13 október 2025
/
Mál nr. 467/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 467/2025
Mánudaginn 13. október 2025
A
gegn
B
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Viborg sálfræðingur.
Með kæru, dags. 31. júlí 2025, kærði C lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun B, dags. 25. júní 2025, um að loka máli samkvæmt 1. mgr. 23. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.) vegna barna kæranda, D og E.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Stúlkan, D, er X ára gömul og drengurinn, E, er X ára gamall. Kærandi og faðir barnanna fara saman með forsjá þeirra.
Málið hófst með tilkynningu sem barst B þann 21. apríl 2025 frá F varðandi ofbeldi í garð kæranda og barna hennar af hálfu föður barnanna.
Með hinni kærðu ákvörðunum, dags. 25. júní 2025, lokaði barnaverndarþjónustan málum barnanna.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála með bréfi, dags. 25. júlí 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 11. ágúst 2025, var óskað eftir skýringum lögmanns kæranda á því hvers vegna kæra hafi borist að kærufresti liðnum með vísan til 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Beiðni um skýringar var ítrekuð til lögmanns kæranda með tölvupósti 23. september 2025. Lögmaður kæranda svaraði ekki beiðni úrskurðarnefndarinnar um skýringar.
II. Niðurstaða
Samkvæmt 1. mgr. 51. gr. bvl. geta aðilar barnaverndarmáls skotið úrskurði eða ákvörðun samkvæmt 6. gr. laganna til úrskurðarnefndar velferðarmála innan fjögurra vikna frá því að viðkomandi var tilkynnt um úrskurð eða ákvörðun. Þessi lagaákvæði eiga við um hina kærðu ákvörðun. Þegar kæra berst að liðnum kærufresti skal vísa henni frá samkvæmt 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. lagaákvæðisins, eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 2. tölul. þess.
Ákvörðun barnaverndarþjónustunnar var birt kæranda rafrænt þann 25. júní 2025. Kæran barst úrskurðarnefndinni rafrænt 25. júlí 2025. Samkvæmt framangreindu byrjaði kærufrestur að líða 26. júní 2025 og lauk honum 23. júlí 2025. Kæran barst því nefndinni eftir að fjögurra vikna kærufestur var liðinn. Að því er varðar 1. tölulið 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, þ.e. að afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, hefur lögmaður kæranda engar skýringar veitt.
Samkvæmt því, sem rakið er hér að framan, hafa engar skýringar komið fram á því hvers vegna kæran barst úrskurðarnefndinni að liðnum kærufresti og ekkert í gögnum málsins gefur til kynna að afsakanlegt verði talið að hún hafi ekki borist fyrr. Önnur atvik málsins þykja ekki leiða til þess að veigamiklar ástæður mæli með því að málið verði tekið til meðferðar á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Af þessum sökum er máli þessu vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, kt. 201291-3569, vegna úrskurðar B, dags. 25. júní 2025 um lokun máls vegna barna hennar, D og E, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson