07 október 2025
/
Mál nr. 99/2025 Úrskurður 7. október 2025
Mál nr. 99/2025 Aðlögun kenninafns: Ísaksdóttir
Hinn 7. október 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 99/2025.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 24. september 2025, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX um að kenna sig við föður sinn þannig að nafn hans, Isaac, verði aðlagað að íslensku og kenninafn hennar verði Ísaksdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Ísaksdóttir.