09 október 2025
/
Nr. 773/2025 Úrskurður
Hinn 9. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 773/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU25060014 og KNU25060015
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 2. júní 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Pakistan (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 2. júní 2025, um að ógilda vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 19. maí 2025, og um frávísun frá Íslandi.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 29. apríl 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 29. maí til 3. júní 2025 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 19. maí 2025. Kærandi kom til Íslands 2. júní 2025, með flugi frá Edinborg, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 2. júní 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt og kæranda vísað frá landinu.
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda fylgdu ekki viðbótarathugasemdir.
Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi ógilt vegabréfsáritun kæranda þar sem tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem veittar voru í umsóknarferlinu um vegabréfsáritun auk þess sem grunur væri um að áritunarinnar hafi verið aflað á fölskum forsendum.
Í skýrslu lögreglu, dags. 4. júní 2025, kemur fram að kærandi hafi veitt óljós svör um dvöl sína á Íslandi við landamærahlið. Lögregla hafi boðið honum til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglu á Keflavíkurflugvelli. Kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst ætla að dvelja á Íslandi í tvo daga. Að dvöl lokinni færi kærandi aftur til Edinborgar og fékk lögregla þær upplýsingar staðfestar frá viðkomandi flugfélagi. Aðspurður hafi kærandi þurft að gera breytingar á ferð sinni vegna skóla. Lögregla hafi flett upp umsókn kæranda um vegabréfsáritun hvar kæmi fram að hann myndi dvelja í sex daga en umsókninni fylgdi ferðaáætlun auk upplýsinga um flug og hótelgistingu. Við frekari athugun lögreglu kom í ljós að flug og hótelgisting hafi verið afbókuð stuttu eftir útgáfu áritunarinnar. Kærandi kvaðst hafa mikinn áhuga á Íslandi og vildi læra meira um sögu landsins. Hafi hann m.a. ætlað að heimsækja Þjóðminjasafnið og hraunströnd sem hann hafi þó ekki getað gert betri grein fyrir. Kærandi hafi ekki getað greint frá þeim stöðum sem tilgreindir voru í ferðaáætlun, sem lögð var fram með umsókn um vegabréfsáritun, en hann hafi sagt að hann hafi að öllum líkindum tilgreint nokkur söfn í áætluninni. Sökum áhuga kæranda á Íslandi var honum veitt færi á að benda á nokkra staði sem hann vildi heimsækja á íslensku landakorti. Það hafi kærandi ekki getað gert og ekki vitað um staðsetningu Reykjavíkur. Að sögn kæranda hafi hann ætlað að heimsækja Ísland ásamt frænda sínum sem hafi þó hætt við ferðina og líklega ætlað að ferðast til Barcelona, Spáni, í staðinn. Lýsti kærandi því yfir að hann kynni að fara til Barcelona ef frændi hans myndi hringja í hann þaðan. Í kjölfarið hafi lögregla haft samband við tiltekið flugfélag og fengið staðfest að kærandi ætti bókað flug til Barcelona síðar sama dag. Aðspurður kvaðst kærandi hafa keypt miða til öryggis ef frændi hans myndi hringja.
Í kjölfarið tók lögregla ákvörðun um að ógilda áritun kæranda og frávísa honum á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga þar sem tilgangur ferðar væri ekki í samræmi við skipulag og ferðaáætlanir sem lágu til grundvallar í umsókn um vegabréfsáritun.
Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 2. júní 2025. Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 15. september 2025, var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga vegna ákvörðunar um frávísun. Greinargerð kæranda barst 24. september 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda eru málsatvik rakin vegna ákvörðunar lögreglunnar um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og frávísa honum frá landinu. Í greinargerð er á því byggt að málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar hafi verið brotnar við meðferð málsins og ekki hafi verið framfylgt reglum um andmælarétt, leiðbeiningarskyldu og rannsóknarreglu.
Kærandi byggir á því að lögreglan hafi ekki rannsakað með fullnægjandi hætti aðstæður kæranda varðandi réttmæti komu til landsins. Kærandi telur að í ákvörðun lögreglunnar hafi ekki verið veittar nægilegar leiðbeiningar um heimild til að fá ákvörðunina rökstudda, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til þess að gögn málsins beri ekki með sér, með ótvíræðum hætti, af hvaða ástæðum hann hafi ekki haft löglega pappíra til landgöngu. Um sé að ræða skort á rökstuðningi og að það ætti að liggja ljóst fyrir af hvaða ástæðum kærandi uppfyllti ekki skilyrði þess að komast til landsins. Ákvörðunin sé því ólögmæt og beri að fella hana úr gildi.
Kærandi vísar til þess að af gögnum málsins sé ekki ljóst hvort kæranda hafi verið gefinn kostur á að gæta hagsmuna sinna og leita sér aðstoðar lögmanns samkvæmt a-lið 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga. Ekki sé ljóst hvort að leiðbeiningarskyldu stjórnvalda og andmælarétti kæranda samkvæmt 7., 11. og 13. gr. stjórnsýslulaga, hafi verið framfylgt.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar
Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar hinn 19. maí 2025, með gildistíma frá 29. maí til 14. júní 2025. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 2. júní 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar eru ekki viðbótarathugasemdir en í ákvörðun um frávísun, sem tekin var samhliða, kemur fram að áritunin hafi verið ógilt þar sem tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem veittar voru í umsóknarferlinu auk þess sem grunur væri um að áritunarinnar hafi verið aflað á fölskum forsendum.
Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.
Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra.
Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 29. apríl 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í sex daga á tímabilinu 29. maí til 3. júní 2025. Því til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við skipulagða ferðaáætlun og bókanir fyrir flugi og gistingu. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Íslands hafi þær forsendur þó ekki staðist. Hjá lögreglu bar kærandi fyrir sig að hann hafi þurft að breyta ferð sinni vegna skóla. Síðar hafi komið í ljós að kærandi væri á leið til Barcelona, Spáni, síðar sama dag og hann kom til Íslands. Hafi framburður um breytingu á ferð vegna skóla því ekki verið trúverðugur. Þá hafi gagnaöflun lögreglu leitt í ljós að kærandi hafi afbókað flug og gistingu, sem hann hafði lagt fram með umsókn um áritun, nokkrum dögum eftir útgáfu áritunarinnar. Samkvæmt framansögðu var framburður kæranda misvísandi og byggðist framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni á röngum forsendum. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar því ekki uppfyllt þegar hún var gefin út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritun kæranda 2. júní 2025 og er sú ákvörðun staðfest.
Ákvörðun um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Pakistan og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 19. maí 2025.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 2. júní 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða. Í ákvörðun lögreglu um frávísun kemur fram að upplýsingar um tilgang dvalar hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar hafi verið við umsókn um vegabréfsáritun auk þess sem grunsemdir væru um að áritunarinnar hafi verið aflað á sviksamlegan hátt. Í skýrslu lögreglu kemur fram að breytingar hafi orðið á ferðaáætlun kæranda vegna skóla. Síðar hafi þó komið í ljós að kærandi ætti bókað flug til Spánar seinna sama dag og hann kom til Íslands. Hafi framburður um breytingar á ferðaáætlun vegna skóla því ekki staðist. Aðspurður hafi kærandi ekki getað greint frá ferðaáætlun sinni eða greint lögreglu frá þeim stöðum sem hann hugðist heimsækja. Að framangreindu virtu var framburður kæranda um tilgang og skilyrði dvalar misvísandi og dregur þekkingarleysi á ferðaáætlun úr trúverðugleika framburðar hans. Með vísan til framangreinds hefur kærandi ekki getað leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvöl sinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Í málatilbúnaði kæranda eru gerðar athugasemdir við meðferð málsins, m.a. varðandi 10. og 13. gr. stjórnsýslulaga. Að virtum gögnum málsins er ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglu.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum að ógilda vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 1., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa honum á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.
Athugasemdir við málsmeðferð lögreglu
Hin kærða ákvörðun um frávísun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.
Í viðbótarathugasemdum í ákvörðun um frávísun í máli kæranda kemur m.a. fram að grunur væri um að vegabréfsáritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti. Ljóst er að ákvarðanir lögreglunnar um frávísun og ógildingu vegabréfsáritunar eru aðskildar ákvarðanir sem eru hvorar um sig kæranlegar til kærunefndar. Framangreind athugasemd lýtur að ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar og hefði verið rétt að hún kæmi fram á eyðublaði um ógildingu vegabréfsáritunar. Því er beint til lögreglunnar að gæta þess að viðbótarathugasemdir sem koma fram í ákvörðun um frávísun og ógildingu vegabréfsáritunar lúti einvörðungu að efni ákvörðunarinnar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir