08 október 2025

/

Vegna handtöku íslensks ríkisborgara um borð í skipi á leið til Gaza

Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um að ísraelsk stjórnvöld hafa í dag farið um borð í skip, Conscience, sem sigldi áleiðis í áttina til Gaza. Íslenskur ríkisborgari sem var um borð hefur verið handtekinn. Í samskiptum við fulltrúa ísraelskra stjórnvalda vegna þessa máls í vikunni hefur verið áréttað að íslensk stjórnvöld gerðu þá kröfu að Ísrael færi að alþjóðalögum og að mannréttinda þeirra verði gætt sem væru um borð í umræddu skipi. Utanríkisráðuneytið er í samskiptum við þar til bæra aðila til að veita viðkomandi einstaklingi borgaraþjónustu og hefur enn fremur verið í sambandi við aðstandendur viðkomandi. Áfram verður fylgst með málinu.