
jafnframt leiðbeint um að
Gögn sem sýna fram á
staðfestingu á skattframtali síðastliðin tvö ár eru meðal nauðsynlegra
fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við
reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í
Að framangreindu virtu er rökstudd ástæða til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Er þannig ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem kærandi hefur veitt, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María
Sigurðardóttir, varaformaður