03 október 2025
/
Mál nr. 142/2024 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 3. október 2025
í máli nr. 142/2024
A
gegn
B ehf.
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðili: B ehf.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða tryggingarfé að fjárhæð 120.000 kr. og að honum sé óheimilt að krefja um frekari leigugreiðslur.
Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila um endurgreiðslu tryggingarfé verði hafnað en að seinni krafa hans sé ágreiningslaus.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 25. desember 2024 og 9. janúar 2025.
Greinargerð varnaraðila, dags. 9. janúar 2025.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu ótímabundinn leigusamning frá 22. júní 2024 um leigu sóknaraðila á herbergi varnaraðila að C. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveður vandamál hafa komið upp á leigutíma vegna skorts á samskiptum. Hann hafi ítrekað og árangurslaust reynt að ná sambandi við varnaraðila með tölvupóstum og skilaboðum til að óska eftir upplýsingum um ferlið við uppsögn leigusamningsins. Varnaraðili hafi ekki endurgreitt tryggingarfé og engum fyrirspurnum svarað vegna þess. Þrátt fyrir að hafa tilkynnt varnaraðila um uppsögn hafi greiðsluseðlar vegna leigu haldið áfram að berast á heimabanka sóknaraðila.
Aðilar hafi samið um eins mánaðar uppsagnarfrest. Sóknaraðili hafi sent varnaraðila uppsagnarbréf 20. október 2024 og því hafi leigutíma átt að ljúka 21. nóvember 2024.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveðst hafa svarað öllum fyrirspurnum sóknaraðila tímanlega á meðan leigutíma hafi staðið. Upplýsingar um ferli við uppsögn sé í leigusamningum sjálfum og húsaleigulögum. Með smáskilaboðum 12. október 2024 hafi sóknaraðili verið beðinn um að senda skriflega uppsögn á netfang varnaraðila. Það sé ekkert tryggingarfé til að endurgreiða þar sem sóknaraðili hafi beðið varnaraðila um að nota það til að greiða síðustu mánaðarleiguna, sbr. tölvupóst hans 5. nóvember 2024. Varnaraðili hafi engar útistandandi kröfur á sóknaraðila og séu engar innheimtur í gangi gegnum heimabanka. Samkvæmt húsaleigulögum sé uppsagnarfrestur einn mánuður og miða skuli við mánaðarmót, sem hafi verið gert í þessu tilfelli enda ekki samið um annað.
IV. Niðurstaða
Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lagði sóknaraðili fram tryggingarfé að fjárhæð 120.000 kr. við upphaf leigutíma.
Í 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 segir að leigusali megi ekki ráðstafa tryggingarfé eða taka af því án samþykkis leigjanda nema fyrir liggi endanleg niðurstaða um bótaskyldu leigjanda. Þó sé leigusala jafnan heimilt að ráðstafa tryggingarfénu til greiðslu á vangoldinni leigu, bæði á leigutímanum og við lok hans.
Samkvæmt 1. mgr. 57. gr. húsaleigulaga telst uppsagnarfrestur hefjast fyrsta dag næsta mánaðar eftir að uppsögn var send. Sóknaraðili sagði leigusamningi aðila upp skriflega 20. október 2024 og tók uppsögnin því gildi frá 1. nóvember 2024. Aðilar eru sammála um að uppsagnarfrestur hafi verið einn mánuður. Sóknaraðili greiddi ekki leigu vegna nóvember og var varnaraðila því heimilt að ráðstafa tryggingarfénu, sem nam leigu fyrir einn mánuð, til greiðslu leigu fyrir þann mánuð. Ber því að hafna kröfu sóknaraðila um endurgreiðslu tryggingarfjárins.
Varnaraðili hefur upplýst að hann eigi engar útistandandi kröfur á hendur sóknaraðila vegna leigu og því ekki tilefni til að fallast á kröfu sóknaraðila þar sem engin ágreiningur er til staðar hér um.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kröfum sóknaraðila er hafnað.
Reykjavík, 3. október 2025
Auður Björg Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson Eyþór Rafn Þórhallsson