06 október 2025

/

Samþykkt að stofna rannsóknarnefnd um mannréttindabrot í Afganistan

{image.Description}
Sameinuðu þjóðirnar
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í dag ályktun um að stofna óháða rannsóknarnefnd um stöðu mannréttinda í Afganistan. Aðeins Kína sagði sig frá ákvörðun ráðsins. Ísland hefur lengi kallað eftir því að rannsóknarnefnd verði stofnuð og leiddi sameiginlega yfirlýsingu þess efnis í ráðinu í mars, í samstarfi við Suður-Afríku og Chile. 

„Ég fagna því mjög að mannréttindaráðið hafi stigið þetta mikilvæga skref, sem er vonarneisti fyrir konur og stúlkur Afganistan og skilaboð um að alþjóðasamfélaginu standi ekki á sama um hetjulega baráttu þeirra,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Við höfum beitt okkur fyrir því í mannréttindaráðinu, bæði opinberlega og bakvið tjöldin, að stofnuð verði rannsóknarnefnd svo hægt verði að varpa skýrara ljósi á þau svívirðilegu mannréttindabrot sem birtast sem kerfisbundin kynbundin kúgun gagnvart konum og stúlkum í Afganistan.“ 

Frá valdatöku talibana árið 2021 hefur mannréttindaráðið samþykkt árlega ályktun um stöðu mannréttinda í Afganistan þar sem umboð sérlegs skýrslugjafa um málefni Afganistan er endurnýjað. Sérlegur skýrslugjafi ráðsins um málefni Afganistan hefur sagt aðgerðir talibana jafnast á við ofsóknir á grundvelli kynferðis. 

Afganistan er eina ríkið í heiminum sem bannar stúlkum að ganga í skóla eftir 12 ára aldur. Þá eru konur og stúlkur útilokaðar frá opinberu lífi og bannað að sinna ýmsum störfum, þ.á.m. í heilbrigðisþjónustu og réttarkerfinu. Afganskar konur hafa sjálfar lýst aðstæðum sínum sem kynbundinni aðskilnaðarstefnu. Afganir, frjáls félagasamtök og mannréttindaverðir hafa ítrekað kallað eftir aukinni ábyrgðarskyldu í formi óháðrar rannsóknarnefndar með vítt umboð.

Ísland tók virkan þátt í samningaviðræðum um ályktunina í yfirstandandi haustlotu mannréttindaráðsins. Þá studdi Ísland ásamt fleiri ríkjum við hliðarviðburð með afgönsku baráttufólki fyrir mannréttindum. 

Ísland var kjörið til setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir tímabilið 2025-2027. Mannréttindaráðið fundar að jafnaði í þremur reglubundnum fundalotum á ári sem standa yfir í nokkrar vikur í senn. Frekari upplýsingar um setu Íslands í mannréttindaráðinu má finna á vefsíðu utanríkisráðuneytisins.