09 október 2025

/

Nr 774/2025 Úrskurður

Hinn 9. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 774/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25090073

 

Kæra [...] á

drætti á afgreiðslu máls hans hjá Útlendingastofnun

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 8. september 2025 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Perú ( hér eftir kærandi), drátt á afgreiðslu umsóknar sinnar um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun.

Fyrrgreind kæra er lögð fram á grundvelli 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.            Málsástæður og rök kæranda

Hinn 12. desember 2023 sótti kærandi um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í kæru kemur fram að afgreiðsla umsóknarinnar hafi tekið 21 mánuð. Kærandi hafi fengið gagnabeiðni frá Útlendingastofnun með bréfi, dags. 11. september 2024, og afhent stofnuninni frekari gögn í framhaldinu. Eftir það tímamark hafi hann ekki fengið frekari upplýsingar um afgreiðslu málsins. Á vefsíðu stofnunarinnar komi fram að nú séu til vinnslu dvalarleyfisumsóknir á borð við umsókn kæranda frá því í janúar 2025. Hafi meðferð málsins því dregist óhóflega.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Eins og að framan greinir hefur kærandi til meðferðar umsókn um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun en slíkar ákvarðanir eru kæranlegar til kærunefndar útlendingamála, sbr. 7. gr. laga um útlendinga. Kæran grundvallast á 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga þar sem fram kemur að dragist afgreiðsla máls óhóflega sé heimilt að kæra það til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til.

Í lögum um útlendinga og reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 er ekki kveðið á um lögbundinn frest fyrir Útlendingastofnun til þess að afgreiða umsóknir um dvalarleyfi. Um málshraða við meðferð umsókna um dvalarleyfi gildir því almenn málshraðaregla stjórnsýsluréttar, sbr. 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, en þar segir að ákvarðanir í málum skuli teknar svo fljótt sem unnt er. Í reglunni felst m.a. að stjórnvald megi ekki draga afgreiðslu máls nema slíkt sé nauðsynlegt eða réttlætanlegt. Við mat á því hvort tafir séu nauðsynlegar eða réttlætanlegar hefur m.a. verið litið til þess að þótt mönnun og álag á stjórnvöldum kunni að koma til skoðunar þegar metið er hvað sé eðlilegur afgreiðslutími verði að gera þá kröfu að stjórnvöld skipuleggi meðferð mála með þeim hætti að ekki verði ónauðsynlegur eða óréttlættur dráttur á meðferð þeirra.

Umsóknir um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið geta krafist nokkurrar gagnaöflunar, sbr. einkum 2. og 3. mgr. 78. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt gögnum og upplýsingum í málinu óskaði Útlendingastofnun eftir frekari gögnum af hálfu kæranda með bréfi, dags. 11. september 2024. Fyrir liggur að kærandi lagði fram frekari gögn vegna málsins með tölvubréfi, dags. 8. nóvember 2024. Samkvæmt málsferilsyfirliti Útlendingastofnunar var málið þá sent til meðferðar hjá lögfræðiteymi leyfasviðs en hvorki hefur verið tekin ákvörðun um umsóknina né óskað frekari skýringa eða gagna til þess að varpa betra ljósi á málið. Hefur umsóknin því legið óhreyfð í tæpa 11 mánuði. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu stofnunarinnar liggur fyrir að teknar hafa verið til vinnslu umsóknir um önnur dvalarleyfi, þ.m.t. dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla, frá því í janúar 2025. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 18. september 2025, óskaði nefndin eftir skýringum frá Útlendingastofnun á töfum málsins og hvenær mætti vænta niðurstöðu. Með tölvubréfi stofnunarinnar, dags. 24. september 2025, komu fram þær skýringar að fordæmalaus aukning í fjölda umsókna væri ástæða tafanna. Niðurstöðu mætti vænta innan fjögurra vikna.

Líkt og að framan greinir óskaði Útlendingastofnun eftir frekari gögnum af hálfu kæranda með bréfi, dags. 11. september 2024. Kærandi lagði fram frekari gögn vegna málsins 8. nóvember 2024. Játa verður stjórnvöldum svigrúm til þess að leggja mat á innkomin gögn vegna stjórnsýslumála, einkum ef í þeim felast matskenndar upplýsingar. Ljóst er að dvalarleyfi á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga er háð mati stjórnvalda að töluverðu leyti, sbr. einkum 1. málsl. 3. mgr. 78. gr. laga um útlendinga. Þrátt fyrir framangreint er ljóst að tíminn sem leið frá gagnaframlagningu kæranda 8. nóvember 2024 jafnast á við vinnslu umsóknar frá grunni, að teknu tilliti til upplýsinga á vefsíðu stofnunarinnar. Hefur meðferð málsins því farið úr hófi og beinir kærunefnd því til Útlendingastofnunar að taka ákvörðun í málinu svo fljótt sem unnt er.

Samkvæmt framansögðu er það niðurstaða kærunefndar að þær tafir sem urðu á meðferð Útlendingastofnunar á umsókn kæranda, dags. 5. desember 2023, sé ekki í samræmi við 9. gr. stjórnsýslulaga.


 

Úrskurðarorð:

Málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda er ekki í samræmi við 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka ákvörðun í málinu svo fljótt sem unnt er.

 

The Directorate of Immigration‘s processing of the case is not in accordance with Article 9 of the Administrative Procedures Act no. 37/1993. The Directorate of Immigration is instructed to issue a decision as soon as possible.

 

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir                                 Vera Dögg Guðmundsdóttir