08 október 2025
/
Öryggismál í brennidepli á fundum í Helsinki
Fjölþáttaógnir og öryggismál í Evrópu voru ofarlega á baugi á fundi sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti með Elinu Valtonen, utanríkisráðherra Finnlands í Helsinki í dag. Málefni Úkraínu og Palestínu, samskipti yfir Atlantsála og norðurslóðamál voru sömuleiðis til umræðu á fundinum.
Þorgerður Katrín fundaði einnig með Ville Taivo, utanríkisviðskipta- og þróunarsamvinnuráðherra Finnlands, þar sem þróunarmál, samdráttur í framlögum til málaflokksins sem og breytingar á stofnanaumhverfi Sameinuðu þjóðanna voru til umræðu.
Utanríkisráðherra hefur undanfarna tvo daga verið í Finnlandi í tilefni ríkisheimsóknar Höllu Tómasdóttur forseta Íslands til Finnlands en heimsókninni lýkur í dag. Hún fundaði í gær með finnska varnarmálaráðherranum en þar var skrifað undir tvíhliða viljayfirlýsingu á sviði varnarmála. Þá sat utanríkisráðherra fundi forseta Íslands með Alexander Stubb, forseta Finnlands, og Petteri Orpo forsætisráðherra, auk þess sem finnska þingið var sótt heim og þar fundað með Jussi Halla-aho þingforseta. Þá sat utanríkisráðherra hádegisverðarfund með borgaryfirvöldum í Helsinki og sótti kvöldverð í forsetahöllinni.
„Samband Íslands og Finnland er náið og gott og byggir á þeim mikilvæga grunni sem náið samstarf Norðurlandanna fimm sannarlega skapar,“ segir Þorgerður Katrín. „Öryggis- og varnarmál í Evrópu settu óneitanlega svip á þá fundi sem ég átti hér í Finnlandi en Finnar mega teljast lykilríki í þessum efnum, eiga löng landamæri að Rússlandi og hafa tiltölulega nýlega tekið sögulega ákvörðun um að ganga í Atlantshafsbandalagsins. Við þau tímamót skapaðist enn einn samstarfsvettvangurinn fyrir Ísland og Finnland. Það er mikilvægt fyrir okkur að eiga í þéttu samtali við Finna og þessir fundir sem ég átti hér í Finnlandi og sem forseti Íslands átti styrkja enn böndin milli okkar.“