10 október 2025
/
Dómsmálaráðherra fylgir forseta Íslands til Peking
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála mun fylgja Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, í heimsókn til Kína dagana 12.–15. október. Venju samkvæmt fylgir ráðherra alltaf forseta á ferðalögum erlendis.
Heimsóknin markar 30 ára afmæli kvennaráðstefnunnar í Peking og sendiráðs Íslands í Kína. Forseta Íslands er boðið sem heiðursgesti að ávarpa 30 ára hátíðarfund kvennaráðstefnunnar í Peking sem haldinn er á vegum kínverskra stjórnvalda og UN Women. Forseti mun einnig eiga tvíhliða fund með forseta Kína, Xi Jinping. Ráðherra fylgir forseta á fundinn.
30 ár frá sögulegri kvennaráðstefnu
Þrjátíu ár eru nú liðin frá því Peking-yfirlýsingin og aðgerðaáætlun í jafnréttismálum voru samþykktar á fjórðu kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í kínversku höfuðborginni árið 1995. Ráðstefnan er talin einn stærsti og áhrifamesti fundur í sögu jafnréttismála þar sem fulltrúar frá 189 ríkjum og fjölmörgum félagasamtökum komu saman.
„Það er á ábyrgð allra ríkja – stórra sem smárra – að halda áfram að vinna að markmiðum Peking-yfirlýsingarinnar. Réttindi kvenna eru mannréttindi, og þann boðskap eigum við að breiða út alls staðar þar sem við eigum í alþjóðlegum samskiptum,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Yfirlýsingin markaði tímamót í jafnréttismálum á heimsvísu og hefur verið talin framsæknasti og árangursríkasti vegvísir sem samþykktur hefur verið um réttindi kvenna og stúlkna. Hún hefur verið hornsteinn í alþjóðlegri jafnréttisbaráttu síðustu þrjá áratugi og minnir á að réttindi kvenna eru órjúfanlegur hluti mannréttinda.
Vigdís Finnbogadóttir lagði grunninn
Ráðherra rifjar jafnframt upp að Vigdís Finnbogadóttir, þá forseti Íslands, sótti ráðstefnuna árið 1995 og hélt ávarp um stöðu og réttindi kvenna.
Vigdís Finnbogadóttir og Jiang Zemin, þáverandi forseti Kína, árið 1995
Vigdís var meðal þeirra þjóðarleiðtoga sem tóku skýra afstöðu fyrir auknu jafnrétti og réttindum kvenna á alþjóðavettvangi og var framganga hennar á ráðstefnunni talin endurspegla þá stöðu sem Ísland hafði þegar náð í jafnréttismálum.
„Vigdís lagði grunn að þeirri ímynd Íslands sem fyrirmyndarríkis í jafnréttismálum – og það er arfleifð sem við eigum að varðveita og efla,“ segir ráðherra.
Jafnrétti og mannréttindi í forgrunni
Dómsmálaráðherra mun sækja málstofu Beijing+30 ráðstefnunnar. Þá mun dómsmálaráðherra ræða jafnréttis- og mannréttindamál á fundi með framkvæmdastýru Mannfjöldasjóðs Sameinuðu Þjóðanna (UNFPA), sem og ræða vernd barna og Barnahús á fundi með framkvæmdastýru Barnahjálpar Sameinuðu Þjóðanna (UNICEF).
„Ísland er í forystu í jafnréttismálum og okkur ber að nýta þá stöðu til að miðla reynslu okkar og stuðla að framþróun. Samstarf við alþjóðastofnanir og aðrar þjóðir er lykilatriði í þeirri viðleitni,“ segir ráðherra.