02 október 2025

/

Styrkir til verkefna til stuðnings við þolendur og gerendur ofbeldis

{image.Description}
Hari

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem miða að því að tryggja þolendum og gerendum ofbeldis um land allt aðgengi að stuðningi og ráðgjöf. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda árin 2023-2025 til þess að bregðast við afleiðingum Covid-19 faraldursins. 

Styrkir geta að hámarki numið 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Til úthlutunar eru 60 milljónir króna. Lögð er áhersla á styrki til verkefna sem fela í sér samstarf fleiri aðila sem í sameiningu vinna að aðgerðum gegn ofbeldi.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins. Umsóknarfrestur er til klukkan 13.00 mánudaginn 13. október 2025.

Hér má finna reglur með nánari upplýsingum um úthlutun styrkjanna.

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected].