10 október 2025
/
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn helgaður geðheilbrigði og mannúðarkrísum
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tók þátt í dagskrá tileinkaðri Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum sem er í dag. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin helgar 10. október ár hvert tilteknu þema sem snýr að geðheilsu og geðheilbrigðismálum. Fjölmennt var í Bíó Paradís þar sem geðheilbrigðismál voru í brennidepli og var Alma meðal ræðumanna.
Alma sagði í ræðu sinni það ekki koma á óvart hvert væri viðfangsefni geðheilbrigðisdagsins í ljósi miskunnarlauss stríðsreksturs í fleiri löndum þar sem alþjóðalög eru virt að vettugi og einnig vegna náttúruhamfara af völdum hnattrænnar hlýnunar sem verða sífellt algengari: „Slíkar aðstæður snerta milljónir manna um heim allan árlega og mikilvægi þess að styðja við geðheilsu þeirra og veita sálfélagslegan stuðning er brýnt“. Þess vegna leggur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin áherslu á að geðheilbrigði og félagslegur stuðningur verði samþættur öllum neyðaraðgerðum.
Alma ræddi um hve mikið ávinnst með því að vernda og styrkja geðheilsu fólks í kjölfar áfalla því þannig eflist einnig þrautseigja, samstaða og geta samfélaga til að endurbyggjast.
Geðheilbrigðismál eru meðal helstu áherslumála Ölmu sem heilbrigðisráðherra. Í ræðunni fjallaði hún um ýmis skref sem þegar hafa verið stigin til að efla geðheilbrigðisþjónustu hér á landi og verkefni sem unnið er að með það að markmiði. Hún ræddi einnig um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir og minnti á að hvert og eitt okkar geti veitt fólki mikilvæga hjálp og stuðning með hlustun, nærveru og samkennd.
„Við skulum halda áfram að efla þjónustu, forvarnir og vitund – en líka menningu hlýju, virðingar og mannúðar“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra m.a. í ræðu sinni sem er aðgengileg hér í heild sinni.