08 október 2025
/
Útboð eftir Draghi-skýrsluna
Norræna ráðherranefndin hefur auglýst útboð um gerð greiningar á samkeppnishæfni Norðurlandanna.
Um útboðið
- Frestur til að skila tilboðum er til klukkan 10, föstudaginn 7. nóvember 2025 (íslenskum tíma).
- Hámarksverð fyrir verkefnið er 1.500.000 danskar krónur (DKK).
Bakgrunnur og markmið
Í Evrópu og á Norðurlöndum er framtíð samkeppnishæfni og framleiðni í brennidepli. Fyrirtæki á Norðurlöndum standa frammi fyrir síaukinni alþjóðlegri samkeppni, ekki síst við þróun tæknilausna sem skipta máli fyrir græna og stafræna umbreytingu.
Markmið greiningarinnar er að draga upp mynd af samkeppnishæfni Norðurlandanna, byggt á fyrirliggjandi gögnum. Skýrslan mun vera framhaldsverkefni í tengslum við Draghi-skýrsluna svonefndu, en með sérstaka áherslu á samkeppnishæfni í norrænu samhengi, nýsköpun, græna umbreytingu og efnahagslegt þol (e. resilience).
Markmiðið með greiningunni er að draga fram helstu þætti sem móta samkeppnishæfni á Norðurlöndunum og að veita innsýn í helstu áskoranir sem standa í vegi fyrir samkeppnishæfni. Auk þess skal varpa ljósi á styrkleika á landsvísu og svæðisbundna styrkleika sem geta aukið samkeppnishæfni á Norðurlöndum.
Verkefnislýsing
- Útboðsgjafi skal skila greiningarskýrslu á ensku sem veitir yfirlit yfir núverandi stöðu samkeppnishæfni Norðurlanda.
- Til að gera niðurstöðurnar skýrari og aðgengilegri skal benda á 5–10 dæmisögur (case studies) úr norrænu samhengi, sem varpa ljósi á hvernig megi styrkja samkeppnishæfni.
- Dæmisögurnar skulu snerta á ýmsum þáttum: svo sem atvinnugreinum, stefnumótun, tækni, menntun og fjármálum. Þá skulu þau vera frá sem flestum Norðurlöndunum til að tryggja fjölbreytni.
- Öllum umsóknum og fylgigögnum (þ.m.t. viðaukar) skal skila á ensku.
- Skýrslan sjálf skal unnin á ensku.
Hvernig skal taka þátt:
Nánari upplýsingar og útboðsgögn má nálgast hér.